Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásmundur var lagður inn á spítala og Sigurjón sendi honum pillu – Oft hugsað um að svipta sig lífi

Ásmundur var lagður inn á spítala og Sigurjón sendi honum pillu – Oft hugsað um að svipta sig lífi

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, dásamar íslenska heil­brigð­is­kerfið í löngum pistli á Facebook. Þing­mað­ur­inn fékk nýjan gervi­lið í vinstra hné og í pistl­inum lýsir hann ferl­inu nokkuð ítar­lega og sparar ekki lofs­yrðin. Sigurjón M. Egilsson, fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og eig­andi Midjan.is gagn­rýnir skrif þing­manns­ins harð­lega og segir þau gefa kol­ranga mynd af heil­brigð­is­kerf­inu sem sé yfir­fullt.

Ásmundur hitti hjúkr­un­ar­fræð­ing, lækni, svæf­inga­lækni, lyfja­fræð­ing og sjúkra­þjálf­ara, sem allir upp­lýstu þing­mann­inn um hvert þeirra hlut­verk væri og svör­uðu spurn­ingum hans. Þá var Ásmundur mænu­deyfður og dorm­aði á meðan aðgerð­inni stóð.

„Ég fékk frá­bæra umönnun, góðan mat og afar fag­lega var staðið að öllu sem snéri að veru minni á Land­spít­al­anum. Við eigum frá­bært heil­brigð­is­starfs­fólk sem gerir heil­brigð­is­kerfið eitt það besta á hvaða kvarða sem það er borið saman við,“ segir Ásmundur í pistl­inum og þakkar heil­brigð­is­starfs­fólki að hann eigi bæri­legt líf framundan.

„Ég er fullur þakk­lætis til heil­brigð­is­starfs­fólks­ins okkar fyrir öll afrek þeirra.“

Hinn þaul­reyndi fjöl­miðla­maður, Sigurjón M. Egilsson sem stýrir Midjan.is segir pistil­inn gefa ranga mynd af heil­brigð­is­kerf­inu. Sigurjón talar af reynslu en hann er öryrki eftir mót­or­hjólaslys sem átti sér stað fyrir rúmum fimm árum og er enn að reyna ná fullum bata. Hann segir að þegar íslenska heil­brigð­is­kerfið er ann­ars vegar, þá sitji ekki allir við sama borð.

„Margt hefur verið reynt. Reykja­lundur var það besta. Svo kom að verka­sviði Land­spít­al­ans. Fyrir um ári var reynt að sprauta sterum þar sem verkirnir mynd­ast. Það dugði ör­fáa daga. Þá var næst að reyna ein­hvers­konar rafað­gerð,“ segir Sigurjón og bætir við: „Svo kom Covid. Það var hringt og sagt að þess vegna yrði að fresta „að­gerð­inni“. Ég beið og ég beið og ég beið.“

Sigurjón segir að þegar hann loks­ins heyrði frá spít­al­anum, hafi það ein­göngu verið til að tjá honum að lækn­ir­inn sem hann hafði svo lengi beðið eftir, væri hættur störfum. Þá fékk hann þau tíð­indi að annar læknir myndi taka við honum og af því fengi hann fregnir síðar.

„Nú bíð ég og bíð ég og bíð ég.“

Sigurjón segir verk­ina ekk­ert hafa lag­ast á öllum þessum árum. Biðin og stöðugir verkir hafa tekið sinn toll og hafa sjálfs­vígs­hugs­anir sótt á hann þegar hann finnur hvað mest til.

„Þegar verkirnir verða hvað verstir hugsa ég mér hvort ekki sé létt­ast að hætta þessu bara. Stökkva fyrir björg. En það er ábyrgð­ar­leysi. Þannig hugs­unum verður að ýta frá sér. Þær er samt ekki hægt að deyða. Þær koma aftur og aftur og aftur,“ segir Sigurjón og telur heil­brigð­is­kerfið og biðlista koma verst niður á þeim sem búa ekki við sterka félags­lega eða fjár­hags­lega stöðu. Hann segir:

„Betra er að segja nei strax en draga fólk á asna­eyr­unum í langan tíma.“

Þá segir Sigurjón að lokum:

„Rétt er að óska Ás­mundi góðs bata. Samt verður hann að vita að heil­brigðis­kerfið er ekki eins stór­feng­legt og hann heldur. Alls ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi