Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjarni veðjar á fjór­tán fjöl­skyldur?

Bjarni veðjar á fjór­tán fjöl­skyldur?
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Á sam­fé­lags­miðlum má sjá mynd af bak­svip Bjarna Bene­dikts­sonar formans Sjálf­stæð­is­flokks­ins og efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, þar sem hann stendur í ræðu­stól og horfir hauk­fránum augum fram í sal­inn. Yfir mynd­ina er skrifað: Okkar stefna snýst um að veðja á ein­stak­ling­inn.

Og þá vaknar spurn­ingin: Hvaða ein­stak­lingur er þetta sem Bjarni vill veðja á?

Ekki er Bjarni að veðja börn

Það eru 365 þús­und ein­stak­lingar á land­inu og þar af eru 81.500 börn. Mér vit­an­lega hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aldrei stutt börn. Flokkur lagð­ist gegn barna­bótum á sínum tíma og hefur notað öll tæki­færi til að lækka þar og skerða. Flokk­ur­inn er á móti gjald­frjálsum skóla og tóm­stundum, stóð gegn upp­bygg­ingu leik­skóla og hefur aldrei varið hags­muni barna á nokkurn hátt. Auk þess hafa börn ekki kosn­inga­rétt, svo Bjarni er örugg­lega ekki að fara að veðja á börnin.

… og ekki aldraða

Þá eru eftir 283.500 lands­menn sem ekki eru börn. Þar af eru 45.500 á eft­ir­launa­aldri, fólk sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei sinnt og lítur á sem byrði fremur en full­gilda borg­ara. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var á móti almanna­trygg­ingum fyrir níu­tíu árum og þar með almennum eft­ir­launum. Flokk­ur­inn hefur ætíð hafnað öllum til­lögum til að bæta kjör aldr­aðra, bjó til og hefur alltaf stutt skerð­ingar á tekjum hóps­ins. Hann tefur eins mikið og hann getur upp­bygg­ingu á þjón­ustu við aldr­aða og eft­ir­launa­fólk, nema ef upp­bygg­ingin skaffar verk­efni fyrir bygg­ing­ar­verk­taka sem eru í flokknum. En heim­il­is­hjálp, heima­hjúkrun, dag­vist og almenn þjón­ustu til að auka lífs­gæði hóps­ins; Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er á móti svo­leiðis. Fyrir hverjar þing­kosn­ingar hefur Bjarni lofa þessum hópi bót og betrun, en eftir hverjar kosn­ingar svíkur hann þessi lof­orð. Það má segja að það sé eitt af lög­málum íslenskra stjórn­mála. Kannski metur Bjarni það svo að hóp­ur­inn glími almennt við alvar­leg minnis­glöp og því skipti engu hvað er sagt við eft­ir­launa­fólk. Svo þótt Bjarni ætli enn og aftur að veðja á að hann kom­ist upp með að svíkja lof­orð gagn­vart eft­ir­launa­fólki og öldruðum; þá er það ekki svo að hann eða Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn séu að fara að veðja á fólk á eft­ir­launa­aldri. Nær væri að segja að hann ætli að afskrifa það.

… og enn síður öryrkja

Þá eru eftir 238 þús­und lands­menn sem eru hvorki börn né fólk á eft­ir­launa­aldri. Af þeim eru um 18 þús­und öryrkjar og það er hópur sem Bjarni er örugg­lega ekki að fara að veðja á. Bjarni per­sónu­lega, og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn almennt, er í opnu stríði við öryrkja, heldur því fram í ræðu og riti að öryrkjar séu byrði á sam­fé­lag­inu og dragi undan við­spyrnu sam­fé­lags­ins með svikum og prettum. Bjarni á því örugg­lega ekki við um öryrkja þegar hann seg­ist ætla að veðja á ein­stak­ling­inn

… og alls ekki atvinnulausa

Þá eru eftir 220 þús­und lands­menn sem ekki eru börn, ekki eft­ir­launa­fólk og ekki öryrkjar. Af þeim eru 17 þús­und atvinnu­lausir og Bjarni er sann­ar­lega ekki að ávarpa þá ein­stak­linga með fínu mynd­inni af sér. Bjarni hefur hafnað því algjör­lega að atvinnu­laust fólk eigi að hafa í sig og á, þver­tekið fyrir að hækka atvinnu­leys­is­bætur svo atvinnu­lausir eigi fyrir mat úr mán­uð­inn, geti sótt sér heil­brigð­is­þjón­ustu eða greitt fyrir tóm­stundir barn­anna sinna. Svo Bjarni ætlar ekki að veðja á þá ein­stak­linga sem eru atvinnu­lausir. Heldur betur ekki.

… og ekki veðjar hann á námsfólk

Þá eru eftir 203 þús­und lands­menn sem ekki eru börn, ekki eft­ir­launa­fólk, ekki öryrkjar og ekki atvinnu­laus. Af þeim eru 34 þús­und lands­manna við nám í fram­halds­skólum, við iðn­nám eða í háskóla. Bjarni og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa alla tíð verið and­snúnir stuðn­ingi við náms­fólk, viljað hækka vexti á náms­lán og skerða þau, staðið gegn upp­bygg­ingu náms­manna­garða, verið á móti stuðn­ingi við barna­fólk í námi og þar fram eftir göt­unum. Í raun er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á því að aðeins börn af betur settum heim­ilum eigi að stunda nám. Flokk­ur­inn vill að börn af heim­ilum verka­fólks verði sjálft verka­fólk og vinni verka­manna­vinnu í fyr­ir­tækjum hinna betur settu. Þetta er svona meira og minna mennta­stefna flokks­ins. Bjarni ætlar sér því örugg­lega ekki veðja á ein­stak­linga í námi.

… og enn síður opinbera starfsmenn

Þá eru eftir 169 þús­und lands­menn sem ekki eru börn, ekki eft­ir­launa­fólk, ekki öryrkjar, ekki atvinnu­laus og ekki í námi. Af hinum eru 37 þús­und opin­berir starfs­menn og Bjarni er sann­ar­lega ekki að fara að veðja á þá. Hann segir að opin­berir starfs­menn sói fé á meðan þau sem vinna hjá fyr­ir­tækjum fjöl­skyldu hans og vina búi til fé. Þó einkum eig­endur þess­ara fyr­ir­tækja. Bjarni trúir að það sé salt jarðar, fólkið sem getur allt gott af sér. Bjarni vill frekar að fólk sé atvinnu­laust en að það vinni hjá hinu opin­bera. Í hans huga er gott að fólk vinni hjá fyr­ir­tækjum fjöl­skyldu hans og vina, honum finnst það skað­laust að fólk gangi um atvinnu­laust en hann telur það stór­hættu­legt og vont að fólk vinni hjá hinu opin­bera. Bjarni er því örugg­lega ekki að fara að veðja á þá ein­stak­linga sem vinna hjá hinu opin­bera.

… og alls ekki félaga í Alþýðusambandinu

Þá eru eftir 132 þús­und lands­menn sem ekki eru börn, ekki eft­ir­launa­fólk, ekki öryrkjar, ekki atvinnu­laus, ekki í námi og ekki opin­bert starfs­fólk. Af þeim eru 125 þús­und félagar í Alþýðu­sam­band­inu sem Bjarni og félagar er í virku stríði við. Hann og vinir hans telja ASÍ sinn helsta óvin og stærstu hindr­un­ina á þeirri leið sem þeir vilja fara, í átt að alræði auð­valds­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varð til þegar stjórn­mál snér­ust um and­stæð­urnar í sam­fé­lag­inu; ann­ars vegar launa­fólk sem lifði af að selja vinnu sína og hins vegar fyr­ir­tækja- og fjár­magns­eig­endur sem lifðu á auð sínum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var alla tíð með síð­ar­talda hópnum í liði, þótt hann reyndi að leyna því fyrstu ára­tug­ina. Und­an­farið hefur flokk­ur­inn hætt að fela með hverjum hann stendur, hann er stoltur af því að standa með auð­vald­inu og hafa ekk­ert í stefnu sinni sem ekki á rætur sínar hjá Við­skipta­ráði, Samtökum atvinnu­lífs­ins og öðrum hags­muna­sam­tökum hinna ríku og valda­miklu. Bjarni er því örugg­lega ekki að veðja á ein­stak­ling­ana í Alþýðu­sam­band­inu.

… og enn síður eigendur smáfyrirtækja

Þá eru eftir sjö þús­und lands­menn sem ekki eru börn, ekki eft­ir­launa­fólk, ekki öryrkjar, ekki atvinnu­laus, ekki í námi, ekki opin­bert starfs­fólk og ekki í Alþýðu­sam­band­inu. Þetta er flest fólk sem á og rekur fyr­ir­tæki. Af þeim eru um 80% ein­yrkjar og eig­endur smá­fyr­ir­tækja sem Bjarni ætlar örugg­lega ekki að veðja á. Stefna hans og Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að styrkja allra auð­ug­ustu fjár­magns­eig­end­urna og allra stærstu eig­endur allra stærstu fyr­ir­tækj­anna, sem geta ekki aukið auð sinn nema að sölsa undir sig rekstur, eignir og við­skipta­vini hinna smáu. Af þessum sjö þús­und sem ekki falla undir þá hópa, sem hér hefur verið bent á að Bjarni geti ekki átt við, eru því um 5.600 sem reka smá­fyr­ir­tæki sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei stutt og ætlar aldrei að styðja.

En einn er hópur sem Bjarni elskar

Þá eru eftir um 1.400 ein­stak­lingar sem Bjarni getur fræði­lega ætlað að veðja á. Þetta eru 0,5% full­orð­inna Íslend­inga. Það er því ljóst að ég hef verið heldur rausn­ar­legur við Bjarna. Sú stefna sem hann rekur; nýfrjáls­hyggja sem gengur út á að minnka völd almenn­ings en auka völd og auð hinna fáu ríku; hefur sýnt sig að þjóna fyrst og fremst 0,1% hinna rík­ustu, sem á Íslandi eru um 285 manns. Og innan þessa hóps er 0,01 pró­sentið, sem í raun leggur lín­urnar og hefur auðg­ast allra mest á tíma nýfrjáls­hyggj­unnar. Hópur hinna allra auð­ug­ustu er kannski 30 manns á Íslandi. Og þar sem sumt af þessu fólki er í sömu fjöl­skyldu þá mætti eig­in­lega umorða heit­streng­ingu Bjarna svo hún hljómi trú­verð­ug­lega: Okkar stefna snýst um að veðja á fjórtán auð­ug­ustu fjöl­skyld­urnar. Við vinnum fyrir þær. Ekki ykkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi