Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Systkini syrgja Rannveigu sem var aðeins fertug: „Sársaukinn og söknuðurinn er óbærilegur“

Systkini syrgja Rannveigu sem var aðeins fertug: „Sársaukinn og söknuðurinn er óbærilegur“

Rannveig Þor­valds­dóttir, kenn­ari og fyrrum Íslands­meist­ari í körfu­bolta, var aðeins fer­tug er hún lést eftir harða bar­áttu við krabba­mein. Hennar er minnst fyrir hlýju og vænt­um­þykju sem fjöl­skylda, vinir, sam­starfs­menn og nem­endur sjá á eftir.

Rannveig Þor­valds­dóttir kenn­ari fædd­ist í Reykja­vík 16. mars 1980. Hún lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans 20. febr­úar 2021 og lætur eftir sig eig­in­mann og þrjár ungar dætur: Áslaugu, Ingi­björgu og Þóru.

Rannveig ólst upp í Njarðvík þar sem faðir hennar var sókn­ar­prestur. Fjöl­skyldan flutt­ist síðar á Sel­tjarn­ar­nes þar sem hún lauk grunn­skóla. Hún lauk stúd­ents­prófi frá MR og grunn­skóla­kenn­ara­prófi frá Kenn­ara­há­skóla Íslands, með áherslu á stærð­fræði. Að loknu kenn­ara­prófi starf­aði Rannveig sem stærð­fræði­kenn­ari á ung­linga­stigi við Öldutúns­skóla í Hafn­ar­firði og var hún um tíma for­maður Flatar, sam­taka stærð­fræði­kenn­ara.

Blessuð sé minn­ing Rann­veigar.

Rannveig lærði ung á fiðlu og kynnt­ist körfu­bolta í Njarðvík. Hún gekk síðar í raðir KR á ung­lings­ár­unum og lék yfir 80 leiki í efstu deild kvenna í körfuknatt­leik og var í U-18 ára lands­liði Íslands. Hún varð tví­vegis Íslands-, bikar- og deild­ar­meist­ari með KR.

Ingi­björg, eldri systir Rann­veigar, syrgir ynd­is­lega mann­eskju í minn­ing­ar­greind í Morg­un­blað­inu í dag. „Elsku­lega systir mín er látin, sökn­uð­ur­inn er mik­ill og sárs­auk­inn óbæri­legur. Í rúm tvö ár háði hún erf­iða bar­áttu við þennan hræði­lega sjúk­dóm sem sigr­aði að lokum. Að fylgj­ast með henni og Sverri í þessu erf­iða ferli þar sem hvert áfallið á fætur öðru dundi yfir með þrjár ungar dætur til að hugsa um er búið að vera aðdá­un­ar­vert og ofboðs­lega erfitt. Hún kvart­aði aldrei, sterk­ari ein­stak­lingi hef ég ekki kynnst, svo róleg og yfir­veguð, full­komið æðru­leysi,“ segir Ingi­björg.

Ég trúi því að þú hafir getað horft framan í dauð­ann af slíku æðru­leysi af því að þú varst ánægð í eigin skinni.

Eins og áður sagði starf­aði Rannveig sem kenn­ari í Öldutúns­skóla, og var hennar minnst með hlý­hug á heima­síðu skól­ans. „Rannveig lést í faðmi fjöl­skyld­unnar eftir rúm­lega tveggja ára bar­áttu við krabba­mein. Hún fór í veik­inda­leyfi í sept­em­ber 2018 og hófst þá erfið bar­átta við krabba­meinið. Á síð­asta skóla­ári mætti hún svo brött til vinnu um mitt skólaár, bjart­sýn á að framundan væru betri tímar. En því miður varð það ekki raunin,“ segir í til­kynn­ing­unni. Þar er Rann­veigar minnst sem frá­bærs kenn­ara:

„Rannveig var ekki bara góður stærð­fræði­kenn­ari, hún var einnig frá­bær umsjón­ar­kenn­ari. Lagði sig fram um að kynn­ast umsjón­ar­nem­endum sínum og fylgj­ast vel með líðan þeirra. Var alltaf til taks ef nem­endur vildu ræða við hana. Þeim þótti afar vænt um Rann­veigu þar sem þeir fengu frá henni hlýju og vænt­um­þykju. Nemendur sjá nú á eftir frá­bærum kenn­ara og starfs­menn sjá á eftir ynd­is­legum sam­starfs­fé­laga og vini.“

Ingi­björg var oft fengin til að passa Ranveigu systur sína á yngri árum. „Það var auð­sótt, hún var svo þægi­legt og með­færi­legt barn. Svo fal­leg með blá augu, mikið dökkt hár, geislandi bros og dill­andi hlátur. Allir sem sáu hana heill­uð­ust af henni, hún var alltaf kát. Sökn­uð­ur­inn er mik­ill. Eftir sitja ótal minn­ingar sem munu ylja mér alla ævi og ég mun deila með frænkum mínum til að heiðra minn­ingu stór­kost­legrar móður þeirra. Guð gefi okkur öllum sem vorum svo heppin að hafa Rann­veigu í okkar lífi styrk til að takast á við þessa miklu sorg,“ segir Ingi­björg.

Kristinn, yngri bróðir Rann­veigar, minn­ist systur sinna með mik­illi hlýju í minn­ing­ar­grein. „Við höfum öll hlut­verk í líf­inu. Ólík hlut­verk í lífi hvert ann­ars. Ég fékk að hafa það hlut­verk að vera bróðir þinn og það hefur verið gef­andi. Þó að ekki muni nema ári á okkur var ég alltaf litli bróðir þinn. Það þýddi þó ekki að ég fengi ein­hvern afslátt hjá þér, hvorki þá né nokkurn tím­ann. Ég vissi það ekki þá en veit það nú að þannig var umhyggjan hjá þér. Að ýta við okkur sem þér þótti vænt um, enga vor­kunn og enga væmni. Það gerir mér erfitt fyrir núna. Að hugsa til þín án þess að gef­ast upp,“ segir Kristinn og bætir við:

„Það gefur mér hins vegar styrk að sjá hvernig þú nálg­að­ist verk­efni síð­ustu mán­aða. Raunsæ, ákveðin, hug­rökk og heið­ar­leg. Ég trúi því að þú hafir getað horft framan í dauð­ann af slíku æðru­leysi af því að þú varst ánægð í eigin skinni. Þið leyfðuð stelp­unum alltaf að fylgj­ast með þínum veik­indum. Ykkar veik­indum. Umhyggjan þín fólst í því að fela ekki né forð­ast heldur að takast á við lífið í sam­ein­ingu eins og það blasir við. Halda ótrauð áfram. Njóta hvers­dags­ins án eft­ir­sjár. Brosa í gegnum tárin með þakk­læti að vopni. Nú hef ég fengið nýtt hlut­verk í þínu lífi, elsku Rannveig. Þú ert nú farin en ég mun halda minn­ingu þinni á lofti með Sverri og stelp­unum. Hjálpa þeim að rækta það sem þú hefur lagt inn í þessar fal­legu mann­eskjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi