Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðrún Helga jarðsungin í dag: „Elsku mamma, ég veit ekki hvað ég geri án þín“

Guðrún Helga jarðsungin í dag: „Elsku mamma, ég veit ekki hvað ég geri án þín“

Guðrúnar Helgu Sig­urð­ar­dóttur blaða­manns og öku­leið­sögu­manns. Guðrún Helga naut virð­ingar innan stétt­ar­innar og var um skeið for­maður Félags fjöl­miðla­kvenna. Guðrún lést laug­ar­dag­inn 20. febr­úar eftir erfið veik­indi, aðeins 57 ára að aldri. Hún lætur eftir sig eig­in­mann og tvö börn.

Guðrún Helga Sig­urð­ar­dóttir fædd­ist í Reykja­vík 16. sept­em­ber 1963. Hún útskrif­að­ist frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík, fór í kjöl­farið í fjöl­miðla­fræði og stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands. Þá stund­aði Guðrún Helga finnsku­námi í háskól­anum í Helsinki sam­hliða námi í blaða­mennsku. Árið 1987 hlaut hún gráðu í socionom-blaða­mennsku frá Svenska social- och komm­unal­hög­skolan við Hels­ing­fors Uni­versitet. Árið 1991 fékk hún síðan pol. kand.-próf í stjórn­mála­fræði með áherslu á alþjóða­stjórn­mál frá háskól­anum í Helsinki.

Guðrún Helga var vin­sæll leið­sögu­maður og rit­höf­undur og í hópi okkar bestu fjöl­miðla­manna. Þá var hún til­nefnd til blaða­manna­verð­launa árið 2003 í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins. Þá starf­aði Guðrún Helga fyrir Frjáls verslun og kort­lagði við­skipta­veldi Gaums og fékk sér­stakt hrós fyrir að setja það fram á mynd­rænan og skýran hátt. Guðrún Helga kom víða við á sínum ferli, rit­stýrði Neist­anum, skrif­aði fyrir SÁÁ blaðið, rit­stýrði Viku­blað­inu Reykja­vík, var blaða­maður á Frétta­blað­inu og Frétta­tím­anum. Þá sendi Guðrún frá sér vin­sæla bók fyrir erlenda ferða­menn um hefð­bundna íslenska mat­ar­gerð.

Guðrún Helga var vel menntuð og lærði blaða­mennsku í Svíþjóð og alþjóða­stjórn­mál í Helsinki. Guðrún var einnig mikil úti­vist­ar­mann­eskja og þótti frá­bær leið­sögu­maður. Í sam­tali við Frétta­blaðið í júlí 2004, beðin um að lýsa sínum lífstíl, sagði Guðrún:

Guðrún Helga var í hópi bestu blaða­manna lands­ins en lésts langt fyrir aldur fram. Margir minn­ast hennar í minn­ing­ar­greinum í Morg­un­blað­inu og er Aldís Eva Frið­riks­dóttir, dóttir hennar, ein þeirra.

„Elsku mamma mín. Þá er þess­ari stuttu en erf­iðu bar­áttu lokið. Þú sagðir við mig að þú vildir góðar minn­ing­ar­greinar og ég efast ekki um að það verði raunin. Þetta er mitt fram­lag. Ég hef notið þeirra for­rétt­inda að vera alin upp af þér. Bestu vin­konu minni og mömmu sem hægt er að finna. Þú hefur syrgt með mér í mínum verstu raunum. Elskaðir mig af öllu hjarta, með til­heyr­andi kossum og knúsum. Ég átta mig á hvað ég hef verið með ein­dæmum heppin. Að fá að vera alin upp af svo sann­gjarnri og góðri konu. Að vita af heilum hug og hjarta að for­eldri manns er stolt af manni,“ segir Aldís Eva og heldur áfram:

„Ég er líka stolt af þér. Ég er stolt af öllu sem þú hefur gert og af öllu sem þú hefur fórnað. Þú hefur alltaf hlegið mikið og var það í miklu upp­á­haldi hjá mér þegar við hlógum saman og þá þegar önnur hvor okkar hafði sagt ein­stak­lega lélegan brand­ara. Þá hlógum við mest. Þú kenndir mér að vera frá­bær mamma og mun ég stefna að því í lífi mínu að kom­ast með tærnar þar sem þú hefur hæl­ana í móð­ur­hlut­verk­inu. Takk fyrir að styðja alltaf við mig. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Takk fyrir allan tíma okkar saman, þótt alltof stuttur hafi verið. Takk fyrir allt elsku mamma mín.“

Dagur Páll Frið­riks­son, sonur Guðrúnar Helgu, fer líka hlýjum orðum um móður sína í minn­ing­ar­grein. „Elsku mamma, þetta var erfitt ár, örugg­lega erf­ið­asta ár ævi minnar en það ár sem ég óskaði að myndi aldrei ljúka. Ég sakna þín svo sárt, sakna þess að fara í bíltúr með þér og kjafta enda­laust á meðan þú hlust­aðir í hljóði og varst besta vin­kona ein­mana ung­lings. Ég sakna þess að liggja hjá þér og kjafta. Ég sakna brandar­anna þinna, sama hvað aðrir segja, ég hló alltaf. Ég sakna þess að sama hvaða vit­leysa mér datt í hug, þá stóðst þú alltaf við bakið á mér. Ég sakna þess að þú tal­aðir aldrei undir rós, þú sagðir bara sann­leik­ann,“ segir Dagur Páll og bætir við:

„Það er svo ótal margt í þessu lífi sem þú gerðir fyrir mig sem ég mun sakna, þú varst besta vin­kona mín og eng­inn mun geta komið í þinn stað. Þú varst ynd­is­leg mamma, þú varst blíð og góð en hafðir líka aga þegar þurfti. Ég get ekki ímyndað mér neitt sem þú gætir hafa gert betur. Þú varst ekki bara móðir mín, þú varst líka vin­kona mín, þegar illa gekk eða ég var ein­mana, þá varst þú alltaf til­búin í spjall. Hvíldu í friði elsku mamma, ég veit ekki hvað ég geri án þín.“

Guðrún Helga verður jarð­sungin í dag klukkan 13. Slóð á streymi má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi