Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll minnist vinar og afreksmanns: „John Snorri hefði vel getað orðið geim­fari“

Páll minnist vinar og afreksmanns: „John Snorri hefði vel getað orðið geim­fari“

„John og Lína voru ein­stak­lega flott hjón. Lína stór­glæsi­leg, eld­klár, ein­beitt, harð­dug­leg og skemmti­leg. John fjall­mynd­ar­leg­ur, með lokk­ana sína út um allt, brosið breitt og hlát­ur­inn smit­andi. Og líka eld­klár og dug­leg­ur, fjöl­hæf­ur og ein­hvern veg­inn gat allt sem hann tók sér fyr­ir hend­ur. Og sem hjón full­komn­uðu þau hvort annað og voru sam­stiga og sam­hent í öll­um sín­um verk­efn­um,“ skrifar Páll Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Ferða­fé­lags Íslands, um vin sinn Johns Snorra Sig­ur­jóns­son, sem tal­inn er af á ´fjall­inu K-2. Páll rifjar upp þá góðu sam­leið sem John Snorri og Lína Móey áttu þar til yfir lauk.

Saman að sigra

„Lína Móey var gift fjall­göngu­manni sem vildi tak­ast á við mestu áskor­an­ir sem hægt er að tak­ast á við í fjalla­mennsku. Hún gaf hon­um frelsi til þess og veitti hon­um all­an stuðn­ing sem hún gat. Verk­efnið hans varð um leið verk­efnið henn­ar. Sam­an voru þau að sigra hæstu tinda heims. Þegar John Snorri gekk á Lhot­se, fjórða hæsta fjall heims, flaug Lína út og fór á móti hon­um og gekk áleiðis í grunn­búðir Ev­erest með litla gutt­ann þeirra á öxl­inni og annað á leið­inni und­ir belti. Jafn­vel Guðrún Þór­ar­ins­dótt­ir sem á 19. öld gekk úr Hvann­döl­um fjör­una yfir í Héðins­fjörð um há­vet­ur með lítið barn á öxl­inni og annað und­ir belti hefði verið stolt af slíku ferða­lagi. Og þegar John sigr­aði K2 sum­arið 2017 var Lína fyrst til að fagna hon­um og um leið gefa hon­um leyfi til að klífa Broad Peak, tólfta hæsta fjall heims bara nokkr­um dög­um síðar“.

Náttúrubarn

„John Snorri var magn­aður fjalla­maður. Nátt­úru­barn með mikla aðlög­un­ar­hæfni. Hann hafði oft sýnt það og sannað og vakið aðdáun og undr­un í heimi háfjalla­fólks og áunnið sér virð­ingu á skömm­um tíma, meira að segja meðal sjerp­anna sem þykja ein­stak­ir háfjallagarp­ar.

Páll Guð­munds­son minn­ist vinar og afreks­manns.

John Snorri hafði á skömm­um tíma klifið fjög­ur af 14 átta­þús­und metra fjöll­un­um og stefndi á að klára þau öll. Auk þess hafði hann klifið fjöl­mörg önn­ur fræg fjöll, til að mynda Matter­horn þar sem hann skokk­aði úr bæn­um Zermatt upp á hæsta tind á þessu fræga fjalli og til baka á rétt rúm­um fjór­um tím­um“.

Trúðum á kraftaverk

„Johns Snorra er nú sárt saknað af fjöl­skyldu, ætt­ingj­um og vin­um. Um tíma trúðum við á krafta­verk og hann kæmi gang­andi niður í grunn­búðir K2, eft­ir að eitt­hvað hafði greini­lega farið úr­skeiðis að morgni laug­ar­dags 6. fe­brú­ar sl. Nú eig­um við ekki þá von leng­ur. K2 – fjall fjall­anna, The mountain of the mountains – vildi ekki hleypa sum­ar­drengn­um okk­ar bjarta heim í faðm fjöl­skyld­unn­ar. Slík hafa orðið ör­lög margra sem klífa hæstu fjöll heims. Það er sárt og það er vont að vita ekki at­b­urðarás­ina alla. Þegar John Snorri kleif K2 2017 höfðu færri kom­ist á tind fjalls­ins en hafa farið út í geim. Fyr­ir vetr­ar­tíma­bilið núna hafði eng­inn kom­ist á tind K2 að vetr­ar­lagi. Vetr­arað­stæður á K2 eru þær erf­ið­ustu í heim­in­um sem hægt er að hugsa sér. Frostið um 50 til 60 gráður, vind­hrað­inn get­ur orðið ógn­væn­leg­ur og þunna loftið yfir 8.000 metr­un­um ger­ir mann­legt líf nán­ast óbæri­legt. Fyr­ir marga get­ur verið ill­skilj­an­legt að leggja í slík­an leið­ang­ur. Og það er kannski bara allt í lagi“.

Meira en fjallabaktería

„Maður þarf ekki að skilja allt. Maður þarf ekki endi­lega að hafa skoð­anir á öllu. John var eina mín­útu að út­skýra fyr­ir mér að hann yrði að tak­ast við á við þetta verk­efni. Þetta var allt í bein­un­um í hon­um og blóð­inu. Þetta var svo miklu meira en fjalla­bakt­ería sem sum okk­ar fá. Þetta var ástríða, köll­un sem hann varð að svara. John Snorri hefði vel getað orðið geim­fari. Hann hefði ekki skor­ast und­an því að að vera send­ur í geimsku­tlu á móts við risa­stór­an loft­stein sem stefndi á jörð­ina. Hann hefði gert það til að bjarga mann­kyn­inu ef hann hefði getað. Þannig hafði hann aðra sýn en við flest hin. Við hefðum legið uppi í sófa með fjar­stýr­ing­una af sjón­varp­inu og fylgst með frétt­um af geimskutl­unni. En þótt John hafi kosið að tak­ast á við áskor­an­ir sem voru okk­ur hinum ómögu­leg þá var hann fyrst og síð­ast elsk­andi eig­inmaður, um­hyggju­sam­ur faðir og frá­bær vin­ur“.

Lína og John Snorri.

„Og nú er sag­an þeirra orðin sag­an henn­ar Línu. Ég er viss um að það verður góð og fal­leg saga. Og þó að John sé ekki leng­ur á meðal okk­ar í lif­andi lífi, bros­andi og geislandi glaður, þá varð­veit­um við í hjarta okk­ar minn­ing­ar um sann­kall­aðan af­reks­mann en ekki síður ein­stak­an mann­vin og góða mann­eskju,“ skrifar Páll Guð­munds­son. Grein hans birt­ist á mbl.is en hann gaf Mannlífi góð­fús­lega leyfi til að birta hana í heilu lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi