Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar sýndu Færeyingum vanþakklæti: „Björguðu heiðri og sóma Íslands “

Íslendingar sýndu Færeyingum vanþakklæti: „Björguðu heiðri og sóma Íslands “

Magnús Þór Haf­steins­son, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður, segir löngu kom­inn tími á að íslenska þjóðin þakki Fær­eyr­ingum fyrir björg­un­ar­að­gerðir vegna flug­slys­ins í Færeyjum 1970. Hann seg­ist ekki vita til þess að neinn meðal björg­un­ar­fólks­ins hafi hlotið við­ur­kenn­ingu frá Íslandi. Magnús er annar höf­undur bók­ar­innar Martröð í Mykinesi en hann segir þetta hafa valdið sér hug­ar­angri þegar hann var að skrifa bók­ina, van­þakk­læti Íslend­inga, sem aldrei þökkuð Fær­ey­ingum fyrir hetju­lega björgun.

„Hinn 26. sept­em­ber 1970 brot­lenti Fokker Fri­ends­hip-vél Flug­fé­lags Íslands á fjall­inu Knúki á eyj­unni Mykinesi í Færeyjum. Átta fór­ust en 26 komust lífs af. RÚV hefur nú sýnt fær­eyska heim­ilda­mynd um þetta slys í tveimur hlutum. Hún var gerð á síð­asta ári. Þá kom einnig út hér á Íslandi laust fyrir síð­ustu jól bókin Martröð í Mykinesi – íslenska flug­slysið í Færeyjum 1970. Hún er eftir und­ir­rit­aðan og Grækaris Djurhuus Magn­us­sen sem er Fær­ey­ingur. Eftir að hafa horft á fær­eysku mynd­ina, sem er bæði afar vel gerð og áhrifa­mikil, vil ég leggja orð í belg,“ segir Magnús í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu.

Hann heldur áfram og lýsir atvik­inu í meg­in­at­riðum. „Einstakt björg­un­ara­frek var unnið í Mykinesi þennan dag. Nánast ný far­þega­flug­vél af full­komn­ustu gerð, glæstur far­kostur kirfi­lega merktur Íslandi með 34 manns inn­an­borðs, hafði brot­lent í slæmu veðri á lít­illi kletta­eyju. Þar bjuggu nokkrir tugir manna, mest full­orðið fólk sem lifði af því sem landið og nátt­úran gaf. Óbreytt alþýðu­fólk án reynslu af björg­un­ar­störfum stóð nú frammi fyrir hópslysi. Enginn bún­aður til björg­unar var til í eyj­unni. Mykines gat oft verið ein­angrað vikum saman sökum erf­iðs sjó­lags. Þannig var það dag­inn sem flug­slysið varð. Íbúar Mykiness urðu að sinna fyrstu neyð­ar­hjálp og umönnun slas­aðra,“ segir Magnús.

Hann segir spurn­ingar vakna þegar farið er yfir örygg­is­mál vél­ar­innar. „Eftir brot­lend­ing­una kom í ljós að íslenska flug­vélin var að ýmsu leyti van­búin kæmi til slyss. Aðeins ein neyð­ar­tal­stöð var í vél­inni. Hún var úr seinni heims­styrj­öld, og ónot­hæf. Engin teppi né annað sem gæti varið fólk gegn kæl­ingu var í flug­vél­inni. Ekkert mor­fín til að gefa sár­þjáðu fólki var í skyndi­hjálp­ar­bún­aði vél­ar­innar. Nú skal farið var­lega í að leggja dóm á það hvernig far­þega­vélar voru útbúnar og flug­ör­yggi háttað fyrir hálfri öld. Spurn­ingar vakna þó samt um hvort ekki hefði mátt gera betur í þessum efnum 1970. Þegar ekki var hægt að senda neyð­ar­kall frá flak­inu hófu nokkrir far­þegar göngu niður fjalls­hlíð­ina án þess þó að vita hvar þeir væru staddir. Þeir komust niður í Mykines­byggð­ina. Þar var þá nýbúið var að hafa sam­band við menn úr landi og biðja þá að fara til leitar á afrétt­inum í Mykinesi því „Íslands­flug­vélin“ væri týnd,“ segir Magnús.

Fær­ey­ingar lyftu grettistaki til að bjarga flug­far­þegum að sögn Magnúsar. „Hraust­ustu menn byggð­ar­innar flýttu sér til fjalls þar sem þeim tókst að finna flakið. Þeir tóku einu réttu ákvörð­un­ina; að drífa fólkið niður í byggð fyrir myrkur og þannig forða því í húsa­skjól áður en kuld­inn og vos­búðin drægju svo mátt úr því að það fengi sig ekki hreyft og myndi kannski fara illa vegna ofkæl­ingar um nótt­ina. Hver ein­asti sem á annað borð gat staðið varð að ganga niður í tor­færu fjall­lendi, í þoku, kulda, roki og rign­ingu, ann­að­hvort einn eða studdur af öðrum far­þegum eða Fær­ey­ingum úr hópi björg­un­ar­manna. Lið lækna, hjúkr­un­ar­kvenna og fleiri björg­un­ar­manna komst út í Mykines seinna um síð­degið. Þar þurfti að berj­ast í ill­viðri, klífa nálega þrí­tugan hamar og hefja erf­iða fjall­göngu í svarta­þoku, roki og rign­ingu þar sem bera þurfti allan búnað. Enginn vissi hver aðkoman yrði á slys­staðnum. Stað­kunn­ugir Fær­ey­ingar komu fólk­inu í land og leið­beindu því að slys­staðnum. Áður en dagur leið að kveldi var búið að koma öllum úr vél­inni í húsa­skjól.“

Magnús segir sög­una lengri en það sem skiptir máli nú er að þessu fólki sé þakkað, betra sé seint en aldrei. „Eftir því sem ég hef skoðað þetta slys betur og alla sög­una í kringum það, þá veldur það mér hug­ar­angri að hvergi er að finna neinar heim­ildir um að íslenska þjóðin hafi nokkru sinni þakkað Fær­ey­ing­unum sem að þessu björg­un­ara­freki stóðu. Við skulum hafa í huga að flug­vélin var íslensk, með íslenskri áhöfn og afar mik­il­væg sem slík í upp­hafi upp­bygg­ingar flugs milli Íslands, Færeyja, Skotlands, Dan­merkur og Noregs þar sem Íslend­ingar voru frum­kvöðlar. Í Færeyjum var þessi flug­vél alltaf kölluð „Íslands­flug­vélin“,“ segir Magnús.

Hann segir ein­ungis einn mann hafa fengið fálka­orð­una. „Árið eftir björg­un­ar­að­gerð­irnar var danskur flug­stjóri þyrl­unnar um borð í varð­skipi Dana, Hvíta­birn­inum, verð­skuldað sæmdur íslensku fálka­orð­unni. Hann er sá eini sem hefur verið heiðr­aður í tengslum við þetta flug­slys. Hvergi hef ég rek­ist á neinar heim­ildir um að einu ein­asta þakk­læt­is­orði hafi verið vikið að Fær­ey­ingum fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar. Þetta þykir mér synd og skömm. Það voru Fær­ey­ingar sem björg­uðu heiðri og sóma Íslands þarna uppi undir Knúkstindi á Mykinesi þennan dimma sept­em­ber­dag fyrir ríf­lega 50 árum með því að koma í veg fyrir að ekki fleiri en þau átta sem létu lífið í brot­lend­ingu „Íslands­vél­ar­innar“ lét­ust. Færeyska björg­un­ar­fólk­inu ber að þakka fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar með þeirri reisn sem hæfir og svo eftir verði tekið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi