Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hrottalegt morð í Íslandsferð

Hrottalegt morð í Íslandsferð

Árið 1982 var ekki mikið um ferða­menn á Íslandi. Helst var um að ræða ferða­langa sem vildu fara á óhefð­bundna ferða­manna­staði og áhuga­menn á borð við jarð­vís­inda­menn um lífið á þess­ari ein­angr­uðu eyju í Atl­ants­haf­inu.

Þetta sama ár komu til lands­ins þær Yvette og Marie Luce Bahuaud, franskar systur sem hugðu á ferða­lag um Ísland. “Mig lang­aði til Noregs og skildi aldrei af hverju við fórum til Íslands. Mig minnir að systir mín hafi endi­lega viljað það og fara þá á putt­anum um landið“ sagði Marie í við­tali við Morg­unablaðið nokkru síðar.

Hrottalegt morð og stórfelld líkamsárás

En ferða­lag systr­anna end­aði með skelf­ingu sem skók Ísland þar sem ferð þeirra end­aði á hrotta­legu morði á Yvette.

Grétar Sigurður Árnason, fæddur 1942 skaut Yvette til bana og slas­aði Marie illa.

„Klukkan eitt eftir mið­nætti kom hingað í Skafta­fell flutn­inga­bíll á ógn­ar­hraða og til­kynnti bíl­stjór­inn um slys á þjóð­veg­inum skammt vestan við Skeið­ar­ár­brú. Hann kvaðst hafa komið þar að bíl en við bíl­inn voru maður og stúlka. Stúlkan var í miklu upp­námi og blóðug“. sögðu Lára V. Helga­dóttir og Þor­bergur Jónsson, land­verðir í Skafta­felli í Öræfum.

Logið til um bílslys

Lára sagði mann­inn hafa sagt að sér hefði verið tjáð af bíl­stjór­anum að hann hefði ekið á stúlku á þjóð­veg­inum og ætti í erf­ið­leikum með að hemja hana og koma henni inn í Benz-bíl sinn, henni til aðstoðar. Sagðist öku­mað­ur­inn á Benz-bif­reið­inni vera að reyna að ná tal­stöðvasam­bandi til að útvega hjálp, en það hefði ekki tek­ist

Þor­bergur segir þau hafa hringt í lög­regl­una í Svína­felli og farið með lög­reglu­manni niður á Skeið­ar­ár­sand til að veita aðstoð. „Þegar við urðum einskis vör, datt okkur í hug að ökur­maður Benz-bif­reið­ar­innar hefði náð stúlkunni upp í bíl­inn og freistað þess að koma henni undir lækn­is­hendur“.

Blóðug og með höfuðáverka

„Þegar við ókum til baka og vorum í nánd við afleggjara að sælu­húsi, sem er skammt vestan við brúna á Skeið­arár, sjáum við stúlku í bil­ljós­unum og veif­aði hún okkur. Stúlkan var mjög blóðug og með tals­verða höf­uð­á­verka. Sagðist hún hafa fengið áverka þessa af völdum manns sem hefði barið hana með riffli. Hafði hann ráð­ist á hana og systur hennar í sælu­hús­inu“.

Síðar kom í ljós að mað­ur­inn, Grétar Sigurður, hafði kynnt sig sem lög­reglu­yf­ir­vald á svæð­inu og boðið þeim far sem þær þáðu, enda var mað­ur­inn afar almenni­legur. Þær sögðu mannin­unum að þær hygð­ust gista í sælu­húsi á Breiða­merk­ur­sandi.

Kom aftur með riffil

Hann ók þeim systrum að sælu­hús­inu á Breiða­merk­ur­sandi, en sagði húsið fullt og ekk­ert svefn­pláss að fá. Aftur á móti kvað hann vita um laust sælu­hús á Skeið­ar­ár­sandi og ók hann þeim þangað. Mættu þau á svæðið um kl. 20:00 um kvöldið og fór mað­ur­inn skömmu síðar.

Marie sagði mann­inn hafa mætt aftur upp úr kl. 23:00  en þá hafi þær systur verið gengnar til náða. Ekki finn­ast heim­ildir um hvað fram fór annað en Grétar krafð­ist þess að syst­urnar kæmu með sér til Hafnar í Horna­firði þar sem þær hefðu gerst sekar um hass­reyk­ingar sem þær aftóku með öllu. Fór þá mað­ur­inn út bíl og sótti raf­magns­vír sem hann hót­aði að binda stúlk­unar með. Einnig kom hann með riffil úr bílnum.

Hótaði hann stúlk­unum öllu illu. Hann sló Marie Luce í höf­uðið með byssu­skefti og rot­aði hana, barði Yvette sem náði að flyja en Grétar elti hana og skaut í bakið. Þrátt fyrir tak­mark­aða með­vit­und heyrði Marie skotið. Þegar Grétari varð ljóst að Yvette var látin flúði hann vett­vang og faldi sig í helli. Grétar var  hand­tek­inn degi seinna.

Eftir að Marie náði með­vit­und gekk hún niður á þjóð­veg þar sem land­verð­irnir fundu hana, blóð­uga, með tölu­verða höf­uð­á­verka en við­ræðu­hæfa.

Heyrði ógurleg neyðaróp stúlkunnar

„Ég kom að Mercedes Benz bif­reið­inni þar sem hún stóð ská­hallt á veg­inum, vestan við Skeið­ar­ár­brú. Þar voru bremsu­för og virt­ist mér sem bíll­inn hefði snú­ist á veg­inum“ sagði Svein­björn Garð­ars­son, flutn­inga­bíl­stjóri og vitni.“

„Reyndar sýnd­ist mér áður að bíll­inn hefði verið á fleygi­ferð, en svo virð­ist sem stúlkan hafi reynt að kasta sér út úr bílnum þegar hún varð mín vör. Maður nokkur stóð við bíl­inn og stoppa ég þá flutn­inga­bíl­inn og skrúfa niður rúð­una.“

Heyrir Svein­björn þá ógur­leg neyð­aróp stúlkunnar en á þessum tíma­punkti lá Yvette látin í skott­inu.

“Please help me. He tries to kill me”

„Ég spyr mann­inn hvað fyrir hafi komið og seg­ist hann hann hafa ekið á stúlk­una í myrkr­inu. Þá sé ég hvar stúlkan  kraflar sig í átt að bílnum mínum, grípur í stuðar­ann, skríður upp tröpp­urnar  og nær hand­festu á speg­il­fest­ing­unni.  Hún var skelf­ingu lostin og hróp­aði í sífellu:„Please help me. He tries to kill me”. Svein­björn spyr mann­inn hvað gangi á og segir hann stúlk­una vank­aða eftir höggið og hann skuli sjá um hana.

Svein­björn segir stúlk­una hafa verið mjög blóð­uga á höndum og í and­liti og hafi hann talið það vera vegna fyrr­nefnds umferð­ar­slyss. “Þegar ég ætla að fara að aka af stað og sækja hjálp hélt hún dauða­haldi í bíl­inn. Þá end­ur­tók hún hrópin og end­ur­tekur: „He tries to kill me”.

Svein­björn bað mann­inn að taka hana af bílnum til að hann gæti ekið áfram og var það í síð­asta skipti sem sem hann sá hana áður en Marie Luce kom aftur til Íslands ásamt fjöl­skyldu sinni til að bera vitni í mál­inu gegn Grétari.

Grétar Sigurður Árnason var þriðju­dag­inn 28 júní 1983 dæmdur til 16 ára fang­els­is­vistar fyrir að hafa banað Yvetter af ásetn­ing með riffli og stórslasað systur hennar.

Grétar Sigurður sat af sér dóm sinn og býr nú í Reykja­nesbæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi