Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þríeyki stjórnmálalegs óstöðugleika

Þríeyki stjórnmálalegs óstöðugleika
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Þegar rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var mynduð lýsti for­ystu­fólk hennar því yfir að þetta væri rík­is­stjórn stöð­ug­leika, stæði fyrir efna­hags­legan og félags­legan stöð­ug­leika og ekki síst póli­tískan stöð­ug­leika.

Er eitt­hvað í þessu hjá þeim Sigurði Inga, Bjarna og Katrínu?

Byrjum á póli­tískum stöð­ug­leika.

Íslandsmeistari í klofningi

Sigurður Ingi Jóhanns­son bauð sig fram með for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins haustið 2016 og klauf þar með flokk­inn. Mið­flokk­ur­inn varð til ári síðar og fékk fleiri atkvæði en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í kosn­ing­unum 2017. Slíkt hefur aldrei áður gerst í íslenskri stjórn­mála­sögu, að klofn­ings­fram­boð fái meiri fylgi en móð­ur­flokk­ur­inn. Sigurður Ingi er að þessu leyti Íslands­meist­ari í klofn­ingi flokka.

Þegar Albert Guð­munds­son klauf Sjálf­stæð­is­flokk­inn með Borg­ara­flokknum, Vil­mundur Gylfason Alþýðu­flokk­inn með Banda­lagi jafn­að­ar­manna og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir Alþýðu­flokk­inn með Þjóðvaka fengu þessir flokkar mun minna fylgi en móð­ur­flokk­arnir. Kosn­ingar stað­festu að minni­hluti fylgi­fólks flokk­ana höfðu fylgt flótta­fólk­inu.

Þegar Sigurður Ingi varð valdur að klofn­ingi Fram­sóknar með for­manns­fram­boði sínu og ekki síður því að hafa ekki byggt upp frið um nið­ur­stöðu for­manns­kjörs­ins mán­uð­ina á eftir, fylgdu fleiri atkvæði flótta­fólk­inu en þeirri for­ystu sem eftir sat.

Það er hægt að full­yrða að í öllum löndum sem byggt hafa upp virkt lýð­ræð­is­kerfi hefði Sigurður Ingi sagt af sér sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir kosn­ing­arnar 2017. Þess í stað leiddi hann flokk í sárum inn í rík­is­stjórn í von um að geta fundið honum til­gang við valda­stól­anna.

Er þetta merki um póli­tískan stöð­ug­leika, að kljúfa flokk og fagna því að minni ágrein­ingur sé innan þess flokks­brots sem eftir er?

Maðurinn sem helmingaði Sjálfstæðisflokkinn

Bjarni Bene­dikts­son tók við sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins rétt fyrir kosn­ing­arnar 2009, þegar flokk­ur­inn fékk sína verstu útreið í sög­unni. Fylgi við flokk­inn óx hratt í stjórn­ar­and­stöðu við einkar óvin­sæla rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, fór upp undir 40% í könn­unum vorið 2012, en fylgið fjar­aði síðan hratt þegar nær dró kosn­ing­unum 2013. Bjarni hefur leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í fjórum kosn­ingum og í þremur þeirra farið undir fylgi flokks­ins eftir klofn­ing Albert Guð­munds­sonar 1987 og í eitt skipti aðeins lít­il­lega yfir þá sögu­legu nið­ur­læg­ingu. Bjarni hefur því fest í sessi fylg­is­hrun Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir bankaránin miklu.

Og flokk­ur­inn hefur klofnað í for­mann­s­tíð Bjarna. Evr­ópu­sinnar úr flokknum stofn­uðu Viðreisn 2016, upp­lifðu sig svikin af for­manni sínum og for­ystu, sem hafði haldið Evr­ópu­dyr­unum opnum en lok­aði þeim skyndi­lega í stjórn­ar­sam­starf við Fram­sókn­ar­flokk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Þótt Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hafni nú sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn þá komu menn úr Sjálf­stæð­is­flokknum að stofnun Flokks fólks­ins og fyrrum fram­má­menn í flokknum voru í fram­boði fyrir hann. Kannski má rekja afstöðu Ingu til reynsl­unnar af sam­starfi við þessa Sjálf­stæð­is­flokks­menn fremur en hug­mynda­legs ágrein­ings. En hvort sem er, þá er ljóst að Flokkur fólks­ins sækir líka inn í gam­alt kjör­fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Eftir stofnun hans var Sjálf­stæð­is­flokkur klof­inn í þrennt.

Og Mið­flokkur umrædds Sig­mundar Davíðs klauf ekki aðeins Framsókn heldur sótti líka fylgi til ann­ars óánægju­arms innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, íhalds­fólks í einka­málum í bland við fólk með lands­byggð­ar­á­herslur. Það má lesa það af leið­urum og Reykja­vík­ur­bréfum Davíðs Odds­sonar í Mogga að hann, og sá hópur sem nú myndar póli­tískan söfnuð hans, á margt frekar sam­eig­in­legt með Mið­flokki en Sjálf­stæð­is­flokki. Eftir stofnun Mið­flokks­ins var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn því klof­inn í fernt.

Örugg staða Bjarna innan þess Sjálf­stæð­is­flokks sem eftir er byggir á þessu, að fólk sem gæti veitt honum aðhald úr ýmsum áttum er farið. Flokks­starf í Sjálf­stæð­is­flokknum er ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Flokk­ur­inn er ekki lengur fjölda­hreyf­ing heldur lítið annað en þröng valda­klíka kringum for­mann­inn.

Eins og Sigurður Ingi er Bjarni kóng­ur­inn yfir því sem eftir situr þegar hann hefur fælt mikið af fólki og atkvæðum frá flokknum. Það má vera að ein­hver vilji kalla það stöð­ug­leika, en það er stöð­ug­leiki byggður á getu­leysi til sátta, ófriði og sundr­ung.

Grimmasta forystan

Katrín Jak­obs­dóttir hefur til­heyrt for­ystu Vinstri grænna síðan hún var valin sem vara­for­maður 2003 og hefur leitt flokk­inn frá 2013. Þetta tíma­bil hefur ein­kennst af flótta þing­manna úr flokknum, meiri flótta en nokkur dæmi eru um í íslenskri stjórn­mála­sögu.

Svo virð­ist sem for­ysta Vg haldi fram kröfu um skil­yrð­is­lausa holl­ustu við þá línu sem hún markar og þoli enga and­stöðu, varla hóf­stillt and­mæli. Þetta má merkja af ummælum flótta­fólks­ins sem lýsir reynslu sinni af and­ófi við for­yst­una innan Vg sem mik­illi sál­rænni raun; að það hafi orðið fyrir grófu félags­legu ofbeldi; ein­elti, úti­lokun, þöggun og eina­grun.

Atgervis­flótt­inn frá Vg hefur verið mik­ill. Líklega mætti búa til ágætt stjórn­mála­afl úr því fólki sem taldi sér ekki líft innan flokks­ins eftir að það lýsti skoð­unum sínum á stefnu for­yst­unnar. Á kjör­tíma­bil­inu eftir Hrunið yfir­gáfu flokk­inn Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason, Guð­fríður Lilja Grét­ars­dóttir, Jón Bjarna­son og Lilja Mós­es­dóttir. Mögulega mætti telja Ögmund Jónasson með í þessum hópi, en hann hefur í umræðu lið­inna miss­era and­mælt stefnu for­yst­unnar harð­lega. Og á síð­asta kjör­tíma­bili yfir­gáfu svo þing­menn­irnir Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir Vg. Af fólki sem setið hefur á þingi sem vara­menn fyrir Vg og hafa lýst yfir að það sé hætt í flokknum má nefna þessi: Drífa Snædal, Eydís Blöndal, Hildur Knúts­dóttir, Margrét Pét­urs­dóttir og Andie Sophia Fontaine.

Þetta er glæsi­legur hópur. Það er engri rýrð kastað á núver­andi þing­flokk Vg þótt sagt sé að þetta flótta­fólk sé póli­tískt miklu meira spenn­andi hópur, með víð­ari skírskotun og öfl­ugri hug­mynda­deigla.

Kveðj­urnar til flótta­fólks­ins frá Vg hafa verið að þetta fólk sé vanda­málið. Eða að svona sé þetta í vinstr­inu, þar sem til­finn­ingar eru sterkar í kringum heitar hug­sjónir. Auðvitað getur það ekki verið. Það er aug­ljóst að for­ysta Vg er vanda­málið. Það eru engin dæmi um við­líka flótta frá nokkru stjórn­mála­afli í íslenskri sögu. Og það er frá­leitt rang­nefni að kalla þetta póli­tískan stöð­ug­leika.

Hrörnun lýðræðis er ekki stöðugleiki

Vg er í dag líkt og Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokkur, frið­samt og öruggt heim­ili for­ystu án gras­rótar. Frið­ur­inn byggir á flótta allra sem voru með andóf eða beygði sig ekki undir vilja for­yst­unnar. Sam­staðan í þessum flokkum byggir á að ekki eru leyfð nein and­mæli. Það mætti kalla það kirkju­garðs­frið, þar sem öll and­spyrna hefur verið jörðuð.

Rík­is­stjórn­ar­flokkar hafa haft for­ystu um að stór­auka fram­lög úr rík­is­sjóði til stjórn­mála­flokka. Í dag eru yfir þrír millj­arðar á kjör­tíma­bili. Þetta er í reynd styrkur til for­ystu sem getur ekki lengur treyst á félags­gjöld eða fram­lög almennra félaga og sem ekki kann eða getur nýtt sér vilja gras­rótar til sjálf­boða­liðs­starfa. Forystan nýtir þannig fé úr rík­is­sjóði til að halda lífi án gras­rótar, að halda áfram flokks­starfi þar sem flokks­starfið er ekk­ert nema for­ystan.

Og þessi eina­grun­ar­staða for­yst­unnar hefur markað allt starf rík­is­stjórn­ar­innar. Ráð­herr­arnir koma á kynn­ing­ar­fundi innan úr bak­her­bergjum og upp­lýsa þjóð­inni um ákvarð­anir sínar sem ekki hafa fengið neina umræðu í sam­fé­lag­inu, hvorki á þingi, innan almanna­sam­taka, í fjöl­miðlum né meðal almenn­ings almennt. Þjóðinni er ekki kynntur vand­inn og val­kost­irnir heldur aðeins nið­ur­staða ráð­herr­anna. Þetta er verk­lag fólks sem telur sig hafa slæma reynslu af lýð­ræði, telur að lýð­ræð­is­leg umræða tefji mál og eyði­leggi.

Það má vera að odd­vitar rík­is­stjórn­an­ar­innar upp­lifi stöð­ug­leika í bak­her­berg­inu með já-fólk­inu, sem eftir er í flokkum þeirra. En slíkur friður byggir ekki upp póli­tískan stöð­ug­leika í sam­fé­lag­inu. Þvert á móti grefur sá aflok­aði friður undan póli­tískum stöð­ug­leika.

K-kreppan eykur félagslegan óstöðugleika

En hvað með félags­legan stöð­ug­leika? Er rík­is­stjórnin að ná því mark­miði?

Hættan við kór­óna­krepp­una er að hún verði það sem kallað er K-kreppa. Einkenni slíkrar kreppu er að hluti hóps­ins, hin best settu, finna alls ekki fyrir sam­drætti heldur batnar staða þess þvert á móti. Þau halda tekjum sínum og eign­ar­verð hækkar og þar með verð­mæti eigna hinna betur settu og mest þó auður hinna auð­ugu. Þau sem standa best geta nýtt sér afslátt af virð­is­auka­skatti til fram­kvæmda og vaxta­lækkun til kaupa á eignum, þau kaupa sér heitan pott, skipta út eld­húsinn­rétt­ingu, byggja sól­pall, kaupa auka íbúð til að leigja og bæta enn efna­hags­lega stöðu sína.

Hinn arm­ur­inn á K-inu vísar niður. Það er fólkið sem missir vinn­una og þarf að þola tekju­missi. Lág­launa­fólk sem missir ekki bara aðal vinn­una, heldur líka vinnu númer tvö og þrjú sem það þurfti á að halda til að ráða við hús­næð­is­kostnað og fram­færslu. Tekju­missir leigj­enda, sem áður rétt náðu að greiða leig­una, fara nú með alla inn­kom­una til leigusal­ans og síðan í biðraðir hjá hjálp­ar­stofn­unum til að sækja mat fyrir fjöl­skyld­una. Inn­flytj­endur með veikt félags­legt bak­land og þar með minni bjargir til að mæta skyndi­legu og miklu tekju­falli, eru útsett fyrir verstu afleið­ingum sam­drátt­ar­ins. Sama á við um ungt fólk sem skuldar mikið; náms­lán, hús­næð­is­lán, bíla­lán; og er því við­kvæmt fyrir tekju­falli. Rann­sóknir sýna að þetta eru hóp­arnir auk öryrkja og fátæks eft­ir­launa­fólks sem til­heyra neðri arm­inum á K-inu, fólkið sem er að taka á sig allar byrð­arnar af krepp­unni. Og að innan þeirra hópa sem koma verst út eru konur fjöl­menn­ari.

Efnahagsaðgerðir sem ýkja ójöfnuð

Allar kreppur auka ójöfnuð, en kór­óna­kreppan hefur sýnt sig vera sér­lega skæð að þessu leyti. Þess vegna hafa ráð­legg­ingar allra alþjóð­legra stofn­ana snú­ist um að draga úr ójöfn­uði, ekki bara út frá rétt­læt­is­sjón­ar­miði heldur líka vegna þess að aukn­ing ójöfn­uðar dregur úr getu sam­fé­lags­ins til að reisa sig við. Ójöfn­uður er eitur sem grefur undan sam­fé­lögum, veikir þau og étur upp traust og getu til upp­bygg­ingar.

Það sést hins vegar á hag­tölum frá Íslandi að rík­is­stjórn Katrínar, Bjarna og Sigurðar Inga hefur ekki hlustað á þessar ráð­legg­ingar og varn­að­ar­orð. Hér hefur hús­næðis- og hluta­bréfa­verð hækkað meira en ann­ars staðar. Það er klár merki þess að aðgerðir stjórn­valda hafa flutt fé til hinna betur settu. Á sama tíma hefur aukn­ing atvinnu­leysis verið meiri hér en ann­ars staðar í okkar heims­hluta. Rík­is­stjórn­inni hefur mis­tek­ist að búa til störf, hefur það reyndar sem stefnu að gera það ekki. Markmið hennar er að geyma hin atvinnu­lausu á atvinnu­leys­is­skrá þar til einka­fyr­ir­tæki þurfa á þeim að halda.

Og það er hægt að benda á fleiri dæmi. Rann­sóknir sýna að fjórð­ungur launa­fólks á erfitt með að ná endum saman, fimmt­ungur getur ekki mætt óvæntum útgjöldum. Biðraðir eftir mat­ar­gjöfum lengj­ast. Andleg líðan hinna verst settu versnar, ekki bara lág­launa­fólks, aldr­aðra, öryrkja og atvinnu­lausra heldur líka náms­fólks. Þetta eru skýrar vís­bend­ingar um að K-ið okkar er hvass­ara en ann­ars staðar. Armur hinna betur settu rís hærra á meðan armur hinna lakar settu fellur skarpar.

Fókus rík­is­stjórn­ar­innar hefur snú­ist um að vernda eign­ar­verð með stór­auk­inni útlána­getu banka­kerf­is­ins. Það flytur fé til þeirra sem betur standa. Rík­is­stjórnin hefur hins vegar ekki búið til störf fyrir hin atvinnu­lausu. Ráð­herr­arnir trúa að það sé ekki rík­is­valds­ins að búa til störf heldur aðeins einka­fyr­ir­tækja.

Rót þess­arar trúar liggur í nýfrjáls­hyggj­unni, sem heldur því fram að ríkið geti aldrei orðið lausnin (vegna þess að ríkið sé vanda­málið) og að hin ríku séu drif­kraftur sam­fé­lags­ins, þau einu sem geta inn­leitt nýj­ungar, skapað störf og verð­mæti. Þessi dellu­hug­mynd hefur magnað upp ójöfnuð á lið­unum ára­tugum og þar með félags­legan óstöð­ug­leika. Rík­is­stjórn sem starfar í anda þess­ara kenn­inga ýtir undir félags­legan óstöð­ug­leika.

Stefnt að skilvirkni en engri seiglu

Þá er það efna­hags­legur stöð­ug­leiki. Tókst rík­is­stjórn­inni að inn­leiða hann?

Viðbrögð rík­is­stjórn­ar­innar við efna­hags­sam­drætti hefur ýkt ójöfnuð og þar með efna­hags­legan óstöð­ug­leika. Og með stuðn­ingi sínum við kvóta­kerfið, og önnur kerfi órétt­lætis, eykur rík­is­stjórnin enn ójöfnuð og óstöð­ug­leika.

Kvóta­kerfið hefur valdið meiri óstöð­ug­leika á Íslandi en nokkuð annað fyr­ir­brigði í Íslands­sög­unni, mögu­lega að Svarta dauða slepptum. Kvóta­kerfið hefur kippt fót­unum undan atvinnu­lífi og efna­hags­legum styrk margra sjáv­ar­byggða, svipt fólk atvinnu og lífs­við­ur­væri og fellt eignir þeirra í verði. Þetta hefur verið látið við­gang­ast í þeirri trú að skil­virkni, sam­þjöppun og arð­semi fyr­ir­tækja væru æðstu boð­orð efna­hags­stjórnar, ekki vel­ferð og öryggi borg­ar­anna.

Hús­næð­is­mark­að­ur­inn er rek­inn af sömu grimmd. Þar er áherslan á arð­semi verk­taka- og leigu­fyr­ir­tækja og sífella hækkun leigu- og sölu­verðs íbúð­ar­hús­næðis, þótt slíkt svipti þau efna­hags­legum stöð­ug­leika sem eru á leigu­mark­aði og þau sem hafa ekki ráð á að kaupa hús­næði. Hin lakar settu upp­lifa hús­næð­is­mark­að­inn sem óút­reikn­an­legt hel­víti, engan stöð­ug­leika.

Sam­bæri­leg áhersla á sam­þjöppun og skil­virkni hefur leitt til þess að sífellt færri og stærri fyr­ir­tæki drottna yfir sínum hluta mark­að­ar­ins þar sem þau inn­leiða fákeppni og ein­okun. Áhersla á arð­semi fyr­ir­tækj­anna, hversu mikið fé hægt er að draga upp úr rekstr­inum og færa eig­endum, veldur því að fyr­ir­tækin verða veik­burða og ein­sýn og skortir styrk og seiglu til að kom­ast í gegnum erf­iða tíma. Nema þá með ríku­legri fjár­hags­að­stoð úr almanna­sjóðum. Þetta sást vel í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar í fyrra þar sem fyr­ir­tæki sem árin á undan höfðu fært eig­endum sínum miklar arð­greiðslur voru komin í þrot aðeins nokkrar vikur inn í efna­hags­sam­drátt­inn.

Nýfrjálshyggjan holar atvinnulífið að innan

Núgild­andi atvinnu­stefna, með alla áherslu á hags­muni auð­ug­ustu fjár­magns­eig­end­urna og allra stærstu eig­endur allra stærstu fyr­ir­tækj­anna, mun halda áfram að hola atvinnu­lífið að innan. Stóru fyr­ir­tækin munu í leit að auk­inni skil­virkni og hag­kvæmni stærð­ar­innar áfram kaupa upp smærri fyr­ir­tæki, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki og önnur smá­fyr­ir­tæki og milli­stór, sem búa yfir seiglu til að mæta erf­ið­leikum. Eina mark­miðið er að flytja ávinn­ing­inn af sam­runa fyr­ir­tækj­anna til eig­enda hluta­bréf­anna. Á eftir stendur atvinnu­lífið veikar, brot­hætt­ara og fábreyti­legra og ólík­legra til að skapa nýj­ungar eða fleiri störf.

Þetta er ekki sér­ís­lenskt vanda­mál heldur vandi fyr­ir­tækja­rekst­urs alls staðar í okkar heims­hluta, afleið­ing þess að nýfrjáls­hyggjan hefur ára­tugum saman farið höndum sínum um atvinnu­lífið. Erlendis er fólk farið að við­ur­kenna vand­ann, hann er ekki aðeins ræddur af gagn­rýnendum kerf­is­ins heldur meðal stjórn­enda og eig­enda stærstu fyr­ir­tækj­anna. Jafnvel fyrir þeim er vand­inn aug­ljós. En vand­inn virð­ist hul­inn íslensku ráða­fólki.

Horfa á vitlausa mæla

Þótt Ísland hafi að sumu leyti verið vel undir áföllin búið og efna­hags­sam­drátt­ur­inn hafi orðið minni en fyrstu spár sögðu til um, er ljóst að íslenskt efna­hags­kerfi stendur nú veikt. Sam­drátt­ur­inn afhjúpaði hversu veik einka­fyr­ir­tækin eru, þau hafa ekki þrek til að mæta and­byr í fáeinar vikur, eru ólík­leg til að fjár­festa eða nota sam­drátt­inn til að und­ir­búa sókn eða byggja upp ný störf.

Sam­drátt­ur­inn afhjúpaði líka vilja­leysi stjórn­valda til nýta afl rík­is­ins til að skapa störf og nota með ein­hverjum hætti þá stöðu að hátt í 20 þús­und manns eru í raun komin á laun hjá rík­inu í gegnum atvinnu­leys­is­bætur. Í stað þess að nýta þessa stöðu til að gera stór­á­tak í orku­skiptum, efl­ingu inn­lendrar mat­væla­fram­leiðslu, skóg­ræktar eða íslensku­kennslu inn­flytj­enda, var opin­berum fjár­munum og tíma hinna atvinnu­lausu varið í bið. Bið eftir að einka­fyr­ir­tæki kalli hin atvinnu­lausu aftur til starfa.

Og þótt rík­is­stjórnin hafi boðað miklar opin­berar fram­kvæmdir þá hefur orðið minna úr þeim en boðað var. Markmið þeirra flestra er líka að hluta­fé­laga- og einka­væða opin­bera inn­viði. Þetta á við um fram­kvæmdir og fjár­öflun borg­ar­línu, en einnig um ráð­gerðar stór­fram­kvæmdir í sam­göngum. Reynsla þjóð­anna hefur sýnt að inn­leið­ing einka­fjár­mögn­unar inn í inn­viði og opin­beran rekstur er kostn­að­ar­sam­ari fyrir sam­fé­lagið og veikir því efna­hags­lífið. Þau einu sem græða er fólkið sem fær rentu af fram­kvæmd­unum.

Með því að halda áfram á braut nýfrjáls­hyggj­unnar er rík­is­stjórnin því í raun að grafa undan efna­hags­legum stöð­ug­leika. Ráð­herr­arnir stara á vit­lausa mæla og draga af þeim rangar álykt­anir. Hækkun eigna­verðs er ekki jákvæð teikn og heldur ekki aukin arð­semi fyr­ir­tækja þegar styrkur þeirra, seigla og þrek minnkar. Vaxandi eigna­ó­jöfn­uður sendir frá sér var­úð­ar­flaut sem stjórn­völd heyra ekki. Athyglin er á afkomu fjár­magns- og fyr­ir­tækja­eig­enda og eign­ar­hald þeirra á fyr­ir­tækj­unum en ekki á hinum atvinnu­lausu, þótt þar sé að finna aflið og get­una til að byggja upp öfl­ugra sam­fé­lag.

Allir vita að ójöfnuður er eitur

Það er því óskilj­an­legt hvaðan sú hug­mynd kemur að núver­andi rík­is­stjórn sé rík­is­stjórn póli­tísks, félags­legs og efna­hags­legs stöð­ug­leika. Þvert á móti grefur þessi rík­is­stjórn undan lýð­ræð­inu og þar með póli­tískum stöð­ug­leika. Hún ýkir ójöfn­uð­ar­á­hrif krepp­unnar og grefur þar með undan félags­legum stöð­ug­leika. Og í stað þess að við­ur­kenna eyði­legg­ing­ar­á­hrif nýfrjáls­hyggj­unnar lætur hún þessa hug­mynda­stefnu vera leið­ar­ljós allra aðgerðir hennar, sem óhjá­kvæmi­lega mun grafa undan efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Eini stöð­ug­leik­inn sem þessi rík­is­stjórn tryggir er áfram­hald­andi ógn­ar­völd auð­valds­ins, hinna allra rík­ustu; auð­ug­ustu fjár­magns­eig­end­anna og allra stærstu eig­enda allra stærstu fyr­ir­tækj­anna. En ógn­ar­völd þessa hóps, hinna fáu ríku, er mesta ógnin við stöð­ug­leika sam­fé­lags­ins. Um það eru ekki bara sós­í­alistar og aðrir gagn­rýnendur kap­ít­al­ism­ans sam­mála heldur er það líka við­ur­kennt af Alþjóða­bank­anum, Alþjóða gjald­eyr­is­sjóðnum, Efnahags- og fram­fara­stofnun Evrópu, klúbbi hinna auð­ugu í Davos, hring­borði for­stjóra stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna, mál­gögnum auð­valds­ins á borð við The Economist og Financial Times og allra máls­met­andi hag­fræð­inga, félags­fræð­inga og fræða­sam­fé­lags­ins alls, að ójöfn­uður er álíka ógn við sam­fé­lag manna og lofts­lags­váin.

Rík­is­stjórn sem ekki vinnur gegn ójöfn­uði dag og nótt, sér­stak­lega frammi fyrir efna­hags­sam­drætti sem mun magna upp ójöfnuð, getur aldrei talist stjórn stöð­ug­leika. Það er hreint hlægi­legt að halda slíku fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi