Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stefán lést er ekið var á hann í Garðabæ: „Það er svo sárt að kveðja þig, elsku pabbi“

Stefán lést er ekið var á hann í Garðabæ: „Það er svo sárt að kveðja þig, elsku pabbi“
kerti candle

Stefán Árnason, sem lést eftir að ekið var á hann á gatna­mótum Kauptúns og Urriða­holts­strætis í Garðabæ 17. febr­úar síð­ast­lið­inn, verður jarð­sung­inn í dag. Hann var 76 að aldri og lætur eftir sig þrjú börn.

Stefán fædd­ist í Reykja­vík 29. mars árið 1944. Hann ólst upp á Njáls­göt­unni í höf­uð­borg­inni og lauk kenn­ara­prófi hér­lendis. Þá stund­aði Stefán einnig kenn­ara­nám í Danmörku þar sem hann var um skeið búsettur með fjöl­skyld­una. Óhætt er að segja að starfs­fer­ill hans hafi verið helg­aður kennslu og samdi meðal ann­ars kennslu­bækur í starfs­fræði fyrir grunn­skóla.

Stefáns er minnst í minn­ing­ar­greinum Morg­un­blað­is­ins í dag þar sem fram kemur að hann hafi verið hlýr fjöl­skyldu­faðir og vinur. Þar segir að hann hafi alla tíð verið mik­ill Garð­bæ­ingur þar sem hann bjó bróð­ur­part­inn af lífi sínu. Hann var í stjórn sund­deildar Stjörn­unnar og vara­for­maður Stjörn­unnar. Stefán tefldi mikið og var í skák­klúbbi. Hann hafði bæði ánægju af ferða­lögum inn­an­lands sem og erlendis. Einnig var hann göngu­garpur og stund­aði sund.

Blessuð sé minn­ing Stefáns.

Bryndís syrgir föður sinn í minn­inga­grein og fer um hann hlýjum orðum. „Elsku besti pabbi. Skyndi­legt frá­fall þitt er okkur fjöl­skyld­unni mikið reið­ar­slag. Það er svo sárt að kveðja þig en eftir standa margar góðar minn­ingar. Pabbi var mik­ill fjöl­skyldu­maður og unni hann fjöl­skyldu sinni afar heitt og vildi hag hennar sem bestan. Pabbi var afar góður kenn­ari og
vel met­inn af mörgum nem­endum. Pabbi hafði mik­inn áhuga á öllu sem hans nán­ustu tóku sér fyrir hendur og alltaf var hægt að leita ráða hjá honum, segir Bryndís og bætir við:

„Elsku pabbi, þakk­læti er mér efst í huga. Þakklæti fyrir að hafa átt ynd­is­legan föður, sem var alltaf til staðar fyrir mig. Pabbi, þú átt svo stóran hlut af hjarta mínu og ég sakna þín svo mikið.“

Ingvar Sig­ur­geirs­son kenn­ari minn­ist góðs vinar í færslu á Facebook í dag. Þeir voru saman í skák­klúbbi sem hitt­ist hálfs­mán­að­ar­lega. „Í dag kveð ég kæran vin, Stefán Árnason.  Síðustu ár hafa verið höggvin skörð í þennan góða hóp. Fráfall Stefáns er enn eitt reið­arslagið, ekki síst vegna þess hversu brátt það bar að. Síðustu ár hefur Stefán, þessi sterki og um margt sér­staki maður, í bestu merk­ingu þeirra orða, verið nokk­urs konar for­ingi okkar. Hann hefur öðrum fremur haldið hópnum saman í gegnum tíð­ina og rækt það hlut­verk af alúð og alvöru. Þá var hann oft í ess­inu sínu með sinni hljóm­miklu rödd og leiftr­andi frá­sagn­ar­gáfu. Stefáni fannst ekki verra að hafa orðið, sagði þá skoð­anir sínar umbúða­laust, nákvæmur, hreinn og beinn, alltaf sjálfum sér sam­kvæmur, fund­vís á skemmti­leg og stundum óvenju­leg sjón­ar­horn, minn­ugur og vel les­inn,“ segir Ingvar og heldur áfram:

„Kannski er eft­ir­minni­leg­ast þegar hann vék í sam­ræðum okkar að fjöl­skyldu sinni. Hann leyndi því aldrei hversu kær hún var honum. Stefán var traustur vinur sem aldrei brást. Lof­sam­leg­ustu ummæli um fólk í fornum sögum okkar Íslend­inga eru: Hann var drengur góður. Um fáa eiga þau betur við en Stefán. Það verða þung spor að kveðja þennan góða dreng.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi