Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nú á að okra á Íslenskum ferðamönnum – 437 prósent hækkun

Nú á að okra á Íslenskum ferðamönnum – 437 prósent hækkun

Verð tveggja fyr­ir­tækja sem leigja út ferða­bíla, hafa hækkað ískyggi­lega síðan í fyrra.  Happy Campers hækk­aði verðið hjá sér um 437 pró­sent og Kúkú Campers hækk­aði verðið um 141,5 pró­sent.

Ábendingar frá neytendum

Mannlíf fékk ábend­ingar varð­andi að verð hefði hækkað mjög mikið á milli ára hjá tveimur fyr­ir­tækjum sem leigja út ferða­bif­reiðar. Fyr­ir­tækin sem bent var á voru Happy Campers og Kúkú Campers. Eins og með­fylgj­andi kvitt­anir sýna hefur verð á þjón­ustu fyr­ir­tækj­anna hækkað óeðli­lega mikið. Það er greini­legt að okrað verður á íslenskum ferða­mönnum í sumar.

Allar per­sónu­upp­lýs­ingar hafa auð­vitað verið fjar­lægðar af með­fylgj­andi kvitt­unum. Þar að auki munu dag­settn­ingar ekki sjást á kvitt­unum. Engu að síður er greinin unnin eftir nákvæmum dag­settn­ingum, sam­kvæmt kvitt­unum. Tíma­bilið sem umræðir er ekki það dýrasta.

Happy Campers

Leigð var bif­reið sem kall­ast Happy 2, í viku tíma árið 2020. Bíll þessi tekur fjóra í sæti, en tvo í svefn­pláss. Þessi viku­leiga kost­aði árið 2020 35.900 krónur.

Sams konar bíll á sama tíma, kostar sum­arið 2021 hvorki meira né minna en 192.818 krónur (miðað við gengi evr­unar 15.03 2021). Hækkun á milli ára er því 437 pró­sent. Ekki var hægt að sjá á heima­síðu Happy Campers að um sér­kjör væri að ræða eða til­boð fyrir Íslend­inga.

Kvittun fyrir viku­leigu 2020 hjá Happy Campers

KúKú Campers

Leigð var bif­reið sem kall­ast AA campervan, í viku árið 2020. Bíllinn tekur þrjá í sæti og hefur tvö til þrjú svefn­pláss. Viku­leigan kost­aði 28.700 krónur.

Sams konar bíll á sama tíma kostar sum­arið 2021, 69.300 krónur. Hækkun milli ára er því 141,5 pró­sent.

Sé erlendur ferða­maður að bóka það nákvæm­lega sama, þarf við­kom­andi að borga 93.936 krónur og þá á það að vera með 14 pró­sent afslætti. Erlendir ferða­menn greiða því 35,5 pró­sent hærra verð en Íslend­ingar.

Kvittun fyrir viku­leigu 2020 hjá Kúkú Campers

KúKú Campers segja eft­ir­far­andi á síð­unni sinni:

„Vertu KúKú í sumar með KúKú, frá­bærir ferða­bílar í boði fyrir íslend­inga í sumar á sann­köll­uðu súper KÚkú til­boði. KúKú Campers hefur verið í starf­semi siðan 2012 og leigt erlendum gestum ferða­bíla af öllum stærðum og gerðum. Nú viljum við aftur bjóða Íslend­ingum að leigja sér ferða­bíl til að halda út í íslenska sum­arið og njóta frels­is­ins sem felst í að ferð­ast um á ferða­bíl. Ekki ein­ungis erum við að bjóða fáheyrð verð heldur getur þú treyst á KúKú þjón­ust­una sem er ann­áluð fyrir að vera ein­stök.“

Íslendingar geta ekki bókað beint á vefsíðunni

Íslend­ingar geta ekki bókað beint á vef­síð­unni eins og erlendir ferða­menn. Það þarf að senda tölvu­póst sem telja verður mjög sér­staka við­skipta­hætti, svo ekki sé meira sagt.

 CampEasy

Þetta eru ekki einu fyr­ir­tækin sinnar teg­undar hér á landi. CampEasy leigja einnig út ferða­bíla. Þar sem Mannlíf hefur ekki kvitt­anir frá í fyrra frá þessu fyr­ir­tæki, er ekki unnt að gera verð­sam­an­burð. Hér eru þó upp­lýs­ingar um verð hjá þeim, fyrir sama tíma­bil og sam­bæri­lega bif­reið.

CampEasy: Fullt verð fyrir viku er 168.000 krónur en eftir hina og þessa afslætti fer verðið niður í 99.120 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi