Facebook-síðan Líf án ofbeldis deilir reynslusögu móður sem eignaðist barn með ofbeldismanni. Hún kynntist honum ung og óþroskuð. Þegar hún varð ólétt stóð hún í þeirri trú að þá myndi ofbeldið hætta.
Þess í stað lét hann höggin dynja á maga hennar þegar hún var komin 20 vikur á leið. Enn þann dag í dag er hún með manninn á bakinu þó hún hafi losnað úr þessu ofbeldissambandi. Hún segir mikilvægt að lögum sé breytt því þetta gangi ekki lengur.
Hér fyrir neðan má lesa reynslusöguna í heild sinni
MÓÐIR SKRIFAR:
Ég var 19 ára gömul, týnd, með brotið sjálfstraust og fannst alltaf eitthvað vanta. Kynntist strák sem virtist svo góður og kom vel fram við mig, bara að ég vissi hvað beið þegar gríman féll. Fyrsta skiptið sem hún féll niður sátum við í bíl á leið í Smáralind og byrjaði hann að slá tómri gosflösku laust í hausin á mér og hló en bað ég hann um að hætta og við það litla að biðja hann um að hætta missti hann sig, bilaðist sló mig í framan reif síman minn af mér og kastaði honum úr bílnum. Því næst keyrði hann í Heiðmörk stoppaði þar reif mig útúr bílnum henti mér í jörðina og sagði að hann ætti að drepa mig fyrir að vera svona vanþakklát, henti mér svo aftur inní bílinn og keyrði af stað þar sem hann bjó fyrir utan Reykjavík, alla leiðina þangað grét hann og sagðist ekki skilja hvað hafi hlaupið í hann og reyndi biðjast afsökunar en ég var símalaus og vildi bara fá fara og reyndi að grát biðja hann um að hleypa mér út.
Þegar heim til hans var komið bað ég móður hans um síma til fá hringja í vinkonu mína og sá hún að ekki var allt í lagi og sagði ég henni hvað skeði og brotnaði niður, en fékk aldrei síma til hringja. Ég reyndi fara en móðir hans elti mig og talaði mig til að fara ekki og útskýrði fyrir mér að hann væri á kvíðalyfjum (sem í raun voru geðlyf) og þau væru líklegast að fara illa í hann og hún myndi láta hann leita sér hjálpar, sem ég trúði með meðvirknina í botni og fyrirgaf honum. Ofbeldið hélt áfram, stig magnaðist andlega og líkamlega, einhvernvegin tókst móður hans alltaf að tala mig til og ég gerði mér ekki grein fyrir því þá hvað hún var mikill þáttakandi í andlegu ofbeldinu.
Eitt kvöld fyrir afmælið hans fórum við út að borða og ætluðum að hitta vinkonur mínar eftir á og vini hans sem voru niðri bæ og gerðum við það. Nema að vinkonur mínar voru inná Bjarna fel og fór ég þangað til þeirra og hann stóð fyrir utan með vinum sínum að fá sérsígarettu og ætlaði svo að koma inn. Tíminn leið og hann var ekki að koma svo ég hringi í hann og ekkert svar, síðan koma vinir hans og segja mér að dyraverðirnir neita að hleypa honum inn því hann var svo drukkinn. Í því er ég að fara standa upp og ætla til hans þá birtist hann akkúrat öskrar öllu illu á mig og bítur mig í öxlina þannig að húðin rifnar, í því ýtti honum af mér og hleyp út. Hann kemur á eftir mér, nær mér og ræðst á mig fyrir utan Te og kaffi rétt hjá. Þrír strákar koma hlaupandi að mér og spurja hvort allt sé í lagi og ég lýg að þeim að ég væri bara grátandi af því ég hefði verið að rífast við vinkonu mína en nota tækifærið þar sem hann bakkar útaf þeim og fer í leigubíl heim til okkar.
Þegar ég er komin þanngað reyni ég að týna saman eitthvað af dótinu mínu til að flýja en á sömu stundu kemur hann inn þannig að ég tek síman minn og bíllykilinn minn og ætla fara fæ ég högg framan í mig og slæ ég hann til baka til ná að fara, en þegar ég er komin að stiganum til labba niður fæ ég högg í bakið og ranka við mér einhverju seinna neðst í tröppunum og búið að taka símann minn og lyklana af mér.
Ég kem mér aftur upp tröppurnar og reyni að finna síman minn og lyklana aftur því ég ætla að fara, núna er tækifærið er það eina sem ég er að hugsa, en enn og aftur situr hann grátandi með símann minn og lykilinn. Ég reyni biðja um það og þá byrjar hann að æsa sig aftur svo ég ætlaði bara að fara og finna hjálp úti en næ rétt að dyrunum þegar hann tekur um hálsinn á mér og ég er alveg að líða útaf, hann hótar að drepa mig og alla fjölskylduna mína ef mér dettur í hug að fara aftur. Á þessum tímapunkti varð mér ljóst að hann myndi drepa mig ef hann ætlaði sér það, eftir þetta
atvik gat ég ekki mætt í skóla né varla staðið uppúr rúmi vegna verkja í öllum líkamanum og marið á mér allri var það mikið að ég lokaði mig inni frá öllum og laug því ég væri veik á meðan marið á mér var að hjaðna sem sást vel, framan í mér, á hálsi og framhandleggjum. Enn í dag fæ ég smell í kjálkanum mínum og verk í rifbeininn eftir þetta umrædda kvöld.
Tíminn leið og ofbeldið andlega og líkamlega hélt alltaf áfram, ég var farin að ljúga að öllum í kringum mig til reyna fela sannleikan, að ég hélt fyrir þeim, en gerði mér aldrei grein fyrir því að ég var reyna flýja hann.
Síðan varð ég ólétt og hugsaði alltaf, hann mun hætta núna, hann mun leita sér hjálpar fyrir barnið. Bara ef ég hefði vitað hversu rangt ég hafði fyrir mér. Í gegnum meðgönguna, jú líkamlega ofbeldið vissulega minnkaði þó það væri alltaf til staðar en andlega ofbeldið jókst á móti. Í reiðiköstum reif hann svoleiðis í hárið á mér fleygði mér niður í gólfið. Einn daginn kom hann heim, ég var gengin um 20+ vikur á leið og hafði gleymt að kaupa einn hlut sem hann bað um í búðinni svo ég baðst afsökunar og ætla að fara út í búð ná í það, en þá byrjuðu öskrin um hvað ég væri svakalega gagnslaus og ógeðsleg. Svo tekur hann um hálsinn á mér, sleppir en lætur högg dynja í magann á mér og seigist óska þess þetta barn hefði aldrei komið og vildi óska þess það myndi drepast því ég yrði ógeðsleg móðir. Á þessum tímapunkti sé ég svart, slæ hann á móti öskra á hjálp og ætla út en hann rífur í mig þannig að ég næ að fara inná bað og læsa hurðinni og öskra á hjálp. Lögreglan kemur og ég sagði þeim hvað hann hafði gert og hvað væri búið vera í gangi en ég fékk enga hjálp, þau sögðu mér eingöngu að fara bara á öruggan stað.
Meðan ég lá sængurlegu eftir fæðingu barnins var í fyrsta skipti sem ég tók eftir afbrýðisemi útí barnið enda fékk ég að heyra hversu ógeðsleg og vanþakklát ég væri að hugsa bara og pæla í því en ekki honum og fékk högg á mig áður en hann strunsaði þaðan út til að detta í það. Með tímanum fór afbrýðisemin út í barnið og athyglina sem ég veitti barninu, að fara meir og meir í hann og ofbeldið magnaðist aftur. Einn daginn vaknaði hann og fór að leita að buxum sem hann ætlaði í, þær voru óhreinar svo hann tók mig hálstaki og sló mig meðan ég hélt að barninu sem var um það bil 4 vikna gamalt, lét mig svo heyra það hvað ég væri gagnslaus að ég gæti ekki gert neitt. Þegar barnið var um 3 mánaða neitaði hann að láta mig hafa það. Einn daginn þegar hann réðst á mig fékk ég kjarkinn og náði flýja til nágranna með barnið og var hringt á lögregluna og ég kærði hann fyrir brotin þessa umræddu nótt, sem hann er dæmdur fyrir nú í dag.
Líf mitt einkenndist af því að ég gat ekki farið út því hann sat fyrir utan húsið í bílnum og hótaði mér hvert skipti sem ég fór út sama hvort ég væri með barnið eða ein og nálgunarbann á honum. Hann birtist fyrir utan ræktina þegar ég var þar, þrátt fyrir að hann væri byrjaður með annarri
stelpu hélt þetta áfram. Hann reyndi allt og notaði barnið alltaf sem afsökun fyrir hegðun hans. Þó svo hann léti mig sækja barnið um miðjar nætur því barnið var að gráta eða hann sagði að barnið væri veikt þegar ekkert var að því, fór ég aldrei ein að sækja það ef ég gat fengið einhvern með mér.
Enn þann dag í dag er ég að reyna berjast fyrir rétti barnsins míns hjá sýslumanni sem hlustar ekki á mig, þrátt fyrir mikil einkenni vanrækslu barnsins og gögn um ofbeldi föður á núverandi heimili sem er samt bara brot af því sem raunverulega á sér stað, þar sem hann leyfir engum að tjá sig um það.
Það er mikilvægt að fara breyta lögum og reglum þegar að kemur ofbeldismönnum og börnum. Eru þetta aðstæður sem íslenska ríkið telur eðlilegt fyrir konur að ganga í gegnum eða börn að verða vitni að? Enginn getur sagt mér að maður sem er fær um að gera allt þetta sé í lagi eða hæfur að umgangast börn sem eru að mótast og þroskast, hvað gera svona aðstæður þeim?































Athugasemdir