Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margir hræddir um líf sitt við hvarf Valgeirs – Skuldaði hættulegum mönnum háar fjárhæðir

Margir hræddir um líf sitt við hvarf Valgeirs – Skuldaði hættulegum mönnum háar fjárhæðir

Valgeir Víðisson var aðeins þrí­tugur er hann hvarf spor­laust í júní­mán­uði 1994. Sterkur grunur lék á því að honum hafi verið ráð­inn bani þá um nótt­ina.

Frá því árið 1970 hafa 42 ein­stak­lingar horfið spor­laust hér á landi og lík­ams­leifar þeirra aldrei fund­ist. Og eru þá ekki taldir með þeir sem hafa horfið erlendis né farist á sjó.

Eitt þekktasta og umtal­að­asta manns­hvarf síð­ast­lið­inna ára­tuga var hvarf Valgeirs, sem hvarf 19. júní 1994.  Talið var full­sannað að Valgeir hafi haft tengsl við und­ir­heima Reykja­víkur, og sterkur grunur var um að honum hefði verið ráð­inn bani nótt­ina sem hann hvarf.

Skuldaði hættulegu fólki háar fjárhæðir

Valgeir var rétt tæp­lega þrí­tugur þegar hann hvarf spor­laust frá heim­ili sínu á Lauga­veg­inum og frá upp­hafi hefur hvarf hans verið tengt fíkni­efna­við­skiptum. Valgeir skildi eftir sig sjö ára son, Óðinn.

Málið vakti gríð­ar­lega athygli á sínum tíma og var mikið um það fjallað í fjöl­miðlum. Að sögn vina Valgeirs skuld­aði hann hættu­legum og umsvifa­miklum fíkni­efna­sölum háar fjár­hæðir og innan raða fíkni­efna­heims­ins var aldrei efast um að hvarf hans tengd­ist þessum skuldum.

Það var álit margra innan lög­gæsl­unnar að með hvarfi Valgeirs hafi harkan í fíkni­efna­við­skiptum farið upp á nýtt stig, stig þar sem morð hafi bæst ofan á mis­þyrm­ingar skuld­ara, en slíkt hafi áður þekkst.

Þótti drengur góður

Þrátt fyrir ungan aldur átti Valgeir langan feril að baki í afbrotum, hann var þekktur sölu­maður fíkni­efna, flutti þau inn og dreifði til smá­sala. Hann hafði þegar hlotið dóma fyrir inn­flutn­ing, sölu og neyslu fíkni­efna og hlaut hann fyrsta dóm­inn aðeins fimmtán ára gam­all.

Samt sem áður virð­ist flestum hafa líkað afar vel við Valgeir og honum var yfir­leitt lýst sem hæg­látum og góð­hjört­uðum manni. Margir höfðu jafn­vel enga hug­mynd um neyslu hans, svo venju­legur og almenni­legur var hann í sam­skiptum við fólk. En eftir því sem fíkni­efna­neyslan jókst tóku vinir hans eftir breyt­ingu, hann varð óút­reikn­an­legri og gat rokið upp í reiði­köstum. Eitthvað sem áður hafði ekki verið áber­andi í skap­ferli hans.

Margir hræddir um líf sitt

Margar sögur fóru á kreik um hvarf Valgeirs. Ein var sú að hann hefði verið hræddur um líf sitt og flúið land undir fölsku nafni en að mati flestra sem að mál­inu komu þótti sá mögu­leiki ótrú­verð­ugur. Valgeir var pen­inga­lít­ill auk þess sem allt flest benti til þess að Valgeir hafi horfið í miklum flýti. Til að mynda var kveikt á sjón­varpi hans.

Lög­reglan lagði mikla vinnu í leit að Valgeiri. Fjöldi fólks var yfir­heyrt, fjörur voru gengnar, eyjar á Sundunum kann­aðar og svæði sem sem erfið voru til leitar könnuð ítar­lega. En aldrei feng­ust hand­bærar sann­anir um afdrif Valgeirs og enn þann dag í dag er hann ófund­inn.

Talið er að fjöldi aðila innan fíkni­efna­heims­ins viti um afdrif Valgeirs en þeir en þori ekki að koma fram af ótta við þá sem áttu hlut að máli.

Sorgarsaga sonarins

Eitt það sorg­leg­asta við sögu Valgeirs er að sonur hans, Óðinn jafn­aði sig aldrei á hvarfi föður síns en þeir feðgar höfðu verið mjög nánir. Í kjöl­farið tóku félags­mála­yf­ir­völd Óðin af móður sinni og var hann vistaður á barna- og ung­linga­geð­deild þar sem hann dvaldi næstu árin.

Óðinn komst síðar oft í kast við lögin fyrir fíkni­efna- og ofbeld­is­brot en hann hefur sagt í við­tölum að alla hans æsku, frá hvarfi föður hans, hafi verið dælt í hann lyfjum, róandi og ríta­lín til skiptis sem hann taldi að hefði síðar leitt til mik­illar fíkni­efna­neyslu.

Málið enn opið

Þar sem hvorki Valgeir né lík­ams­leifar hans hafa aldrei fund­ist er svo litið á að málið sé enn opið hjá lög­regl­unni, og komi á ein­hverjum tíma­punkti fram nýjar upp­lýs­ingar, verði það tekið upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi