Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frægustu símtöl ráðherra Sjálfstæðisflokksins

Frægustu símtöl ráðherra Sjálfstæðisflokksins

Ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa ítrekað komið sér í vand­ræði með umdeildum atvikum sem margir hafa kallað dóm­greind­ar­brest. Þannig komst til að mynda upp um brot Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á sótt­varn­ar­lögum með frægri heim­sókn hans í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu en það var sögu­leg dag­bók­ar­færsla lög­reglu sem upp um hann kom. Fræg ljós­mynd kom síðan upp um ferða­mála­ráð­herr­ann Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur á brot­legum Covid-vin­kvenna­hitt­ingi síð­ast­liðið sumar. Ekki löngu síðar var Áslaug Arna Sig­ur­björs­dóttir dóms­mála­ráð­herra gagn­rýnd fyrir að láta þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar sækja sig austur á land og skutla sér aftur til­baka í hesta­ferð að loknum vinnufundi í borg­inni.

Sótt var að Þórdísi Kolbrúnu eftir umdeildan Covid-vin­kvenna­hitt­ing.

Í öllum ofan­greindum til­vikum var hart sótt að ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og víða kallað eftir afsögnum þeirra vegna fram­ferði þeirra. Öll sitja þau enn og halda sum hver áfram að koma sér í frétt­irnar með klaufa­gangi og vafasömum sím­tölum. Af því til­efni ákvað Mannlíf að rifja upp fræg­ustu sím­töl ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins á liðnum árum.

Rándýrt símtal

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóri kemur við sögu í fyrsta sím­tali. Þá hringdi Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í Davíð Oddsson. Dagurinn er 6. októ­ber 2008. Þann dag voru neyð­ar­lögin sett á hér­lendis vegna Hrunsins.

Hvorki Geir né Davíð bjugg­ust við því að fá lánið end­ur­greitt.

Í umræddu sím­tali ræddu Davíð og Geir örlög banka­kerf­is­ins og sam­mælt­ust um að Seðla­bank­inn, sem Davíð þá stýrði, myndi veita Kaup­þingi 500 milljón evra lán þennan dag. Lengi vel hvíldi leynd yfir sím­tali tví­menn­ing­anna og það var ekki fyrr en tæpum ára­tug síðar sem afrit af sam­tal­inu var loks­ins birt.

Tveimur dögum eftir að Davíð og Geir sam­mælt­ust um lánið hrundi Kaupþing og tap­aði Seðla­bank­inn um and­virði 35 millj­arða króna á þessu láni.

Seðla­banki Íslands lán­aði Kaup­þingi 500 millj­ónir evra 6. októ­ber 2008, korteri fyrir hrun. Þessi upp­hæð var stór hluti gjald­eyr­is­vara­forða þjóð­ar­innar á þessum tíma­punkti. Kaupþing hrundi tveimur dögum síðar og Fjár­mála­eft­ir­litið tók yfir rekstur þess þann 9. októ­ber 2008. Seðla­bank­inn tap­aði um 35 millj­örðum á lán­inu.

Í sam­tali Davíðs og Geirs kom greini­lega fram að þeir áttu ekki von á því að fá hið stóra lán nokkurn tím­ann til­baka. Davíð sagði meðal ann­ars:

„Ég býst við því að við fáum þessa pen­inga ekki til baka“

Skellti á Bjarna

Í des­em­ber 2009 var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sak­aður um að hafa hringt í Hrein Loftsson, sem þá var útgef­andi DV, með það fyrir augum að stöðva umfjöllun blaðs­ins á tengslum Bjarna við gruggugar fjár­fest­ingar Makaó. Bjarni vís­aði þessu hins vegar á bug:

„Ég hef aldrei farið fram á að Hreinn Loftsson stöðv­aði frétta­flutn­ing DV.“
Bjarni Bene­dikts­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Bjarni við­ur­kenndi aftur á móti að hafa hringt í Hrein vegna frétta­flutn­ings DV á þessum tíma. Mark­miðið hafi verið að segja skoðun sína á óásætt­an­legum vinnu­brögðum blaða­manns, í þessu til­viki Inga Freys Vil­hjálms­sonar sem nú starfar á Stund­inni. Bjarni sagð­ist ekki hafa náð að koma skoðun sinni að:

„Áður en ég hafði haft tök á að fara yfir sam­skipti mín við blaðið æsti Hreinn sig, sagð­ist ekki lúta mínu boð­valdi og sagði mér að eiga sam­skipti um þetta við rit­stjórn blaðs­ins. Að svo búnu skellti hann á.

Bolla, bolla, bolla

Davíð og Hreinn koma líka við sögu í næsta sím­tali. Á bollu­deg­inum árið 2013 hringdi Davíð, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í Hrein, þáver­andi stjórn­ar­for­mann Baugs. Tilefnið var meint mútutil­raun Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, fyrrum for­sprakka fyr­ir­tæk­is­ins, sem Davíð síðar varp­aði sem sprengju í útvarps­við­tali á umræddum bollu­degi. Hann full­yrti að Jón Ásgeir hefði boðið sér 300 millj­ónir í mútur og vís­aði í sam­tal þeirra Hreins á hót­el­her­bergi í Lundúnum.

Hreinn Loftsson, sem í dag aðstoðar Áslaugu Örnu dóms­mála­ráð­herra.

Hreinn, sem var gam­all vinur Davíðs og aðstoð­ar­maður hans lengi, full­yrti að orðin sem for­sæt­is­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi vís­aði til hefður fallið í hálf­kær­ingi enda verið lítið annað en fyllirís­röfl gam­alla vina.

„Mistök af minni hálfu“

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði af sér emb­ætti í Leka­mál­inu svo­kall­aða og var í því meðal ann­ars harð­lega gagn­rýnd fyrir afskipti sín af rann­sókn lög­reglu á mál­inu. Afskiptin fólust í ítrek­uðum sím­tölum hennar við Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir. Mynd / Skjáskot RÚV.

Tryggvi Gunn­ars­son, sem nýlega til­kynni að hann muni stíga af stóli sem umboðs­maður Alþingis, gagn­rýndi mjög sam­skipti Hönnu Birnu við Stefán. Hún bað lög­reglu­stjór­ann fyrr­ver­andi síðar afsök­unar á afskiptum sínum sem hafi ekki að ölllu leyti verið rétt­mæt:

„Það voru mis­tök af minni hálfu að eiga sam­skipti við lög­reglu­stjór­ann vegna rann­sókn­ar­innar meðan hún stóð yfir. Ég hefði ekki átt að eiga í nokkrum sam­skiptum við lög­reglu­stjór­ann vegna hennar.“

Hvernig líður þér, vinur?

Það fyrsta sem Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra gerði eftir að hafa séð umfjöllun um meint lög­brot, stór­felldar mútur og sið­lausa fram­komu útgerð­ar­fyr­ir­tæks­ins Samherja í Namibíu, var að hringja í vin sinn og for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Þorstein Má Bald­vins­son, og spyrja hvernig honum liði.

Óhætt er að segja að Krist­jáns hafi fengið á bauk­inn fyrir sím­talið. Sjálfur skýrði hann það með eft­ir­far­andi hætti:

„Ég var bara að spyrja hvernig honum liði ein­fald­lega“

Lík­legt er að sím­tal Krist­jáns til útgerð­ar­manns­ins komi til með að hafa á­hrif á trú­verðug­leika Krist­jáns sem stjórn­mála­manns. Í kjöl­far þess full­yrti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann að hann komi til með að segja sig frá öllum mál­efnum Samherja rati þau á hans borð.

Ekkert óeðlilegt

Nýjasta sím­tal ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins átti sér svo stað síð­asta aðfanga­dag. Þá hringi Áslaug Arna dómsála­ráð­herra tví­vegis í Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna áður­nefndrar dag­bók­ar­færslu lög­regl­unnar um sótt­varn­ar­brot Bjarna, for­manns flokks­ins.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

Áslaug seg­ist aðeins hafa viljað kynna sér verk­lags­reglur lög­regl­unnar til að vera sem best und­ir­búin undir svör til fjöl­miðla. Hún segir ekk­ert hafa verið óeðli­legt við sím­tölin. Athygl­is­vert er að Áslaug Arna virð­ist aðeins hafa haft áhuga á því að kom­ast að lög­reglu­lek­anum en ekki sjálfu sótt­varn­ar­brot­inu.

Dæmin hér að ofan eru ekki sam­bæri­leg að stærð en þau lýsa öll mögu­legum dóm­greind­ar­bresti stjórn­mála­manna sem fara með vand­með­farin völd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi