Fréttamaðurinn geðþekki Magnús Hlynur Hreiðarsson segist gáttaður eftir lestur Bændablaðsins í dag. Þar má finna opið bréf nemenda Garðyrkjuskólans á Reykjum til Lilju Alfreðsdóttur. Nemendur fullyrða að kennslutæki sem þeim hefur borist sem gjöf hafi verið tekin frá nemendum.’
Nemendur hafa áhyggjur af framtíð skólans en nýverið var ákveðið að færa garðyrkjunám frá Lbhí til FSu. Garðyrkjuskólinn starfaði sjálfstætt í áratugi og var byggður upp með gjöfum. Nú hafa þessar gjafir verið fjarlægðar af nemendum. Í bréfinu segir:
„Eins má nefna að 12 smásjár sem færðar voru Garðyrkjuskólanum að gjöf frá sambandi Garðyrkjubænda og dýrmætri múgvél sem skólinn á ásamt fleiri mikilvægum tækjum hafa verið tekin frá nemendum Garðyrkjuskólans og færðir upp á Hvanneyri af stjórnendum Lbhí svo dæmi séu tekin.”
Magnús Hlynur segist steinhissa eftir að hafa lesið bréfið. „Sem fyrrverandi nemandi Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi finnst mér þetta opna bréf til menntarmálaráðherra í Bændablaðinu í dag frá nemendum skólans stórmerkilegt. Er virkilega verið að taka kennslutæki (gjafir til skólans) af nemendum og flytja á Hvanneyri? Ég er bara ekki að trúa þessu. Og hvað þá að það sé engin af starfsmönnum á Reykjum, nemendur eða einhver frá græna geiranum í samráðshópi vegna flutnings námsins til Fjölbrautaskóla Suðurlands hér á Selfossi. Nú er ég hissa.”





















Athugasemdir