Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alma sögð hafa bannað bólusetningu náins aðstandanda – Leki kærður til Persónuverndar og lögreglu

Alma sögð hafa bannað bólusetningu náins aðstandanda – Leki kærður til Persónuverndar og lögreglu
Alma D. Möller land­læknir

Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Helga Birg­is­dóttir full­yrðir að Alma Möller land­læknir hafi, ásamt eig­in­manni sínum, bannað að náinn aðstand­andi, sem dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sóltúni, verði bólu­sett. Þar að auki segir Helga að leitað sé log­andi ljósi að þeim sem lak út þessum upp­lýs­ingum. Því síð­ar­nefnda vísar Alma á bug í sam­tali við Mannlíf.

Full­yrð­ing­arnar koma fram í færslu Helgu á Facebook þar sem hún lýsir furðu sinni yfir því hvers vegna Alma fylgi ekki eigin ráðum til íslensku þjóð­ar­innar. Og Helga skilur heldur ekk­ert í því hvers vegna land­læknir vilji halda þessu leyndu.

„Jón og séra Jón! Í morgun fékk ég merki­legt sím­tal frá deild­ar­stjóra í Sóltúni. Hún fékk það verk­efni að hringja í mig og spyrja hvort að ég vissi nafnið á þeim sem hefði lekið út upp­lýs­ingum um að; Alma land­læknir (og hennar maður) hefðu bannað að tengda­móðir hennar yrði bólu­sett. Það er mikil rann­sókn­ar­vinna í gangi til að finna hinn seka. Að Alma fylgi ekki sínum eigin ráðum til þjóð­ar­innar, finnst mér ein­kenni­legt. – Og for­vitni­legt að vita af hverju hún vilji halda ástæð­unni leyndri,“ segir Helga og heldur áfram:

Ástæðuna fyrir því að hringt hafi verið í Helgu segir hún vera þá að við leit á net­inu hafi fund­ist mynd af henni með hjúkr­un­ar­fræð­ingi á Sóltúni og þá hafi hún sjálf póstað sínum skoð­unum opin­ber­lega um sótt­varn­ar­að­gerðir hér­lendis. 

„Ef ég hefði nafn, þá myndi ég þegja eins og steinn um það. Ég ætla ekki að giska á ástæðu þess að hún vilji ekki bólu­setja tengdó; en giska þó á að senni­lega eigi ástæðan við um þús­undir ann­arra aldr­aðra…sem fá því miður ekki sömu upp­lýs­ingar og vernd.“

Hildur Björk Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins, sagð­ist í sam­tali við Mannlíf ekki vilja ræða mál­efni ein­stakra íbúa heim­il­is­ins né starf­semi þess. Hún vildi því hvorki stað­festa né hrekja þessa frá­sögn Helgu.

Svipaða sögu er að segja af við­brögðum Ölmu land­læknis sem seg­ist hvorki geta stað­fest né hrakið frá­sögn­ina því það sé ein­fald­lega ekki hennar að ræða heilsu­far tengda­móður sinnar. Hún fékk aftur á móti leyfi hjá sinni eigin móður til að ræða hennar bólu­setn­ingu. Aðspurð hvort Alma, eða ein­hver frá hennar emb­ætti, hafi reynt að finna út úr leka vegna máls­ins svarar hún því neit­andi. „Ég tek ekki ákvarð­anir fyrir hönd tengda­móður minnar og tel mér því ekki heim­ilt að ræða hennar heilsu­far. Hins vegar fór móðir mín, sem er á tíræð­is­aldri, í bólu­setn­ingu að feng­inni ráð­gjöf frá mér. Ég vil hvetja alla til að þiggja bólu­setn­ingu við Covid-19 og ég mun svo sann­ar­lega gera það sjálf þegar röðin kemur að mér,“ segir Alma.

Frétta­blaðið greinir síðan frá því að leki á upp­lýs­ingum úr sjúkra­skrá vist­manns á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sóltúni hafi verið til­kynntur bæði til Per­sónu­verndar og Land­læknis og í und­ir­bún­ingi er kæra til lög­reglu vegna máls­ins. Um er að ræða upp­lýs­ingar úr sjúkra­skrá náins aðstand­anda Ölmu land­læknis.

Þrátt fyrir til­raunir feng­ust ekki við­brögð frá Torfa Fjalari Jónassyni, hjarta­lækni og eig­in­manni Ölmu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi