Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Morðið í Rauðagerði: Þrír handteknir í nótt

Morðið í Rauðagerði: Þrír handteknir í nótt
Mynd til hægri / Skjáskot af mynd­skeiði af vef Rík­is­út­varps­ins ruv.is

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs voru þrír menn hand­teknir í sum­ar­bú­stað á Suð­ur­landi í nótt vegna morðs­ins í Rauða­gerði um helg­ina. Það var sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra, stundum kölluð Vík­inga­sveitin, sem sá um hand­tök­una.

Einn hinna hand­teknu er Íslend­ingur og hinir tveir af erlendum upp­runa. Hjá mið­lægri rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar fékkst það stað­fest að hand­tökur áttu sér stað en að öðru leyti varð­ist hún allra frétta um hversu margir voru hand­teknir og hvar. Lög­reglan boðar til­kynn­ingu þessa efnis á eftir.

Lög­reglan leit­aði að Íslend­ingi vegna morðs­ins við Rauða­gerði. Rétt fyrir mið­nætti á laug­ar­dag var fer­tugur maður tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Maðurinn var faðir, unnusti og áttu þau von á sínu öðru barni. Maðurinn var nýbú­inn að leggja öku­tæki inni í bíl­skúr og var að ganga að úti­dyr­unum þegar hann var myrtur. Talið er að morð­ing­inn hafi verið far­þegi í bíl er ekið var fram­hjá hús­inu og skotið unga fjöl­skyldu­föð­ur­inn með skamm­byssu, svo hann lést af sárum sínum. Maðurinn var úrskurð­aður lát­inn við kom­una á Land­spít­al­ann.

Karl­maður frá Litháen situr nú í gæslu­varð­haldi en hann var hand­tek­inn í Garðabæ. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur lög­reglan haft íslenskan karl­mann undir smá­sjánni en hver sá maður er hefur lög­regla ekki viljað gefa upp.

Íslensk þjóð er í áfalli og þá hafa fregnir af hinu kald­rifj­aða morði slegið marga í und­ir­heimunum. Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að nokkur dæmi séu um að fólk tengt hinum hörðu íslensku und­ir­heimum hafi ákveðið að yfir­gefa höf­uð­borg­ina. Menn sem kalla ekki allt ömmu sína í und­ir­heimunum hafa margir aldrei séð nokkuð í lík­ingu við aftök­una við Rauða­gerði. Þó þeir teng­ist mál­inu ekk­ert telja þeir hag sínum betur borgið í sum­ar­bú­stað úti á landi á meðan stærstu skjálft­arnir í und­ir­heimunum ganga yfir og varpað er ljósi á málið. Í hinum ýmsu sauma­klúppum und­ir­heimanna eru flökku­sög­urnar og kjafta­sög­urnar vinn­ing­inn og fáir sem vita í raun og veru hver ástæðan var sem lá að baki. Á meðan telja sumir tengdir und­ir­heimunum að betra sé að halda sig í vari í sveit­inni.

Uppfært kl. 10:39

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendi frá sér til­kynn­ingu rétt í þessu þar sem stað­fest er að menn­irnir voru hand­teknir í nótt í viða­miklum lög­reglu­að­gerðum. Fram­kvæmdar voru hús­leitir í höf­uð­borg­inni og utan hennar. Að öðru leyti gefur lög­reglan ekki frek­ari upp­lýs­ingar um málið að svo stöddu.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi