Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurþóra finnur fyrir sorginni í öllum líkamanum: „Ótrúlega sorgmædd að hann fékk ekki að lifa“

Sigurþóra finnur fyrir sorginni í öllum líkamanum: „Ótrúlega sorgmædd að hann fékk ekki að lifa“

„Þennann máls­hátt fékk ég í litla páska­egg­inu í gær þegar við héldum aðal­fund Bergsins, sem varð til í minn­ingu um dreng­inn minn. Kannski mætti end­ur­orða það og segja að meyrt er móðu­hjartað því ég er svo sann­ar­lega meyr í dag. Í dag eru 5 ár frá því að dreng­ur­inn minn dó. Ég vakn­aði í morgun svo óum­ræð­an­lega sorg­mædd. Svona sorg­mædd að mér fannst ég lömuð. Svona getur sorgin verið. Hún leggst á mann án þess að maður geti rönd við reist.

Í dag ætla ég að leyfa sorg­inni að vera með mér, leyfa mér að gráta og sakna og finna hana í öllum lík­am­anum. Líka vera þakk­lát og muna og elska.

Á morgun verður allt betra – ég veit það af reynsl­unni. Eina leiðin er að leyfa sorg­inni að koma, heilsa henni, við­ur­kenna hana og leyfa henni að vera með mér og fara svo sína leið þangað til næst.

Knús á ykkur öll.“

Máls­hátt­ur­inn sem Sig­ur­þóra fékk.

Þessa færslu er að finna á Facebook síðu Sig­ur­þóru Bergs­dóttur sem missti son sinn sem féll fyrir eigin hendi fyrir fimm árum síðan, í dag. Bergur Snær Sig­ur­þóru­son svipti sig lífi eftir að hafa orðið fyrir mis­notkun og áföllum af hendi níð­ings.

Það er erfitt að lýsa til­finn­ing­unni við að missa barnið sitt, en Sig­ur­þóra reynir þó. „Ég er aðal­lega sorg­mædd yfir frá­falli Bergs, ég hef ekki verið til­tak­an­lega reið. Bara svo ótrú­lega sorg­mædd yfir því að hann fékk ekki að lifa.“

Bergur Snær var mynd­ar­legur, ungur maður. Blessuð sé minn­ing hans.

Sjarmeraði miðaldra konur

Bergur var glæsi­legur ungur maður eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd.  Sig­ur­þóra tekur undir það. „Já hann var fal­legur og hann kunni að nota það stundum. Hann hafði til dæmis alveg sér­stakan hæfi­leika að sjarma mið­aldra konur!“ segir Sig­ur­þóra og brosir við minn­ing­una.

„Bergur var glaður og góður drengur, honum var mikið í mun að láta fólki líða vel. Hann var mjög góður í mörgu, sér­stak­lega öllu lík­am­legu, frá­bær á skíða­bretti og slíku. Hann gat verið mjög utan við sig og margar fyndnar sögur af því, en bara ósköp blíður og góður drengur sem þótti vænt um fólk. En hann hafði líka mikið keppn­is­skap og kunni því illa að tapa,“ segir Sig­ur­þóra um dreng­inn sinn.

Kerfin og biðin mannskemmandi

Aðspurð um hvort kerfið hafi brugð­ist Bergi svarar Sig­ur­þóra því ját­andi. „Sak­sókn­ari brást en líka kerfin sem eiga að hjálpa. Hann fékk fullt af hjálp en ein­hvern vegin pass­aði ekk­ert fyrir hann. Kerfin eru svo aðskilin, það er ekk­ert sam­ræmt kerfi sem grípur og heldur utan um ung­menni. Svo er líka alltaf þessi bið eftir hjálp sem hentar sér­stak­lega illa fyrir þennan hóp. Fyrir ung­menni er á þessum aldri virkar ein vika miklu lengri en þegar maður verður eldri, hvað þá mán­uðir, í van­líðan, á biðlista eftir hjálp.“

Sig­ur­þóra segir að kerfið þurfi að skil­greina allt. „Þessi með­ferð er við fíkn, önnur með­ferð er við kvíða, enn önnur við ein­hverju öðru, það er alls staðar löng bið og ekk­ert sam­band virð­ist vera á milli aðila. Það á ekki að skipta máli hvað er að, maður vill bara fá góða hjálp. Ég vil setja fólk í miðj­una, ekki kerfið eða flokk­un­ina. Núna er til dæmis margra mán­aða bið eftir sál­fræði­þjón­ustu í heilsu­gæsl­unni og jafn­vel ára­löng bið eftir átrösk­un­ar­með­ferð og áfalla­með­ferð til dæmis. Alger­lega fárán­legt.“

Bergið hjartans mál

Sig­ur­þóra kveðst hafa viljað notað kraft og áhuga allra í kringum sig til að grípa til aðgerða og gera eitt­hvað til að aðstoða ung­menni. Í kjöl­farið var tóku hún og fleiri sig til og stofn­uðu Bergið af miklum mynd­ar­skap.

Bergið er hennar hjart­ans mál. „Upp­haf­lega stóð til að opna með­ferð­ar­úr­ræði en þegar ég fór að kanna málið betur sá ég að þegar voru til staðar mörg úrræði fyrir ungt fólk í vanda. Eins og ég sagði, starfið er gott en hug­mynda­fræðin innan kerf­is­ins er að hólfa vanda­mál niður og því verður þjón­ustan afar sér­hæfð.

Því ákváðum við að til Bergsins væri unnt að leita við minni til­efni og grípa inn í áður en vand­inn er orð­inn of mik­ill.“

Bergið er stað­sett að Suð­ur­götu 10 í Reykja­vík.

Bergið er stað­sett að Suð­ur­götu 10 og þangað getur ungt fólk mætt eða bókað tíma hjá ráð­gjafa og fengið við­tal. Bergið býður upp á ókeypis þjón­ustu fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri á þeirra eigin for­sendum, án skil­yrða og þrösk­ulda. „Við erum með með góð tengsl við önnur úrræði. Ef vand­inn er stór og flók­inn, getum við hjálpað fólki að finna leið,“ segir Sig­ur­þóra.

Veit að við höfum hjálpað

Sig­ur­þóra vill trúa því að Bergið hefði hjálpað Bergi hefði slík þjón­usta verið til staðar áður en hann lést. ,,Maður veit auð­vitað aldrei en við erum alla vega búin að hjálpa mörgum veit ég, ungu fólki sem hafði ekk­ert aðgengi að aðstoð áður.“

Sig­ur­þóra segir að einnig sé boðið upp á fjar­þjón­ustu með aðstoð Kara Connect, þar sem hægt er að fá fund hjá ráð­gjafa í gegnum fjar­funda­búnað. „Slíkt getur til dæmis hentað þeim sem búa úti á landi,“ segir Sig­ur­þóra, sem jafn­vel á þessum erf­iða degi er reiðu­búin að ræða Bergið og úrræði fyrir ung­menni enda brennur hún fyrir mál­efn­inu.

Börnin útbrunnin

Að sögn Sóveigar Þor­vald­óttur hjá Berginu er með­al­aldur þeirra sem þangað leita 19 ára en börn allt niður í 12 ára gömul hafi komið og leitað sér aðstoðar. Aðspurð segir hún vanda­málin vera af ýmsum toga en oftar en ekki sé verið að grípa ung­menni áður en þau lendi á braut frek­ari erf­ið­leika.

„Sem dæmi megi nefna sjáum við mikið af ung­mennum sem hafa þurft að takast á við gríð­ar­lega ábyrgð á unga aldri, oft vegna and­legra veik­inda eða fíknar for­eldra. Mörg þeirra þurftu að reka heim­ili og sjá um upp­eldi yngri systk­ina frá barns­aldri og eru ein­fald­lega útbrunnin. Þarna vil ég að mörgu leiti kenna skóla­kerf­inu um, það er ekki að grípa inn í þegar þau verða vör við aðstæður barn­anna.

Aðrir koma vegna ein­eltis kvíða og alls kyns and­legrar van­líð­unar. Við viljum ítreka að við erum hér til staðar fyrir þau og eru þau ávallt vel­komin.“

Allar nán­ari upp­lýs­ingar má sjá á heima­síðu Bergsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi