Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samherji sakaður um gróf svik í Færeyjum – Þorsteinn Már þögull

Samherji sakaður um gróf svik í Færeyjum – Þorsteinn Már þögull
Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Nýjar ásak­anir eru komnar fram á Samherja, Að þessu sinni er fyr­ir­tækið sakað um svik í Færeyjum. Íslend­ingar sem störf­uðu í Namibíu voru rang­lega skráðir á fær­eysk flutn­inga­skip og nutu þannig skatta­legs ávinn­ings. Þetta kom fram á RÚV í kvöld. Kveikur í sam­vinnu við fær­eyska sjón­varpið unnu að þessum upp­ljóstr­unum.

Vitnað er í fær­eyskan skatta­sér­fræð­ing sem telur Samherja hafa brotið bæði fær­eysk og namibísk lög með því að greiða Íslend­ingum sem störf­uðu í Namibíu laun í Færeyjum og skrá þá rang­lega í áhafni fær­eyskra flutn­inga­skipa. Þessar ásak­anir bæt­ast við mútu­mál í Namibíu og víð­feðm svik þar.

Meint svik í Færeyjum voru í gegnum Tindholm, eitt þriggja félaga sem Sam­herj­a­fé­lagið Esja shipp­ing á Kýpur stofn­aði árið 2011 í Færeyjum að því er segir á RÚV. Hin tvö hétu Scombrus og Harengus, en tvö sam­nefnd flutn­inga­skip voru skráð í Færeyjum – enda óvíða hag­stæð­ara að skrá og reka flutn­inga­skip en þar. Ein meg­in­fríð­indin snúa að skatt­lagn­ingu, en útgerðum býðst til dæmis 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Samherji er sagður hafa mis­notað þetta með því að skrá íslenska sjó­menn á fær­eysku frakt­skipin, á sama tíma og þeir voru raun­veru­lega við störf á fiski­skipum félags­ins við strendur Namibíu. Sjó­menn­irnir greiddu ekki skatta í Namibíu og Samherji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap af þeim sökum.

Færeyska Sjón­varpið reyndi að fá við­brögð Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, en hann gaf ekki færi á sér. Aftur á móti upp­lýsti hann í dag að hann hefði kært Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara fyrir rangar sak­ar­giftir. Taldi hann Jóhannes hafa ýjað að því að Sam­herj­a­menn hefðu átt aðild að því að eitra fyrir sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi