Ríflega þriggja ára svikamylla sem misnotar nafn og andlit Ólafs Jóhanns Ólafssonar, aðstoðarforstjóra Time Warner og rithöfunds, er komin aftur á kreik á Facebook. Nokkrir Íslendingar hafa orðið fyrir þeirri ólukku að lenda í svikamyllunni og deila á Facebook færslu þar sem segir: „Ólafur Jóhann veitir öllum íbúum Íslands fjárhagslegt frelsi”
RÚV fjallaði um þessa sömu svikamyllu fyrir þremur árum. Þá sagði Ólafur: „Þarna er verið að nota nafnið mitt í einhverja svikamyllu og það dregið inn til að reyna blekkja fólk. Hvað mig varðar er þetta ekkert skemmtilegt en aðalmálið er að koma í veg fyrir að einhver bíti á agnið, að skúrkarnir nái að blekkja einhvern.“
Ólafur segist ekki einu sinni vera á Facebook en fyrir þremur árum fór hann fram á að Facebook gerði eitthvað í þessu. Hann sagði enn fremur að hann myndi aldrei mæla með kaupum á Bitcoin, líkt og svikahrapparnir virðast gera.
Það er ekki nóg með að svikamyllan taki fyrir hendur fólks á Facebook heldur ná ódámarnir að skrifa athugasemdir við færsluna í nafni fólks. Í tilviki eins Íslendings sem lenti í þessu í dag virðist hann skrifa: “Afsakið truflunina með merkingunum en ég varð að deila þessu með vinum mínum… Ef einhver hefur áhuga á appi sem græðir peninga fyrir þig á löglegan hátt, er þetta áhugaverður lestur. Ég fékk leiðsögn í gegnum öll skrefin frá fulltrúa. Það er mér ánægja að segja að þetta virkaði frábærlega fyrir mig! Inneignin mín hefur hækkað um 275% hingað til”.
Rétt er að vara alla við að smella á færslur sem þessar.































Athugasemdir