Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján Gunnar lektor á launum hjá HÍ þrátt fyrir meint kynferðisbrot gegn þremur konum

Kristján Gunnar lektor á launum hjá HÍ þrátt fyrir meint kynferðisbrot gegn þremur konum
Kristján Gunnar Valdi­mars­son, rektor við HÍ.

Kristján Gunnar Valdi­mars­son lög­maður gegnir enn stöðu lekt­ors við félags­vís­inda­deild Háskóla Íslands þrátt fyrir að vera sak­aður um gróf kyn­ferð­is­brot og frels­is­svipt­ingu gegn þremur konum. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur hann þó ekki sinnt kennslu við sviðið frá því málið kom upp.

Kristján Gunnar var hand­tek­inn á Þor­láks­messu 2019 vegna gruns um frels­is­svipt­ingu og kyn­ferð­is­brot gegn konu á þrí­tugs­aldri. Hann var lát­inn laus að morgni aðfanga­dags en var síðan aftur hand­tek­inn á jóla­nótt. Þá var hann sagður hafa svipt tvær aðrar konur frelsi og beitt þær grófu lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Í kjöl­farið var Kristján Gunnar úrskurð­aður í gæslu­varð­hald fram yfir ára­mót.

Hér er Kristján Gunnar leiddur út af lög­reglu við hand­tök­una á Þor­láks­messu. Mynd / Skjáskot RÚV.

Engu að síður er Kristján Gunnar enn skráður lektor við HÍ þar sem hann kenndi skatta­rétt og gegnir þeirri stöðu í 50 pró­sent stöðu­gildi. Hann hefur því ekki verið sviptur starfstitli sínum og virð­ist sem mál Krist­jáns séu því í bið­stöðu í háskól­anum á meðan með­ferð hans hjá ákæru­vald­inu stendur.

Stefán Hrafn Jónsson, for­seti sviðs­ins, seg­ist lítið geta rætt málið efn­is­lega þegar Mannlíf sló á þráð­inn og vís­aði á skrif­stofu rek­stors þegar kemur að starfs­manna­málum. „Hann er ennþá lektor hjá háskól­anum, já. En hann hefur ekki kennt við sviðið í ákveð­inn tíma. Jafnvel þó ég sé for­seti sviðs­ins þá eru ráðn­ing­ar­mál hjá rektor,“ segir Stefán.

Starfs­sam­band lekt­ors­ins og háskól­ans er enn í gildi en eftir því sem Mannlíf kemst næst er Kristján Gunnar í nokk­urs konar veik­inda­leyfi og sinnir því sama og engum skyldum við stofn­un­ina. Meðan hann er hins vegar enn starfs­maður heldur hann rétt­indum sínum hjá háskól­anum. Hann heldur því stöðu sinni og launum en sinnir hvorki kennslu né rann­sóknum. Á skrif­stofu háskóla­rekt­ors feng­ust þau svör að mál­efni ein­stakra starfs­manna eru þar ekki rædd.

Mál Krist­jáns Gunnars er enn til með­ferðar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara en þar hefur það verið í um hálft ár, síðan í ágúst í fyrra. Rannsókn máls­ins lauk í júlí og var það þá sent ákæru­sviði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar er málið enn á borðum.

Kristinn Sig­ur­jóns­son tap­aði máli sínu gegn HR.

Kristján Gunnar er ekki fyrsti háskóla­lekt­or­inn sem fjallað hefur verið um opin­ber­lega síð­ustu miss­erin. Eins og frægt var var Krist­inn Sig­ur­jóns­son rek­inn úr stöðu lekt­ors við Há­skól­ann í Reykja­vík vegna um­mæla sem hann lét falla um kon­ur á Face­book. Um­mæl­in lét Krist­inn falla í lok­uðum Face­book-hópi sem nefn­ist Karl­mennsku­spjallið en þar sagði Krist­inn meðal ann­ars að kon­ur troði sér inn á vinnu­staði þar sem karl­menn vinna. Þá sagði hann að kon­ur eyði­leggðu vinnu­stað­ina því karl­menn eigi að „tala, hugsa og hegða sér eins og kerl­ing­ar, allt annað er áreiti“.

Kristinn bað íslensku þjóð­ina afsök­una á ummælum sínum en var engu að síður fljót­lega rek­inn vegna þeirra frá HR, nánar til­tekið í októ­ber 2018. Hann tap­aði jafn­framt skaða­bóta­máli sínu gegn háskól­anum. En Kristni bauðst síðar kennsla við HÍ þar sem hann hefur kennt við Tækni­fræði­setrið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi