Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Júlía er brotin og segir stopp: „Mig langar í líf með honum en mig langar ekki að lifa í þessu“

Júlía er brotin og segir stopp: „Mig langar í líf með honum en mig langar ekki að lifa í þessu“

„Sið­leysið er svo yfir­gengi­legt. Það fer öll heil­brigð skyn­semi út um glugg­ann. Það sem ég hef aldrei getað skilið er hvernig getur hann gert mér þetta ef hann elskar mig?

Þetta segir kona á miðjum aldri sem hefur verið í sam­bandi með spilafíkli í níu ár. Hún vill ekki koma fram undir nafni en verður fram­vegis kölluð Júlía. Saga hennar er sögð á Facebook-síð­unni Lokum. Mark­miðið er að leiða íslensku þjóð­ina í sann­leik­ann um hve skað­leg fíknin er í spila­kassa. Þar má finna fjöl­margar aðrar reynslu­sögur.

„Hann sagði mér á fyrsta deiti að hann væri spilafík­ill,“ segir Júlía. „Ég bara gerði mér enga grein fyrir hvað það þýddi. Ég vissi ekki að þetta væru hund­ruð þús­unda og millj­ónir sem færu í þetta,“ bætir hún við, en þegar hún kynnt­ist kærasta sínum var hann gjald­þrota vegna þeirra skulda sem hann hafði safnað upp vegna spilafíknar.

Á þessum níu árum hefur kær­asti Júlíu verið spila­laus í ein­hvern tíma, svo fallið, lofað bót og betrum og síðan end­ur­tekur sagan sig. Núna um ára­mótin fékk Júlía nóg, þegar hún komst að því að kærast­inn hafði verið að spila allt árið 2020 og steypt sér í margra millj­óna króna skuld. Í stað­inn fyrir að öskra og hóta öllu illu, eins og hún hafði áður gert, ákvað Júlía að gefa kærast­anum loka­séns – hún lof­aði að hún skyldi styðja hann í sínum bata en gerði honum jafn­framt fylli­lega grein fyrir því að hún væri ekki viss hvort hún myndi tóra í þessu sam­bandi.

„Núna virkar eins og hann vilji þetta – eins og hann vilji ná bata. Ég er samt svo brotin að ég veit ekki hvað ég tóri eða hvort ég tóri í þessu sam­bandi. Hann var að spila allt síð­asta ár og ég spurði hann oft um það. Hann þvertók fyrir að hann væri að spila og sagð­ist ekki hafa neina löngun í það. Svo sið­laust verður fólk með spilafíkn að það lýgur beint upp í opið geðið á manni.

Við áttum smá pen­ing sem er far­inn og hann fékk auk þess lánað hjá for­eldrum sínum. Vanalega hef ég notað vara­sjóð­inn okkar í að borga upp skuld­irnar hans en núna setti ég honum stól­inn fyrir dyrnar. Ég sagði honum að hann þyrfti að fá sér auka­vinnu til að borga þetta niður því þetta er ekki mitt. Hann þarf að semja um sínar skuldir og þá náum við að sigla lygnan sjó í fjár­mál­unum. Ég er bara guðs lif­andi fegin að við keyptum ekki íbúð. Hann væri pott­þétt búinn að veð­setja hana.“

Júlía sá alltaf fram­tíð með þessum manni – var viss um að þau yrðu gömul saman og myndu eyða ell­inni á suð­rænum slóðum. Nú er hún ekki viss.

„Ég elska hann rosa­lega mikið. Hann er svo góður maður og góður við börnin mín og barna­börn. Við eigum mjög gott sam­band. Við erum jafn­ingjar og ríf­umst aldrei. Mig langar í líf með honum en mig langar ekki að lifa í þessu. Ég get ekki boðið sjálfri mér upp á þetta. Það er ógeðs­legt að lifa við þetta. Hann er búinn að falla sjö sinnum og það brotnar alltaf meira inni í mér smátt og smátt. Hann veit að hann drepur sjálfan sig á þessu, en vill hann virki­lega missa það sem við eigum? Missa af lífi barna og barna­barna? Er þetta það sem hann vill?“

Júlía segir lífið með spilafíkli ein­kenn­ast af skömm. Skömm að eiga mann sem getur ekki tekið á spilafíkn­inni sinni. Skömm yfir því að geta ekki aðstoðað börnin sín fjár­hags­lega vegna spilafíknar kærastans. Óöryggið sem fylgir því að geta aldrei treyst á makk­er­inn sinn. Á meðan hún gerir upp hug sinn hvort hún vill eyða því sem eftir lifir ævinnar með kærast­anum ætlar Júlía núna að huga að sinni eigin and­legu heilsu.

„Ég er búin að vera í nið­ur­sveiflu síðan ég komst að því að hann hefði spilað allt síð­asta ár. Ég reyni að minna mig á að ég stjórna honum ekki og að þetta sé ekki mér að kenna. Ég hefði gott af því að tala við sál­fræð­ing og vinna úr minni með­virkni og standa með sjálfri mér. Ég þarf að vera dug­legri að hug­leiða og ein­blína á mig því ég breyti honum ekki. Ég þarf að gera meiri hluti sem gleðja mig. Ég þarf ekki að skamm­ast mín því ég ræð því ekki hvort mað­ur­inn minn er spilafík­ill. Hann er að vinna í sínum bata og það þarf ég að gera líka, því ég er í henglum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi