Íslensk kona er grunuð um barnaþrælkun, fjárdrátt og sálrænt ofbeldi gagnvart þremur stjúpbörnum sínum. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum en Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald yfir henni í gær.
Héraðsdómur hafði degi áður samþykkt gæsluvarðhald. Stjúpmóðirin liggur undir grun um að hafa látið börnin vinna myrkranna á milli en hún hirti svo sjálf launin. Peningurinn fór svo ýmist út úr landi eða í spilakassa.
Lögreglan færði rök fyrir því að konan þyrfti að fara í gæsluvarðhald bæði þar sem hún var talin líkleg til að hafa áhrif á börnin en jafnframt að skjóta undan verðmætum.
Á hinn boginn sagði verjandi hennar að hún hafi verið búsett hér í mörg ár og væri ríkisborgari. Lögregla benti á að þó hún væri íslenskur ríkisborgari þá væri hún með sterk tengsl við erlent land, þangað sem peningurinn fór að hluta. Landsréttur var ekki sammála lögreglu og gengur konan því laus.





















Athugasemdir