Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tobbu langaði að skalla ótuktina með fögru andlitinu: Yrði krýnd ungfrú Ísland ef fita færi af baki

Tobbu langaði að skalla ótuktina með fögru andlitinu: Yrði krýnd ungfrú Ísland ef fita færi af baki
Tobba Marinós

Tobba Marínós, rit­stjóri DV hefði getað orðið ung­frú Ísland ef hún hefði misst nokkur kíló. Hún hafði æft af kappi og var orðin vel hraust. Hún þyrfti bara að skafa aðeins af sér nokkur kíló og losna við þetta feita bak.

Þessi orð lét einka­þjálf­ari falla og Tobba var aðeins tví­tug og sátt í eigin skinni. Hún var kven­kyns. Eldri kona. Hún brosti bara þegar hún hafði látið ósómann út úr sér. Tobba segir að hún hefði mögu­lega skallað hana með fal­lega and­lit­inu sínu ef hún hefði ekki verið að púla við að skokka á hlaupa­bretti. DV kom út í dag og í leið­ara rit­stjór­ans, Tobbu Marínós, opnar hún sig um mik­il­vægi þess að þeir sem taki að sér það mik­il­væga hlut­verk að vera læri­meist­arar okkar, geri það af virð­ingu og jákvæðni. Miklu máli skiptir að tala ekki fólk niður, heldur byggja það upp. Þá segir hún að „píptest“ sé eitt það glat­að­asta í ver­öld­inni til að mæla styrk fólks.

Tobba segir í leið­ar­anum að hún hafi orðið gap­andi hissa. „Ég var of þung sem barn en fékk svo mik­inn áhuga á lík­ams­rækt þegar ég var 15 ára og kom mér í gott form,“ segir Tobba sem var í topp­formi á þessum tíma.

Konan hafði sagt orð­rétt: „Ef þú myndir missa nokkur kíló þá gætir þú orðið ung­frú Ísland.“ Hún hætti ekki þar og hélt áfram: „Já það þarf bara að skafa aðeins af þér. Af bak­inu. Þú ert með svo fal­legt and­lit nefni­lega,“ sagði konan og bætti við að hún gæti hjálpað henni að megra bak hennar.

Tobba velti fyrir sér hver merk­ingin væri þegar fólk segir: „Hún er svo and­lits­fríð“. Þýddi það þá að aðrir lík­ams­partar væru ljótir.

„Ef ég hefði ekki verið á ferð hefði ég mögulega skallað hana með fallega andlitinu mínu. Í staðinn sagðist ég ætla að hugsa málið og jók hraðann á brettinu.“

Reglu­lega gerir þessi minn­ing vart við sig og þá ber hún saman þessar athuga­semdir við fram­komu leik­fi­mi­kenn­ara, afreks­konu í lík­ams­rækt, sem kenndi Tobbu í grunn­skóla.

„Hún tal­aði aldrei niður til okkar „gelgj­anna“ heldur benti okkur frekar á það sem hún hefði viljað gera öðru­vísi. Hún sagð­ist sjá mikið eftir því að hafa hangið í ljósa­bekkjum sem ung kona og hafa mis­þyrmt á sér húð­inni. Hún hvatti okkur til að vera alltaf með hollan bita á okkur. Fyrst í skóla­tösk­unni og síðar þegar hún varð einn eft­ir­sótt­asti lík­ams­rækt­ar­kenn­ar­inn í bænum og við „gelgj­urnar“ að full­orðn­ast þá sagði hún okkur að hafa hollan bita í vesk­inu. Borða alltaf nóg af hollum mat.“

Aldrei hefði þessi kona nið­ur­lægt Tobbu og viljað bjarga henni frá feitu baki. Hún hvatti nem­endur sína óspart áfram og skor­aði á þau að fara út fyrir sinn þæg­ind­ara­mma. Á end­anum fann Tobba fjöl­ina sína í lík­ams­rækt og var dag­legur gestur í salnum. Þegar íþrótta­kenn­ari í skól­anum frétti af því fékk hann hana til að kenna sam­nem­endum sínum. Sá kenn­ari byggði einnig upp nem­endur.

„Aldrei var einn tek­inn niður til að stækka annan.“

Það varð til þess að hún hætti að „skæla af kvíða“ ef „píptest“ var yfir­vof­andi og hlakk­aði til að takast á við það og finna styrk lík­am­ans.

„Vitandi að það væri í góðu lagi að geta svo ekki meira. Að því sögðu er „píptest“ samt eitt það glat­að­asta sem ég veit um,“ segir Tobba og bætir svo við:

„En hvað veit ég, með mitt feita bak.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi