Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur Sigfússon er látinn: Einstakur maður sem hjálpaði svo mörgum

Sigmundur Sigfússon er látinn: Einstakur maður sem hjálpaði svo mörgum
kerti

Sig­mundur Sig­fús­son, fyrr­ver­andi yfir­læknir geð­lækn­inga á Sjúkra­hús­inu á Akureyri, er lát­inn 75 ára að aldri. Hann fædd­ist í Reykja­vík 26. júlí 1945 en lést á heim­ili sínu á Akureyri 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Greint er frá and­láti þessa merka manns í Morg­un­blað­inu og á Akureyri.net Sig­mundur hafði gríð­ar­lega mikil mót­andi áhrif á sam­fé­lag sitt. Frá haustinu 1980 vann hann við að móta með­ferð­ar­starf á nýrri geð­deild Land­spít­ala 32C og árið 1984 gerð­ist hann yfir­læknir geð­lækn­inga á Sjúkra­hús­inu á Akureyri. Einnig var Sig­mundur um tíma aðstoð­ar­land­læknir.

Sigmundi er lýst sem hlýjum, víð­sýnum, gáf­uðum. Þol­in­móður, hóg­værum , traustum og húmor­ískum hæfi­leika­manni. Yfir Sigmundi ríkti kyrrðin, hann kunni að hlusta, skilja, sýndi hlýju, stóð ekki á sama og virt­ist hafa fleiri klukku­tíma í sól­ar­hringnum en aðrir. Virðing um­fram allt var það sem kór­ónaði sam­skipti hans við sjúk­linga.

Frá haustinu 1980 vann hann við að móta með­ferð­ar­starf á nýrri geð­deild Land­spít­ala 32C og árið 1984 gerð­ist hann yfir­læknir geð­lækn­inga á Sjúkra­hús­inu á Akureyri. Einnig var Sig­mundur um tíma aðstoð­ar­land­læknir.

Þar var fyrir Brynjólfur Ingv­ars­son geð­læknir, sem líkt og Sig­mundur var hallur undir þær stefnur í geð­lækn­ingum sem kenndar eru við sam­fé­lags­lækn­ingar og við­tals­með­ferð.

Sig­mundur var ráð­gjafi land­læknis til 1998 og átti fyrir atbeina þess emb­ættis sæti í ýmsum stjórn­skip­uðum nefndum. Eftir starfs­lok á geð­deild sjúkra­húss­ins á Akureyri vorið 2016 rak Sig­mundur mán­að­ar­lega geð­lækn­is­mót­töku við Heilsu­gæslu­stöð­ina á Egils­stöðum til árs­loka 2018.

Ein helsta tóm­stunda­iðja Sig­mundar á Akureyri var söngur, m.a. í Pass­íukórnum og Kam­merkórnum Hymnodíu.

Fyrri eig­in­kona Sig­mundar var Ingi­björg Bene­dikts­dóttir. Þau giftu sig 1973 en skildu 1999. Ingi­björg lést 2007. Þau eign­uð­ust fjóra syni, Marjón Pétur, Sigfús Þór, Benedikt og Harald.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Sig­mundar er Ingiríður Sig­urð­ar­dóttir. Þau gengu í hjóna­band árið 2000 og stofn­uðu heim­ili að Kringlu­mýri 3 á Akureyri. Dóttir Ingiríðar er Steinunn Arnbjörg Stef­áns­dóttir.

Sig­mundur verður jarð­sung­inn í dag 22. febr­úar frá Akur­eyr­ar­kirkju.

Fjöl­margir minn­ast Sig­mundar í minn­ing­ar­greinum og á sam­fé­lags­miðlum.

Erna Hjaltested segir:

Hann hafði sterka rétt­lætis­kennd, var hlýr, íhug­ull og víð­sýnn. Hann hafði mik­inn áhuga á tón­list, sögu, list­um, menn­ingu og sam­fé­lags­mál­um, söng í kór og tók þátt í flokks­starfi Vinstri-grænna. Það var eins og hann hefði fleiri klukku­tíma í sól­ar­hringn­um en við hin. Þá heyrðum við stund­um í hon­um síðla kvölds þar sem hann var að skrifa vott­orð fram á nótt.

Snjó­laug G. Ólafs­dótt­ir og Har­ald­ur Briem segir:

„Sig­mund­ur var há­vax­inn og svip­mik­ill, góðum gáf­um gædd­ur og mik­ill náms­maður. Hann hafði hljóm­mikla bassa­rödd og var söng­maður góður. Gat verið hrók­ur alls fagn­aðar, ef því var að skipta.“

Brynj­ólf­ur Ingvars­son segir:

Þunga­vigt­ar­menn meðal lækna og stjórn­mála­manna veittu þess­um hóg­væra hæfi­leika­manni eft­ir­tekt. Það var fljótt sóst eft­ir hon­um til op­in­berra ábyrgð­ar­starfa. Hann valdi hins veg­ar hefð­bund­in lækn­is­störf.

Lengst verður hans ef­laust minnst fyr­ir glæst­an fer­il á Ak­ur­eyri. Þetta hófst 1984, þegar hann kom norður, til að byggja upp bráða­geð­deild sjúkra­húss­ins. Hann sýndi óvenju­lega fram­sýni og fyr­ir­hyggju um starf­sem­ina, sem varð seinna þekkt um land allt og nefnd Ak­ur­eyr­armód­elið. Aðals­merki þess var heild­ar­sýn og vand­lega skipu­lagðar teng­ing­ar við alla þætti vel­ferðar­kerf­is bæði í ná­grenn­inu og öðrum lands­hlut­um.

Sam­starf okk­ar Sig­mund­ar hófst haustið 1984. Hann varð strax stunda­kenn­ari við heil­brigðis­deild hins ný­stofn­aða há­skóla á Ak­ur­eyri. Hann sett­ist í stjórn lækn­aráðs FSA. Þetta sýndi til fulls, að hér var kom­inn óum­deild­ur þunga­vigt­armaður í raðir lækna FSA, aðeins fer­tug­ur að aldri. Lækn­is­starfið hafði for­gang, eins og al­gengt er í okk­ar stétt. Við unn­um sam­an nær óslitið í 27 ár, 1984-2011, og bar aldrei skugga á, enda var hann þeirr­ar gerðar sem yf­ir­maður, að á betra varð ekki kosið.

Magnús Skúla­son segir:

Sig­mund­ur var unn­andi menn­ing­ar og lista og nátt­úru lands­ins. Mann­kosta­maður í bestu merk­ingu. Hjálp­semi og ósér­hlífni voru hans aðals­merki. Vinátta hans og góð­vild gleym­ist ekki. Vin­um hans öll­um og aðstand­end­um votta ég ein­læga samúð.

Ólaf­ur Ólafs­son, fyrrv. land­lækn­ir segir:

Sig­mund­ur var traust­ur, ráða­góður og kær vin­ur með góðan húm­or. Hann var sá fyrsti sem gegndi stöðu aðstoð­ar­land­lækn­is. Síðar unn­um við mikið sam­an. Milli okk­ar Sig­mund­ar skap­að­ist góður vin­skap­ur og vor­um við með svipuð áhuga­mál.

Sig­mund­ur var góður lækn­ir, vel les­inn í fræð­unum og fram­fara­s­inn­aður í hugs­un. Sam­starf okk­ar var mjög gott og vin­átt­an kær.

Ég kveð góðan og kær­an vin og sendi Ingu og son­um Sig­mund­ar mín­ar hlýj­ustu sam­úð­ar­kveðjur.

Karl Reyn­ir Ein­ars­son, formaður Geðlækna­fé­lags Íslands segir:

„Þeir sem unnu und­ir hans stjórn höfðu því al­mennt mikið frelsi í sín­um störf­um. Eins og óhjá­kvæmi­legt er hjá mönn­um í ábyrgðar­stöðum kom fyr­ir að sótt var hart að hon­um en sýndi þá iðu­lega ótrú­lega skap­still­ingu og ró­semi.

Hæg­látt fas og hlýtt við­mót mætti einnig skjól­stæð­ing­um hans sem kunnu að meta að geta talað við hann á jafn­inga­grund­velli og finna að það var hlustað án alls hroka.

Mörg­um sinnti hann árum og jafn­vel ára­tug­um sam­an en ekki var óal­gengt að hann hefði hjálpað fleiri en einni kyn­slóð sömu fjöl­skyldu. Trú hans á fólki átti ekki síst við um hans skjól­stæð­inga. Sama hvað hafði gerst, þá var alltaf von um bata og betra líf og ósjald­an að fólk, sem glímdi við mik­il veik­indi, leit­aði til hans per­sónu­lega og keyrði jafn­vel lands­horna á milli til að hitta hann.

Sveinn Rún­ar Hauks­son segir:

Sig­mundur var rót­tæk­ur í skoð­unum og ég minn­ist þess frá há­skóla­ár­un­um að eiga traust­an banda­mann í bram­bolti mínu í stúd­entapóli­tík.

En nán­ustu kynni okk­ar urðu þegar hann varð minn geð­lækn­ir og ég veit að ég tala fyr­ir munn margra skjól­stæð­inga Sig­mund­ar, að hann var ein­stak­ur lækn­ir. Mig grun­ar að hann hafi aldrei lært á klukku og ekki átt úr. Slík tæki komu ekki við sögu þegar Sig­mund­ur var í við­tali. Enda er ég hrædd­ur um að vinnu­dag­ur­inn hafi oft orðið óskap­lega lang­ur, þótt hann tæki ekki eft­ir því sjálf­ur, en kannski frek­ar strák­arn­ir og Ingurnar hans.

Kyrrðin sem var æv­in­lega yfir Sig­mundi, ein­stak­ur hæfi­leiki til að hlusta, ekki bara á sögð orð held­ur það sem reynt var að segja, ein­kenndi þenn­an sam­tals­meist­ara. Hann reyndi að skilja hvern og einn, sýndi hlýju, sam­kennd og að hon­um stóð ekki á sama. Virðing um­fram allt var það sem kór­ónaði sam­skipti hans við sjúk­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi