Mannlíf náði tali af Guðbergi Guðnasyni í þann mund sem hann var að keyra út úr ferjunni Baldri nú áðan. Guðbergur ásamt 19 öðrum farþegum og átta manna áhöfn hefur verið fastur um borð í ferjunni frá hádegi í gær, eftir að hún varð vélarvana.
„Töluverður veltingur var um borð í skipinu á meðan það var dregið að höfn og voru einhverjir með matseðil gærdagsins framan á sér er þeir vöknuðu í morgun,“ segir Guðbergur, en kojur eru um borð sem farþegum gafst kostur á að hvílast í.
Sjá einnig: Guðbergur er fastur um borð í stjórnlausum Baldri: „Það veit enginn neitt hérna um borð“
Sjálfur svaf hann skínandi vel og segir áhöfnina hafa staðið sig með prýði „og kokkurinn hvað best! Boðið var upp á lambalæri í kvöldmatinn og í dag var ofnbakaður fiskur í hádeginu.“ Svo þótt allir séu eflaust fegnir að komast í land, ætti enginn að hafa farið svangur frá borði.
Farþegum er boðin áfallahjálp og því vert að spyrja hvort fólk hafi verið skelkað? „Nei, nei, nei, held að enginn hafi verið hræddur. Það var lítil hætta á ferðum á meðan hvessti ekki meir,“ segir Guðbergur.
Einhverjar skemmdir urðu á bílum og var lögreglan mætt að taka út tjónið.































Athugasemdir