Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig báða handleggina í janúar, upplifir gríðarlegan mun á nýju handleggjunum sínum. Sá hægri er talsvert sverari en sá vinstri og grínast hann með afmyndun sína á Facebook í dag.
Guðmundur Felix er duglegur að uppfæra Íslendinga um stöðu mála á síðu sinni á Facebook. Þar birti hann mynd sem sýnir stærðarmun handleggjanna nýju og segir:
„Mér líður eins og Hulk á hægri hliðinni en herra Spaghetti vinstra meginn.“

Guðmundur Felix er sá fyrsti í heiminum til að fá grædda á sig handleggi annars manns og var það gert nákvæmlega 23 árum eftir að hann missti báða hendleggi sína í slysi. Hann er nú farinn í endurhæfingu á annað sjúkrahúsð í Lyon. Hann er því farinn af Édouard Herriot-sjúkrahúsinu í Lyon þar sem hann hefur dvalið síðastliðnar vikur eftir aðgerð.
Fjölmargir Íslendingar hafa gaman af færslum Guðmundar og sú nýjasta þar engin undantekning. Berglind er ein þeirra mörgu sem skemmta sér yfir skrifum hans. „Sorry en nú hló ég upphátt,“ segir Berglind.
Guðmundur Felix fagnaði á dögunum sex vikna afmæli nýju handanna sem á hann voru græddar í einstakri aðgerð á heimsvísu. Með þeim áfanga runnu hann og hendurnar formlega saman þar sem liðamót og vöðvar hafi á þessum vikum náð að græðast.






























Athugasemdir