Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hringbrautarfólk fékk milljónir og flug til Spánar: Vildu veiða gamla fólkið

Hringbrautarfólk fékk milljónir og flug til Spánar: Vildu veiða gamla fólkið
Sig­mundur Ernir til vinstri og sjón­varps­stjóri Hring­brautar til hægri

Mannlíf hefur undir höndum gögn sem benda sterk­lega til þess að Sjón­varps­stöðin Hring­braut hafi gerst brot­leg við fjöl­miðla­lög. Meint brot snýr að þætt­inum Einfalt að eld­ast sem frum­sýndur var í októ­ber 2019. Erindi þessa efnis hefur verið sent til Fjöl­miðla­nefndar til umfjöll­unar.

Til­gangur þátt­anna er að afla við­skipta­vina fyrir Helga­fell­rentals, íslenska leigu­miðlun á suður hluta Spánar, með því að höfða til eldra fólks á Íslandi. Helga­fell­rentals greiddi 2.1 milljón króna fyrir dag­skrár­gerð­ina ásamt því að fljúga með fimm manns til Spánar og greiða fyrir allan hóp­inn gist­ingu. Í hópnum var eldri kona, tengda­móðir sjón­varps­stjóra Hring­brautar, og leikur hún í þætt­inum konu í fast­eigna­hug­leið­ingum.

Umfjöllun sem greitt var fyrir í frétta­hluta og hvergi kemur fram að greitt hafi verið fyrir

Hvergi kemur fram í þætt­inum sjálfum eða í umfjöllun á heima­síðu Hring­brautar að um kost­aða aug­lýs­ingu sé að ræða. Umfjöllun á vef Hring­brautar er merkt frétta­hluta. Augljóst er sam­kvæmt samn­ingi og þætt­inum sjálfum að til­gang­ur­inn er að freista eldri borg­ara á Íslandi til að leiga íbúðir í lang­tíma­leigu af einu fyr­ir­tæki, Helga­fellirentals. Ýmis ein­kenni­leg lof­orð er að finna í samn­ingum á milli Hring­brautar og Helga­fells. Hring­braut lýsir t.d. yfir að þeir muni frum­sýna þætt­ina í húsa­kynnum Félags eldri borg­ara. Einnig segir í samn­ingnum að styttri kynn­ingum verði sent á eldra fólk í tölvu­póstum og nýta heima­síðu félags­ins til að kynna hvað Helga­fell­rentals hefur uppá að bjóða.

Hringbraut ítrekað brotið lög

Sjón­varps­stöðin Hring­braut hefur ítrekað verið sektuð fyrir að brjóta fjöl­miðla­lög. Árið 2018 var Hring­braut sektuð um tvær millj­ónir króna fyrir brot á reglum um aug­lýs­ingar. Var um fjóra mis­mun­andi þætti að ræða. Braut stöðin einnig gegn hlut­lægn­is­skyldu í tveimur þáttum.

Þá hefur Hring­braut verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að fram­leitt þátt um Samherja en dag­skrár­gerðin var kostuð af hinu umdeilda útgerð­ar­fyr­ir­tæki. Hring­braut braut einnig lög árið 2016 þegar stjórn­mála­flokkum var boðið að gera kynn­ing­ar­þætti á stöð­inni gegn því að kaupa aug­lýs­inga­pakka. Sjón­varps­stöðin Hring­braut er í eigu Torgs sem einnig gefur út Frétta­blaðið og DV.

Hönnuð atburðarás

Í þætti Hring­brautar segir að íbúðir Helga­fells séu á góðum kjörum og henti sér­stak­lega eldra fólki. Á Facebook-síðu Helga­fell­rentals er þriggja her­bergja íbúð í Quesada á 1000 evrur fyrir mán­uð­inn eða rúmar 150 þús­und krónur. Þykir það í hærra lagi. Á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins er nóttin sögð kosta um átta þús­und krónur.

Í þætt­inum eru Sig­mundur Ernir og tvær eldri konur að mestu í mynd. Atburða­rásin fer fram í Quesada sem er á suður­ Spáni, skammt frá Alicante og Tor­revi­eja.

Sig­mundur skálar við mód­elin tvö líkt og það er orðað í samn­ingnum.

Áhorf­endum er tjáð að til standi að kanna spænskan leigu­markað. Samkvæmt hand­riti sem Sig­mundur Ernir og eig­endur Helga­fells­rental sömdu í sam­ein­ingu er hönnuð atburða­rás þar sem tveimur eldri konum er fylgt eftir af þátta­gerð­ar­fólki Hring­brautar. Án efa telja sjón­varps­á­horf­endur að gömlu kon­urnar tvær séu í raun og veru í fast­eigna­leit. En ef rennt er yfir samn­ing­inn stendur þetta:

„Hugmynd að þáttum: Við fylgjum tveimur konum eftir í ferð­inni, önnur er 75 ára og hin 70 ára frá því að þær fljúga út, verða sóttar á flug­vell­inum og keyrðar í íbúð­ina, sá sem afhendir þeim íbúð­ina fer yfir með allt með þeim inni í íbúð­inni og hvaða þjón­usta er í boði.“

Guð­mundur Örn Jóhanns­son, sem stýrt hefur Hring­braut, skrifar undir samn­ing­inn. Þess má geta að tengda­móðir hans er annað mód­elið í ferð­inni. Þá segir einnig í samn­ingnum:

„Íbúðin er sýnd, sund­laug­ar­svæði, lækn­is­þjón­usta, veit­inga­staðir og hvað sé í boði á svæð­inu. Konurnar verða reglu­lega í mynd og þeim fylgt eftir. Sögu­maður þátt­anna verður Sig­mundur Ernir Rún­ars­son og mun hann taka við­tal við þá sem koma fyrir í þátt­unum. Sig­mundur Ernir vinnur hand­rit með Olav-form áður en haldið er af stað.“

Fast­eigna­salan Helga­fell sem er í eigu Olav-form ehf. er í algjöru aðal­hlut­verki í þætt­inum, sem von er eftir að hafa borgað 2.1. milljón og ferja hóp af fólki til Spánar. Það eru áhorf­endur ekki upp­lýstir um né þeir eldri borg­arar sem fyr­ir­tækið var að reyna að fá í við­skipti til Spánar með aðstoð Hring­brautar.

Heim­ild­ar­maður Mannlífs sem sendi gögn og upp­lýs­ingar um gerð þátt­ar­ins segir að honum þyki fram­ferði Hring­brautar og fast­eigna­fyr­ir­tæk­is­ins skammar­legt og þá sér­stak­lega í ljósi þess að hvaða þjóð­fé­lags­hópi hún bein­ist að.

„Í þessum „þætti“ reynir Hring­braut undir fölsku flaggi að freista þessa þjóð­fé­lags­hóps til að fjár­festa ævisparn­að­inum í fast­eignir á Spáni.“

Þá segir heim­ild­ar­mað­ur­inn að fram komi í þætt­inum að um skyn­sam­lega fjár­fest­ingu sé að ræða fyrir eldri borg­ara. En er hægt að treysta upp­lýs­ingum sem eru settar fram með þessum hætti? Hann bætir við að verið sé að afvega­leiða áhorf­endur.

Dæmið er í hans huga ein­falt. Hring­braut fær greitt á þriðju milljón og hópur fólks er flutt úr landi til Spánar til að fara með rullu í leik­riti. Til­gang­ur­inn sé að kom­ast í vasa eldra fólks á Íslandi og freista þeirra m.a. með því að frum­sýna þátt­inn í hús­næði Félags eldri borg­ara og nýta einnig tölvu­pósts­send­ingar.

Sig­mundur Ernir, dag­skrár- og rit­stjóri Hring­brautar, við­ur­kennir að hér hafi verið á ferð­inni kostuð umfjöllun, eins og algengt sé á fjöl­miðla­mark­aði. Í sam­tali við Mannlíf taldi hann að umrætt sjón­varps­efni hafi verið merkt sem kynn­ing. „Við merkjum svona yfir­leitt ekki sem fréttir. Ef ég man rétt er þetta að minnsta kosti merkt sem kynn­ing í kredit­lista, við erum alveg ófeimin við að merkja kynn­ingar. Það má hver hafa sína skoðun en við höfum fram­leitt fjöl­marga kost­aða þætti af fyr­ir­tækjum og félögum úti í bæ, í sam­keppni við RÚV.“ segir Sig­mundur Ernir og bætir við:

„RÚV hefur verið með kost­aða þætti án þess að merkja þá, það er bara meira falið hjá þeim. Við höfum feimn­is­laust stundað þessa iðju. Í þessu skiptir höfuð máli að merkja sem kynn­ingu, það er almenna reglan, og við gerum það eftir bestu vit­und. Ef það hefur ekki verið gert í þessu til­viki hefur það verið yfir­sjón en ég man ekki betur en það hafi verið.“

Samkvæmt fjöl­miðla­lögum eru allar lýkur á að Hring­braut, sem er í eigu Torgs, hafi brotið minnst tvenn lög með gerð aug­lýs­ing­ar­innar.

Hér má svo sjá kost­aðan þátt Hring­brautar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi