Svo virðist sem dómur sögunnar verði Davíð Oddsyni ekki í vil, þrátt fyrir tilraunir hans og bandamanna um annað. Í það minnsta er hans minnst i geysivinsælli erlendri bók sem aula sem ofmat eigin hæfileika. Bókin heitir Think Again og er eftir sálfræðiprófessorinn Adam Grant. Hún er nú mest selda bók Bandaríkjanna í flokki sem ekki fellur undir skáldverk (e. non-fiction).
Viðskiptablaðið greinir frá þessu og fer yfir kaflann þar sem fjallað er um Ísland. Grant setur forsetaframboð Davíðs í samhengi við Dunning–Kruger-áhrifin, sem er tegund hugrænnar skekkju þar sem fólk ýmist vanmetur eða ofmetur færni sína. Grant fer yfir ábyrgð Davíðs á hruninu en segir að annað hvort vegna hroka eða ofmati á eigin getu hafi talið sig eiga möguleika á að vinna forsetakosningarnar.
Grant líkir Davíð við mann sem horfir á íþróttir í sjónvarpnu og telur sig fullvissan um að geta stýrt betur en þjálfarinn. Grant segir Davíð hafa „neitað að viðurkenna að hann væri ekki fær um að vera þjálfari – hvað þá leikstjórnandi. Hann var blindur á eigin veikleika,“ segir Grant í bókinni.
Halla Tómasdóttir er sögð hin hliðin á þessari hugrænu skekkju, kona sem vanmat eigið ágæti. Forsetakosningarnar sýndu hins vegar raunveruleikanna. Davíð endaði í fjórða sæti með tæplega 14 prósent atkvæði en Halla með nærri tvisvar sinnum meira, í öðru sæti með 28 prósent fylgi.































Athugasemdir