Felix Bergsson syrgir frænda sinn Bergur Snær Sigurþóruson á Facebook en í dag eru fimm ár síðan hann lést. Bergur var 19 ára gamall þegar hann svipti sig lífi í mars árið 2016. Foreldrar hans telja að það hafi ekki hjálpað honum andlega þegar saksóknari felldi niður mál gegn manni sem beitti hann kynferðislegu ofbeldi.

Felix segir Berg hafa verið fallegan og góðan dreng. „Í dag eru fimm ár frá því að elsku Bergur Snær kvaddi okkur. Ég fæ enn kökk í hálsinn og tár í augun þegar ég sé myndir af þessum fallega og góða dreng sem hafði svo mikið að lifa fyrir en sá ekki leið út úr örvæntingunni. Hann var elskaður. Hans er sárt saknað. Hugsa til Siggu, Rúnars, Margrétar, Eyjólfs Felix og mömmu og pabba á þessum degi. Missir þeirra var og er svo mikill,“ segir Felix og bætir við:
„Ég hvet alla til að styrkja Bergið (bergid.is) og Pieta samtökin (pieta.is) í minningu allra þeirra sem glímdu við erfiðleika og þurftu aðstoð en komust ekki í höfn. Við skulum standa saman um börnin okkar.“
Rætt verður við móður Bergs heitins í einlægu kvöldviðtali Mannlífs í kvöld.































Athugasemdir