Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilborg: „Þegar ástin þín deyr og þú veist ekki hvernig þú átt að ná andanum“

Vilborg: „Þegar ástin þín deyr og þú veist ekki hvernig þú átt að ná andanum“

„Í febr­úar ár hvert leitar hug­ur­inn ósjálfrátt til baka og upp rifj­ast fyrstu dag­arnir og vik­urnar eftir and­lát Björg­vins, þegar sorgin var hrá, hjartað eins og opin kvika. Í dag, 9. febr­úar, eru 8 ár frá dauða hans af völdum krabba­meins í heila. Dóttir okkar var þá 8 ára, hefur nú lifað álíka lengi án hans og með honum, mín tvö eldri áttu hann að stjúpa í 9 ár.“

Þetta segir eitt okkar fremsta skáld, Vilborg Dav­íðs­dóttir, í afar áhrifa­ríkum, djúpum og hjart­næmum pistli á Facebook. Þar fjallar hún um glímuna við sorg­ina eftir að eig­in­maður hennar Björgvin Ingi­mars­son lést eftir glímu við ill­vígt krabba­mein. Björgvin var ást­kær eig­in­maður og faðir og líka mik­ils­met­inn sál­fræð­ingur og kenn­ari.

Vilborg hefur verið óhrædd við að tjá sig opin­skátt um þá lífs­reynslu sem fylgir því að vera aðstand­andi mann­eskju er tekst á við ólækn­andi krabba­mein og lifir þann skelfi­lega sjúk­dóm ekki af. Vilborg hefur einnig skrifað bók um reynslu sína. Bókin ber heitið Ástin, drek­inn og dauð­inn og hlaut hún lof­sam­lega dóma. Þá hélt Vilborg ótal fyr­ir­lestra um efni bók­ar­innar sem hefur án efa gagn­ast mörgum sem takast á við missi.

Vilborg segir í dag, að það sem hún hafi lært á þessu ferða­lagi, að þá sé úti­lokað að kom­ast yfir sorg­ina eða skilja hana eftir á leið­inni.

„Svo ein­kenni­lega sem það hljómar þá vildi ég ekki vera án hennar. Hún mild­ast vissu­lega, sker ekki lengur, en dýpkar lífið og sam­kennd­ina með öðru fólki. Styrkir líka. Því hvað er að ótt­ast þegar það hræði­leg­asta hefur þegar gerst og þú ert hér enn?“ spyr Vilborg og birtir síðan ævin­týri sem að hluta til er gam­alt og skráð af Jóni Árnasyni undir heit­inu „Búkolla og stelpan“.

Hér er við­eig­andi að gefa Vilborgu orðið en það væri stíl­brot að end­ur­skrifa þann hluta pistils­ins. Saga Vil­borgar hljóðar svo:

„Pabbi heit­inn las oft fyrir okkur systk­inin úr því safni. Og að hluta nýtt. Mér var kennt lít­illi að það væri gæfu­merki að finna dor­dingul í hús­inu, hann skyldi ekki drepa heldur færa út og leggja var­lega á jörðu. Kannski kann­ast fleiri við þá trú?

*Ævin­týrið um Dor­dingul*

Þegar Helga, oln­boga­barn karls og kerl­ingar, kom svöng og þreytt í hell­inn í leit að Búkollu bauð skessan henni ekki að hvíl­ast og þiggja góð­gerðir heldur skip­aði henni að sækja brjóst­nál hjá Dala­drottn­ingu systur sinni. Helga spurði hvar Dala­drottn­ing væri en skessan svar­aði að það mætti hún segja sér sjálf. ,,Og ef þú verður ekki komin með hana í kvöld, þá drep ég þig.“

(Þegar ástin þín deyr og þú stendur ein frammi fyrir drek­anum segir dauð­inn þér ekki hvernig þú getir slökkt eld­inn í gini hans heldur að ákveða hvaða útfar­ar­stofa eigi að sækja mann­inn þinn til að flytja hann í lík­húsið í Fossvogi.)

Æði ófrýni­legur maður, með hor sem náði úr nefi niður á tær, Dor­ding­ull að nafni, hjálp­aði Helgu að finna brjóst­nál­ina í skiptum fyrir lof­orð um koss að kvöldi. En þegar skessan var komin með grip­inn í hendur skip­aði hún Helgu að sækja tafl hjá Dala­drottn­ingu systur sinni sem hana hafði lengi langað að eign­ast. Þegar Helga spurði hvar hún væri svar­aði skessan að það mætti hún segja sér sjálf. ,,Og ef þú kemur ekki með taf­lið skal ég drepa þig.“

(Þegar ástin þín deyr og þú veist ekki hvernig þú átt að ná and­anum niður í lungu spyr dauð­inn ekki hvernig megi hug­hreysta þig heldur minnir þig á að prest­ur­inn þurfi að fá dán­ar­vott­orðið í hendur, ann­ars megi hann ekki jarða mann­inn þinn. Bætir því svo við að þú þurfir að fara út í búð því ísskáp­ur­inn er tómur og stelpan þarf nesti í skól­ann.)

Dor­ding­ull, í skorpnum skinn­stakki sem náði niður á ristar að framan en á herða­blöð að aftan, hjálp­aði Helgu á ný og það þótt hún stæði ekki við lof­orðið um koss­inn. En þegar skessan var komin með taf­lið skip­aði hún Helgu að elda fyrir sig, búa um rúmið og hella úr koppnum. ,,Og vertu búin að því í kvöld, ella mun ég drepa þig.“

(Þegar ástin þín deyr og þú þráir heit­ast af öllu að leggj­ast fyrir, loka aug­unum og opna þau ekki aftur fyrr en allt er orðið aftur eins og það var áður þá vefur dauð­inn þig ekki í dúnsæng og slekkur ljósið heldur segir þér að pabbi þinn sé líka með krabba­mein og tengda­mamma hafi enn fengið aðsvif, sé komin á bráða­mót­tök­una.)

En allt er ríg­fast, pottur, rúm­föt og koppur. Og enn og aftur kemur sá ófrýni­legi Dor­ding­ull Helgu til hjálpar, í skiptum fyrir end­ur­nýjað kossa­lof­orð.

(Þegar ástin þín deyr og þú getur ekki hugsað um neitt annað en hversu hrædd þú ert þá strýkur dauð­inn þér ekki um vang­ann og segir þér að þetta verði allt í lagi heldur áréttar að sýslu­maður verði að fá umsókn­ina um setu í óskiptu búi útfyllta sem fyrst, því fyrr færðu ekki vott­orðið fyrir bank­ann um að þú megir nota reikn­ing manns­ins þíns til þess að borga veislu­þjón­ust­una og sal­inn fyrir erfi­drykkj­una.)

Dor­ding­ull lætur sjóð­andi bik­ketil undir rúm skessunnar og segir Helgu að í ket­il­inn muni skessan detta þegar hún setj­ist á rúmið í kvöld því hún muni þá verða þreytt og éta mikið. En undir kodda hennar sé fjöregg sem Helga skuli brjóta á ásjónu hennar í því hún falli í ket­il­inn – og nefna sig þá, ef hún vilji.

(Þegar ástin þín deyr og þig langar til að lypp­ast niður á eld­hús­gólfið, skríða þar ýlfr­andi undir borð og fela þig líkt og í skiln­að­inum hér um árið, þá býður dauð­inn þér standa í fæt­urna og hlúa að þeim sem þér hefur verið falið að ann­ast.)

Þegar skessan kemur heim um kvöldið fer allt eins og Dor­ding­ull sagði og hún fellur í ket­il­inn. Helga sprengir þá eggið á ásjónu hennar og nefnir Dor­dingul. Hann kemur þegar. Skessan lætur þar líf sitt og brenna þau hana upp. Verða þá dynkir miklir svo Helga verður hrædd og kyssir Dor­dingul þrjá kossa.

(Þegar ástin þín deyr spyr dauð­inn úr hverju þú sért gerð og krefur þig um koss.)

Dor­ding­ull og Helga sváfu nú saman um nótt­ina en um morg­un­inn varð Helga þess vör að fríður kóngs­son var fyrir ofan hana í rúm­inu en ham­urinn þar hjá. Hún dreypir á kóngs­son en brennir ham­inn; hafði Dor­ding­ull verið kóngs­son í álögum.

(Fellur þá af dauð­anum ham­urinn. Og í hans stað er þar lífið, nakið og skjálf­andi, og býður þér varir sínar.)

Hann átti nú Helgu fyrir konu. Þau tóku það sem fémætt var í hell­inum, þar á meðal Búkollu. Þau fóru síðan utan, Dor­ding­ull og Helga, og sett­ust að í ríki föður hans en að honum önd­uðum erfðu þau ríkið. Þau lifðu lengi eftir þetta og var sam­búð þeirra hin besta.

(Þið takið upp sam­búð og þú lærir að mæta því með kossi, á hverju sem gengur.)

Og lýkur svo þess­ari sögu.

(Og lýkur svo þess­ari sögu.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi