Kristján Sigurjónsson, ritstjóri vefsíðunnar turisti.is, telur sig knúinn til að sækja um erlendan ríkisborgararrétt og snúa þannig baki við íslensku ríkisfangi sínu. Ástæðan eru fyrirhugaðar breytingar á kosningalögum sem koma í veg fyrir að hann geti kosið hér á landi.
Starfshópur um endurskoðun kosningalaga á vegum forseta Alþingis skilaði inn tillögum sínum í formi frumvarps til kosningalaga. Þar verða gerðar nokkrar breytingar á lögunum og ein þeirra er að kosningaréttur þeirra sem búsettir eru erlendis er tvöfaldaður, færður í 16 ár í stað 8 áður. Hins vegar er lagt til að kosningarétturinn falli niður að þessum 16 árum liðnum.
Þetta er Kristján ekki ánægður enda útlit fyrir að hann missi réttinn til að kjósa á Íslandi nú í sumar. Hann gerir það að umtalsefni í færslu á Faceboook. „Ekki þykja mér það góðar breytingar á kosningalögum að fella niður kosningarétt Íslendinga sem hafa búið í útlöndum í 16 ár eða lengur. Ekki bara til þings heldur líka í forsetakjöri,“ segir Kristján og heldur áfram:
„Svo vill til að nú í sumar eru sextán ár síðan ég flutti til útlanda og kannski fæ ég þá ekki aftur að kjósa „heima”. Þá er spurning hvort ég verði ekki að sækja um sænskan ríkisborgararétt. Hafði ekki hugsað mér að stíga það skref en nú þegar forseti Alþingis leggur til að við sem höfum langan samanburð frá útlöndum verðum tekin af kjörskrá þá er kannski best að snúa sér annað.“





















Athugasemdir