Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tobba segir það Jóni Steinari að kenna að nauðgari hennar slapp

Tobba segir það Jóni Steinari að kenna að nauðgari hennar slapp
Tobba Marinós Mynd / Hallur Karlsson

Tobba Mar­ín­ós­dóttir, rit­stjóri DV, segir það Jóni Steinari Gunn­laugs­syni að kenna að nauð­gari hennar slapp við alla refs­ingu. Tobba greinir frá því í aðsendri grein á Vísi að henni hafi verið nauðgað af hátt­settum manni í banda­ríska hernum.

Rétt áður en hann var dæmdur fyrir það þá aflétti Jón Steinar far­banni yfir mann­inum. Afleið­ingar þess eru að mað­ur­inn flúði land og hefur aldrei þurft að svara fyrir brot sín. Eftir því sem Tobba kemst næst þá hafði nauðgun manns­ins ekki einu sinni afleið­ingar fyrir hann í starfi.

„Þetta er ekki fyrsta né síð­asta dæmið um vinnu­brögð Jóns Steinars og af hverju hann er ekki undir neinum kring­um­stæðum mað­ur­inn sem ætti að kalla til til þess að lag­færa rétt­ar­kerfið. Hann hefur ítrekað sýnt dóm­greind­ar­brest sem er engum sæm­andi, hvorki lög­fræð­ingi né fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ara,“ segir Tobba.

Pistil Tobbu má lesa í heild sinni hér fyrir neðan

Mikið hefur verið rætt um ráðn­ingu Jóns Steinars Gunn­laugs­sonar, lög­manns og fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, í ráð­gjafa­starf við dóms­mála­ráðu­neytið. Á Jón að veita ráð­gjöf varð­andi end­ur­bætur á rétt­ar­kerf­inu, þá sér­stak­lega með stytt­ingu máls­með­ferðar í huga.

Jón er mjög umdeildur fyrir störf sín, sér­stak­lega í kyn­ferð­is­brota­málum, og hafa sér­at­kvæði hans vakið mikla reiði meðal fólks þar sem hann talar gjarnan fyrir mildun dóma yfir kyn­ferð­is­brota­mönnum. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur bent á að Jóni sé ekki falið að skoða kyn­ferð­is­brot sér­stak­lega, heldur umbætur á rétt­ar­kerf­inu með áherslu á efna­hags­brot. Hann reyndar kann­ast ekki við það sjálfur að eiga að ein­beita sér að efna­hags­brotum.

Jón á sum sé að koma með til­lögur að úrbótum á rétt­ar­vörslu­kerf­inu sem mörgum – og sér í lagi mörgum þolendum kyn­ferð­is­of­beldis – finnst hann sjálfur hafa grafið undan með sér­at­kvæði sínum.

En málið snýst ekki um kyn­ferð­is­brot heldur dóm­greind manns­ins sem um ræðir.

Fyrir rúmum 11 árum varð ég fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Ger­and­inn var Banda­ríkja­maður og hefði átt að fara úr landi innan við sól­ar­hring eftir að hann var hand­tek­inn.

Ég safn­aði saman öllum mínum and­lega styrk og með hjálp míns góða fólks stóð ég með sjálfri mér og kærði mann­inn. Hann var í kjöl­farið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald og svo síðar, þegar honum var sleppt úr því, í far­bann.

8 dögum fyrir dómsuppkvaðningu

Þegar 8 dagar voru í að dómur yrði kveðin upp hafði mann­inum verið haldið nauð­ugum hér­lendis í 66 daga. Far­bannið yfir honum átti að vara í 11 daga í við­bót við þessa 66 – það er að segja í þrjá daga fram yfir dóms­upp­kvaðn­ingu.

Það er eng­inn fram­sals­samn­ingur milli Íslands og Banda­ríkj­anna og því var ljóst að ef far­bann­inu yrði aflétt myndi við­kom­andi aldrei sitja af sér dóm­inn.

Þrír dagar voru í áætluð máls­lok þegar ger­and­inn kærði far­bannið. Jón Steinar Gunn­laugs­son, þáver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, fær málið á borð til sín en aðrir dóm­arar voru Ólafur Börkur Þor­valds­son og Viðar Már Matth­í­as­son.

Tekið skal fram að Jón Steinar hafði enga aðra aðkomu að mál­inu og var ekki dóm­ari í aðal­með­ferð máls­ins sem átti að ljúka þremur dögum síðar.

Jón Steinar hnoðar þá saman í eitt af sínum frægu sér­at­kvæðum þar sem hann segir að ekki sjái hann að rök­studdur grunur sé fyrir hendi að sak­born­ingur hafi gerst sekur um þá hátt­semi sem um ræðir.

Jón Steinar og Ólafur Börkur (í óþökk Viðars) fella því far­bannið úr gildi. Ólafur Börkur hafði þá áður með sér­at­kvæði reynt að fá far­bannið fellt úr gildi en hafði ekki erindi sem erf­iði fyrr en Jón Steinar var feng­inn að borð­inu.

Ofbeld­is­mað­ur­inn er þarna orð­inn þreyttur á því að hanga á einu dýrasta hót­eli lands­ins og í lík­ams­rækt­ar­stöð á víxl og er fljótur að láta sig hverfa, enda aðeins þrír dagar í að aðal­með­ferð ljúki og átta dagar í dóms­upp­kvaðn­ingu.

Átta dögum seinna er hann sak­felldur – en er þá á bak og burt og engin von um að fá hann fram­seldan. Eftir því sem ég kemst næst er einnig mjög ólík­legt að nokkuð um dóm­inn muni birt­ast á saka­skrá manns­ins, sem er hátt­settur í banda­ríska hernum, en ég hef þó ekki getað fengið skýr svör þess efnis frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu né banda­ríska sendi­ráð­inu.

Almennt virð­ist eng­inn í kerf­inu vita hvort erlendir rík­is­borg­arar sem eru dæmdir fyrir glæp hér­lendis – en eru ekki á land­inu og engin von er um fram­sal – þurfi að nokkru leyti að gang­ast við dómnum, svo sem með skrán­ingu á afbrot­inu á saka­skrá.

Því gat þessi dæmdi kyn­ferð­is­af­brota­maður haldið aftur til starfa sinna í banda­ríska hernum. Áfram gakk.

Dómurinn þyngdur ferfalt

Ég er ekki að vekja athygli á þessu máli í bit­urð eða reiði heldur til þess að benda á að kerfið okkar sann­ar­lega virk­aði þarna framan af – alveg þangað til að Jón ákvað að kippa því úr sam­bandi með því að bjóða mann­inum út bak­dyra­meg­inn korteri fyrir dóms­upp­kvaðn­ingu.

Ger­and­inn ákvað að áfrýja mál­inu engu að síður, hann hafði næg fjár­ráð og vissu um að hann þyrfti hvort eð er ekki að sitja af sér. Málið end­aði þó á þann veg að dóm­ur­inn var fjór­fald­aður og hann dæmdur í tveggja ára fang­elsi.

Sem hann hefur aldrei þurft að afplána.

Hver var þá eig­in­lega til­gang­ur­inn með öllu þessu ef ekki mátti halda mann­inum í átta daga lengur til þess að hægt væri að kveða upp dóm? Vissu­lega hefði hann samt getað áfrýjað en það hefði mátt taka afstöðu til frekara far­banns og fram­vindu máls­ins þá.

Þeir þrír hér­aðs­dóm­arar og fimm hæsta­rétt­ar­dóm­arar sem að mál­inu komu í aðal­með­ferðum þess sáu hvers lags var og dæmdu mann­inn sek­ann. Jón Steinar náði þó í gegnum far­banns­úr­skurð að klippa á rétt­ar­kerfið og tryggja það að mað­ur­inn þurfti aldrei að axla ábyrgð.

Þetta er ekki fyrsta né síð­asta dæmið um vinnu­brögð Jóns Steinars og af hverju hann er ekki undir neinum kring­um­stæðum mað­ur­inn sem ætti að kalla til til þess að lag­færa rétt­ar­kerfið. Hann hefur ítrekað sýnt dóm­greind­ar­brest sem er engum sæm­andi, hvorki lög­fræð­ingi né fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ara.

Undarlegt afl

Dóm­greind­ar­brestur dóms­mála­ráð­herra í þessu máli er einnig und­ar­legur í meira lagi. Ekki síst þegar horft er til þess að Jón Steinar var fljótur að henda henni fyrir vagn­inn þegar fréttir fóru að ber­ast af ráðn­ing­unni og spurn­ingar vökn­uðu um umfang verk­efnis hans.

Í mátt­lausum til­raunum sínum til að klóra í bakk­ann hefur Áslaug Arna gefið það út að ráðn­ing­ar­samn­ingur Jóns snú­ist ekki beint um kyn­ferð­is­brota­mál – þvert á móti sé lögð áhersla á efna­hags­brota­mál. Það kemur ekki fram í samn­ingi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við Jón Steinar, né kann­ast Jón sjálfur við það. Í við­tali á Bylgj­unni í gær sagð­ist Jón Steinar ekk­ert kann­ast við það að hann ætti að huga að efna­hags­brotum frekar en öðrum mála­flokkum.

Með því að velja svo umdeildan mann til starfa fer öll athygli á mann­inn ekki mál­efnið og verða til­lögur hans aldrei annað en harð­lega gagn­rýndar.

Ég get ekki annað séð en að Jóni Steinari hafi verið falið þetta starf í stór­kost­legri með­virkni með ein­hverju afar und­ar­legu afli. Nú er rétti tím­inn til að staldra við og læra af mis­tök­unum. Það er afskap­lega tak­mörkuð eft­ir­spurn eftir þessum manni í þetta starf. Þegar hann var spurður út í hug­myndir sínar um stytt­ingu með­ferðar mála í kerf­inu tal­aði hann meðal ann­ars um að kaupa nýja ljós­rit­un­ar­vél. Honum finnst þetta kannski allt eitt­hvað grín.

Mér finnst það ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi