Af myndum af dæma þá líkist stemmingin við gosið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þó að vísu séu töluvert færri þar. Þeir skipta þó þúsundum sem hafa gengið að gosstöðvunum að sögn Steinas Þórs Kristinssonar, í svæðisstjórn björgunarsveitanna á Suðurnesjum.
Steinar segir í viðtali við RÚV að flestir séu vel búnir enda töluverð ganga að gosinu. „Flestir eru bara í góðum málum og ekkert hægt að kvarta yfir því en það eru þessir örfáu einstaklingar sem að í rauninni sem að stinga mann svolítið svona því miður þá er það alltaf þannig að það eru alltaf einhverjir sem gera sér ekki grein fyrir því hvað þeir eru að fara út í. Bæði veðuraðstæður og gönguleiðina, þetta er ekki Laugavegurinn,“ segir hann.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Brynja Ragnarsdóttir tók



































Athugasemdir