Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sorgarsaga Kristjáns Viðars: Pyntingar í 1522 daga

Sorgarsaga Kristjáns Viðars: Pyntingar í 1522 daga

Það var árið 1974 að þeir Guð­mundur og Geir­finnur hverfa, sá fyrr­nefndi í jan­úar og síð­ar­nefndi í nóv­em­ber. Senni­lega fræg­ustu saka­mál Íslands­sög­unnar.

Þrátt fyrir að málið sé tæp­lega hálfrar aldar gam­alt er þjóðin enn upp­tekin af því, enda hafa hvor­ugur mann­ana né lík­ams­leifar þeirra fund­ist.

Fljót­lega voru sex ung­menni bendluð við hvörf mann­ana. Einn þeirra var Kristján Viðar Júl­í­us­son sem lést 7. mars sl., 65 ára að aldri.  Við frá­fall sitt stóð hann í mála­ferlum við íslenska ríkið sem hann krafði um rúma 1,4 millj­arð króna í bætur vegna ó­réttar, tjóns og miska sem hann varð fyrir.

Átakanleg æska

Saga Krist­jáns er að mörgu leiti afar átak­an­leg. Hann átti erf­iða æsku en faðir hans fórst með tog­ar­anum Júlí árið 1959 þegar Kristján var aðeins fjög­urra ára gam­all. Í við­tali við starfs­hóp inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem tekið var 2012, sagð­ist hann hafa kennt sjálfum sér um dauða föður síns. Sam­skipti hans við fóst­ur­föður sinn voru afar erfið.

Líf Krist­jáns Viðar ein­kennd­ist fljótt af óhóf­legri áfengis og vímu­efna. Aðeins 11 ára mun hann hafa byrjað að sniffa þynni og bens­ín til að „upp­lifa of­skynj­an­ir.“ Hann var rek­inn úr skóla í fyrsta bekk Gagn­fræða­skóla Aust­ur­bæj­ar.

Í geð­r­ann­sókn sem gerð var á hon­um 1976, seg­ir að Kristján Viðar hafi frá 17 ára aldri verið í mik­illi neyslu og aflað sér tekna með af­brot­um.

Hann var aðeins tví­tug­ur að aldri þegar grun­ur féll á hann vegna hvarfs Guðmund­ar og Geir­finns.  Kristján Viðar var þá í afplánun á Litla-Hrauni á 6 mán­aða fang­els­is­refs­ingu fyrir þjófnað og nytja­stuld. Hann var síðan fluttur í Síðu­múlafang­elsið 23. des­em­ber 1975 og yfir­heyrður vegna hvarfs Guð­mundar Ein­ars­sonar.

Látinn skríða á fjórum fótum

Kristján Viðar var settur í gæslu­varð­hald sem stóð yfir í 1522 daga. Af þeim tíma sat hann í ein­angrun í 503 daga en fjöldi rann­sókna hefur sýnt fram á að ein­angrun í þetta langan tíma hefur afar slæm áhrif á and­lega svo og lík­am­lega heilsu fanga.

Við kom­una í Síðu­múlafang­elsið hófst það sem mætti kalla afar nei­kvæð við­horf yfir­valda til Krist­jáns Viðars. Strax í upp­hafi mynd­uðu fanga­verðir og lög­reglu­menn hring og hrintu honum á milli sín í 10-15 mín­útur. Annað dæmi er að þegar Kristján Viðar hafði verið tæp tvö ár í gæslu­varð­haldi lést móðir hans en honum var ekki sagt frá því frá því fyrr en viku síðar.

Kristján Viðar svipt­ur svefni í Síðu­múla­fang­elsi. Barið var á klefa­h­urð­ina hans í tíma og ótíma og ýtt við hon­um ef hann sofn­aði. Þá sagð­ist hann hafa verið lát­inn skríða á fjór­um fót­um á sal­erni í fang­els­inu og hon­um jafn­vel ekki leyft að ljúka sér af áður en hann var rek­inn til baka í klef­ann. Við leit í klefa hans var Kristján Viðar lát­inn af­klæð­ast og bíða nak­inn í öðrum klefa.

All­ar þess­ar aðgerðir áleit Kristján Viðar vera pynt­ing­arað­ferðir til þess gerðar að brjóta hann niður. Hann sagði starfs­hópn­um í við­tal­inu að hon­um hafi liðið mjög illa í Síðumúla. Hann hafi verið rugl­aður á þess­um tíma og ekki getað gert grein­ar­mun á því sem var raun­veru­legt og óraun­veru­legt.

Árið 1980 fékk Kristján Viðar fang­els­is­dóm upp á 16 ár fyrir aðdild að dauða Guð­mundar Ein­ars­sonar og Geir­finns Ein­ars­sonar og afplán­aði 7 ár og 5 mán­uði.

Efinn eykst

Alltaf þótti sumum dóm­ur­inn yfir unga fólk­inu vafa­samur og hækk­uðu þær raddir eftir því sem árin liðu. Eftir því sem frekar kom í ljós hvernig staðið hafði verið að yfir­heyrslum og rann­sókn lög­reglu, hækk­uðu þær raddir sem kröfð­ust þess að málið yrði tekið upp að nýju.

Árið 2018 sýkn­aði hæsti­réttur sak­born­inga af öllum ákæru­liðum í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu þegar málið var tekið upp að nýju. Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sem skip­aði starfs­hóp til að fara yfir málið, óskaði aðstand­endum, Hæsta­rétti og þjóð­inni allri til ham­ingju með þessa nið­ur­stöðu

Bótakrafa Krist­jáns Viðar byggir á að hann hafi var tal­inn sekur maður að ósekju í tæp 40 ár auk þess að hafa setið í fang­elsi, sak­laus mað­ur­inn, í ríf­lega 7 ár.

Ríkið er einnig sagt hafa bakað sér bóta­skyldu með blaða­manna­fundi sem hald­inn var um málið árið 1977.

Kristján Viðar fékk greiddar bætur upp á 204 millj­ónir í lok jan­úar úr rík­is­sjóði á grund­velli laga um bætur vegna sýknu­dóms Hæsta­réttar. Upp­haf­leg krafa hanns var upp á 1,6 millj­arð króna og við frá­fall hans er krafan um mis­mun­inn fyrir Lands­rétti.  Kristján Viðar átti börn og munu þau erfa bóta­féð. Málið verður klárað þrátt fyrir lát Krist­jáns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi