Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, gerir lítið úr umfjöllun Kveiks í gær og segist ekki tapa svefni út af þættinum. Morgunblaðið birtir í dag einstaklega vinalegt viðtal við hann en Samherji átt allnokkurn hlut í blaðinu þar til sá hlutur var afhentur Eyþóri Arnaldssyni, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Bæði í fyrirsögn og meginmáli er vitnað í orð Þorsteins um að hann sofi vel þrátt fyrir alvarlegar ásakanir.
Kveikur fjallaði í gær um að félög í eigu Samherja hafi átt í milljarða viðskiptum með fisk og lánað hvort öðru. Hjarta erlendrar starfsemi útgerðarinnar var sögð í borginni Limassol á Kýpur. Kveikur sagði það viðeigandi að miðpunktur rannsóknar íslenskra yfirvalda á Samherja væri þar einnig, miðað við gögn úr nýlegum dómsmálum á Íslandi. Hér má nánar lesa um málið.
Þorsteinn virðist ekki óttast þessa rannsókn. „Ég verð ekki andvaka yfir þessum þætti í nótt,“ er haft eftir honum. Hann segir hægt að hrekja allt sem kom fram í þættinum. „Þarna kemur ekkert fram sem ekki er hægt að hrekja. Verulegar skattgreiðslur voru greiddar til Íslands vegna skipa sem aldrei komu til Íslands,“ segir Þorsteinn. Líkt og áður gremst honum að RÚV veiti ekki aðgang að heimildum sínum. „RÚV hefur mikið af gögnum sem enginn annar hefur og sýndi okkur engin gögn.“





















Athugasemdir