Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svona getur þú haldið fermingu undir 170.000 krónum

Svona getur þú haldið fermingu undir 170.000 krónum

Það er hægt að láta allan ferm­ing­ar­kostnað vera innan við 170 þús­und krónur hér á landi og Mannlíf fer hér yfir það með Rósu Björk Ágústs­dóttur hvernig það er hægt. Henni mun takast að halda kostn­aði í kringum ferm­ingu sonar síns í 165 þús­und krónum.

Nú eru ferm­ingar á næsta leiti og að mörgu er að hyggja í sam­bandi við stóra dag­inn. Útgjöld í tengslum við ferm­ing­ar­dag­inn geta verið ansi mikil, en þó er hægt að stýra þeim, í sam­ráði við ferm­ing­ar­barnið/ börnin. Mikið er um að for­eldrar og aðrir sem koma að skipu­lagi dags­ins reyni eftir fremsta megni að halda útgjöld­unum niðri. Mannlíf ræddi við Rósu Björk sem er ein af þeim sem er að halda útgjöld­unum í eins miklu lág­marki og unnt er. Ferm­ing­ar­barnið fær þó auð­vitað að ráða ferð­inni. Einar Ágúst  sem verður fermdur þann 1.maí, kaus að ferm­ast að heiðnum sið en slíkar athafnir sér Ása­trú­ar­fé­lagið um. Rósa segir að börnin hennar hafi öll fengið að ráða með hvaða hætti þau fermd­ust. Eldri börnin tvö fermd­ust hjá Hjálp­ræð­is­hernum og Þjóð­kirkj­unni.

Rósa Björk Ágústs­dóttir (mynd í einka­eigu)
Einar Ágúst (mynd í einka­eigu)

Svona halda Rósa Björk og börnin hennar útgjöldunum niðri

Merktar munn­þurrkur, kerti og gesta­bók er eitt­hvað sem ekk­ert barna hennar vildi, fannst það óþarfi.  Rósa segir að börn hennar séu ekki kröfu­hörð, þau fara sínar eigin leiðir, þurfa ekki að fylgja tísku­straumum og slíku, þeim er sama hvað öðrum finnst. Börnin hafa sínar skoð­anir á því sem telst hefð­bundið. Þegar dóttir hennar fermd­ist sá hún sem dæmi um að farða sig sjálf. Engum er boðið í veisl­una sem börnin þekkja ekki vel, Rósa segir mik­inn sparnað af því. Ein af þremur veislum hafa verið haldin heima og þannig spar­ast leiga á sal.

Melgresi og nytjamarkaðir

Rósa og Einar Ágúst fóru saman og tíndu mel­gresi sem þau ætla að spreyja í rauðum og svörtum lit. Nytja­mark­aðir verða svo sóttir heim og þar á að finna svarta og rauða vasa undir mel­gresið. Í þessar skreyt­ingar reiknar Rósa með kostn­aði upp á 4.000 kr. Rósa á skraut úr fyrstu ferm­ing­ar­veisl­unni sem verður notað og spreyjað svo það sam­ræm­ist þema­litum veisl­unnar. Borðdúka á einnig að finna á nytja­mörk­uðum.

Skrautið tínt beint úr nátt­úr­unni (mynd í einka­eigu)
Mel­gresið komið í hús (mynd í einka­eigu)

Fatnaður, veitingar og myndataka

Hvað fatnað varðar þá er búið að kaupa föt á Einar Ágúst fyrir 27.590 kr. Hann mun nota skó, belti og slaufu af eldri bróður sínum. Einar Ágúst vill bjóða upp á Dominos pizzur í veisl­unni sinni en það var hann lengi að ákveða, Rósa kveðst hafa fall­ist á hans hug­mynd. Veislu­gestir verða á bil­inu 40 til 50. Það verða kökur í eft­ir­rétt, amma drengs­ins fær að kaupa eina köku en að öðru leyti munu þrír vinir fjöl­skyld­unar baka end­ur­gjalds­laust. Hvað varðar mynda­töku þá er það vinur Rósu sem tekur þær end­ur­gjalds­laust, hann tekur óhefð­bundnar myndir sem eru mjög skemmti­legar.

Áætluð útgjöld

Ekki eru komnar end­an­legar kostn­að­ar­tölur hjá Rósu Björk en áætlað er að þær með öllu inni­földu, ferm­ing­ar­fræðslu og öllu til­heyr­andi verði í kringum 165.000 kr. Ef þau þurfa að leigja sal sem er alls ekki víst, fer eftir þátt­töku, þá fæst hann á mjög sann­gjörnu verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi