Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einangrunin rofin í Mjólká: Steinar slapp undan snjóflóðinu

Einangrunin rofin í Mjólká: Steinar slapp undan snjóflóðinu
Steinar R. Jónasson stöðv­ar­stjóri Mjólk­ár­virkj­unar. Mynd: Reynir Traustason

„Þegar ég kom hingað fyrst voru fjöl­skyldur í fjórum húsum.  Við hjónin vorum til dæmis með þrjú börn. Þá var kenn­ari á staðnum og því ekk­ert vanda­mál með kennslu fyrir börnin. Skóla­haldið hér var útibú frá Grunn­skól­anum á Þingeyri. Þrátt fyrir að vera aflokuð hér á vetrum var alltaf nóg að gera og engum leidd­ist hérna“ segir Steinar R. Jónasson, stöðv­ar­stjóri hjá Orkubúi Vest­fjarða í Mjólk­ár­virkjun í Arn­ar­firði.
Bylting hefur orðið í sam­göngum við virkj­un­ina eftir að Dýra­fjarð­ar­göngin voru tekin í notkun. Svo er veg­ur­inn suður um Dynj­and­is­heiði mok­aður í hverri viku, eitt­hvað sem eng­inn hefði látið sér til hugar koma fyrir fáum árum.
Steinar segir lít­inn snjó á heið­inni og snjó­mæl­ingar und­an­far­inna ára gefi fyr­ir­heit um góðan vetr­ar­veg á heið­inni þegar lokið verður við að leggja nýjan veg þar um í stað þess sem tek­inn var í notkun 1959 og enn er ekinn.
„Veturinn núna er bara spaug og allt snjó­laust, sem er ótrú­lega þægi­legt, ekki síst fyrir verk­tak­ana sem eru að vinna í nýja veg­inum. Vetur hér eru oftar en ekki afar harðir og erf­iðir. Síðasti vetur byrj­aði með hvelli 10. des­em­ber og stóð til vors og vel það,“ segir Steinar.

Hann lýsir því hvernig menn gátu verið í háska við að brjót­ast á milli húsa þegar óveður geysuðu.

„Það eru um 60 metrar frá íbúð­ar­hús­unum að stöðv­ar­hús­inu. Þessi leið hefur stundum vaf­ist fyrir okkur í vetr­ar­veðrum þegar ekk­ert sést og storm­ur­inn eirir engu. Það hefur komið fyrir að við höfum hrak­ist undan veðri hér niður að‘ girð­ingu sem við höfum svo getað skriðið með­fram á leið okkar í stöðv­ar­húsið. Þá var hvasst.“
Síðustu ár hafa starfs­menn ekki verið með fjöl­skyldur sínar á staðnum heldur verið í skemmri úthöldum og skipst á við­veru í orku­ver­inu.
Ekki er lengur mögu­legt að halda úti grunn­skóla­kennslu í Mjólká þannig að starfið hefur verið gert fjöl­skyldu­vænna.

Starfs­menn fengu vörur og nauð­synjar oft­ast með bátum frá Bíldudal en einnig var fólk og varn­ingur ferjað með snjó­bíl yfir hina hrika­legu Hrafns­eyr­ar­heiði. Leiðin frá Mjólk­ár­virkjun og út með Arn­ar­firð­inum að heið­inni er ekki alveg hættu­laus á vetrum.
Snjóflóð eru þar tíð hlíðin erfið hvar hún er afar brött í sjó fram.

Stundum var hvorki hægt að kom­ast á vélsleðum né snjó­bíl

„Við fórum á vélsleðum á móti snjó­bílnum. Þetta slapp ótrú­lega vel, stundum komu flóð nærri okkur en það var bara einu sinni sem við lentum í flóði. Við vorum rétt komnir upp Mann­tapa­gilið og vorum stopp­aðir hjá Gunnari Sig­urðs­syni sem var á snjó­bílnum þegar fjallið fór allt af stað. það var fleka­hlaup sem mjak­að­ist af stað, Gunnar náði að snúa bílnum undan og keyrði fulla ferð með flóð­inu. Það var sér­kenni­leg upp­lifun en, eins og venju­lega slapp þetta til. Stundum var hvorki hægt að kom­ast á vélsleðum né snjó­bíl, þá var ekk­ert annað í boði en að ganga yfir heið­ina ef þörf var á að kom­ast, það var stundum erfitt í vondum veðrum en nú er þetta allt úr sög­unni. Nú er ekið inn­an­húss nán­ast beint frá virkj­un­inni og yfir í Dýra­fjörð,“ segir Steinar og vísar til hinna nýju jarð­gangna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi