Íbúar í Vesturbæ Reykjavíkur er óttustlegnir yfir hundi sem gengur laus um hverfið. Dýrinu er lýst sem svörtu og grimmu sem hafi gert sig líklegt að gera atlögu að gangandi vegfarendum.
Fjölmargir íbúar hverfsins virðast hræddir við hundinn og óttast að hann geti skaðað börn eða önnur dýr í hverfinu. Það er Margrét nokkur sem stofnar til umræðunnar inni í hópi Vesturbæinga á Facebook. Þar segist hún hafa lent í hinum grimma hundi.
„Þessi grimmi hundur er laus á horni Sólvallagötu og Framnesvegar. Hann gerði sig líklegan til að ráðast á son minn. Eigandi beðinn um að sækja hann og passa að hann sleppi ekki aftur,“ segir Margrét.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vesturbæingar óttast þennan hund. Kári kannast vel við hvutta. „Ég setti inn innlegg um hann fyrir 2 dögum, sá hann á sama stað. Hann var einnig nokkuð skelkaður og tók á rás á móti mér með grimmilegu urri. Eigandi þarf vinsamlegast að girða í brók!,“ segir Kári.
Þór er ekki sáttur. „Þetta er í annað sinn à stuttum tíma sem kvartað er yfir þessum grimma hundi lausum hèr. Þarf ekki bara að fà lögregluna í màlið àður en hann drepur smàhund eða ræðst à barn? Þetta gengur ekki svona,“ segir Þór ákveðinn. Og Árni er sammála. „Lausaganga hunda er hættuleg fólki,“ segir Árni.
Halldóra segir ástandið óboðlegt. „Fyrir utan hættuna með tilliti til barna sem ætla að klappa hundinum í góðri trú, þà þarf að taka tillit til þeirra sem hafa verið bitnir alvarlega af hundum – það er ekkert meira triggerandi og traumatískt fyrir þà einstaklinga, en að að sjà lausan, aggressívan hund. Auðvitað eigum við að tilkynna það þegar hundur gerir sig líklegan til að ráðast á barn. Kemur því ekkert við hvað hundar eigi allt gott skilið; eða hvað?,“ spyr Halldóra.































Athugasemdir