Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar – Þrúður Vilhjálmsdóttir – „Stundum eru vörur hlægilega dýrar“

Neytandi vikunnar – Þrúður Vilhjálmsdóttir – „Stundum eru vörur hlægilega dýrar“

Neytandi vik­unnar að þessu sinni er Þrúður Vil­hjálms­dóttir leik­kona og flug­freyja. Hún er gift Halldóri Erni Ósk­ars­syni og þau eiga einn son.  Þrúður útskrif­að­ist sem leik­kona 1997 og er án efa ein flottasta og færasta leik­kona okkar Íslend­inga. Hún á einnig glæsi­legan feril sem flug­freyja en hún hefur starfað sem slík í 17 ár. Þrúður var að ljúka tökum á Ófærð 3 þar fer hún með hlut­verk lög­reglu. Mannlíf fékk að spyrja Þrúði, nokk­urra spurn­inga um neyslu­venjur fjöl­skyld­unar og fleira. Hér að neðan eru hennar svör.

Hve miklu eyðir fjölskyldan í mat á mánuði og hvar verslar hún helst ?

„Ég reyni nú yfir­leitt að halda útgjöldum í ekki mikið meira en 100 þús­und kr á mán­uði en það gengur því miður ekki alltaf. Í mat­ar­inn­kaupum reyni ég að versla þar sem er gott vöru­úr­val svo það þurfi ekki að fara í aðra búð til að ljúka við mat­ar­inn­kaup. Og að sjálf­sögðu horfi ég á mat­ar­verðið.“

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

 „Ég reyni að nýta afganga til þess að elda upp úr að minnsta kosti einu sinni í viku svo það þurfi ekki að versla fyrir hvern ein­asta dag. Það gengur nokkuð vel. Reyni líka að gera stórar upp­skriftir stundum, t.d af lasagna sem dugar kannski í tvo daga þar sem við erum ein­ungis þrjú í heim­ili. Auðvitað myndi mig langa eins og alla aðra að lækka mat­ar­kostnað á ein­hvern máta þar sem mat­ar­verð er svo hrika­lega hátt hér­lendis. En ég get þó ekki bent sjálf á leiðir til þess…jú minnka álagn­ingu á vörum.“

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

 „Nei ekki alltaf. Stundum eru vörur hlægi­lega dýrar og þá getur álagn­ingin ekki verið sann­gjörn.  Kannski er ég ekki nógu dug­leg að gera verð­sam­an­burð. Held ég sé samt með ágætis samn­inga við þessi hefð­bundnu fyr­ir­tæki sem maður þarf að skipta við. Maðurinn minn hefur þó kynnt sér þetta mun betur en ég. Ég afþakka þó strax sím­töl frá fyr­ir­tækjum sem vilja bjóða mér betri kjör, leið­ist ekk­ert meira en það.“

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Ég er með bæði. Er með gam­alt verð­tryggt lán sem á þeim tíma stóð ein­ungis til boða.“

Leggur þú fyrir og ef svo er, hvaða leiðir notar þú ?

„Já, ég legg fyrir í hverjum mán­uði, bank­inn minn sér alfarið um það.“

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

 „Umhverf­is­vernd skiptir máli fyrir okkur og kom­andi kyn­slóðir. Ég hugsa það þó oft líka út frá fátækt í heim­inum. Ég á erfitt með að henda mat þó það ger­ist stundum. Sem barn var ég alltaf skyldug að klára mat­inn minn, þó að það væri ekki gert með áminn­ingu um að ekki fengju öll börn mat á diskinn, heldur var ég beðin um að ímynda mér að ég  væri í mat hjá kóng­inum þar sem dóna­skapur er að klára ekki mat­inn sinn. Ég  skrúfa alltaf fyrir vatns­kran­ann þegar ég bursta tenn­urnar, get nefni­lega aldrei látið vatn renna of lengi til einskis enda fá ekki allri jarð­ar­búar nóg af hreinu vatni. Ég mætti þó vera dug­legri að flokka plast, en papp­inn fer rétta leið og ferðir eru tíðar í end­ur­vinnsl­una. Ég get ekki hent fatn­aði, fer með hann í Rauða kross­inn þar sem hægt er að end­ur­nýta. Ég átti Nes­presso kaffi­vél um tíma og gat engan veg­inn hent hylkj­unum í ruslið. Þau fóru alltaf í end­ur­vinnsl­una enda var kaffi­vélin keypt með því skil­yrði að það yrði gert. Kannski er þver­sögn í þessu öllu­saman þar sem við keyrum um á bílum og fljúgum um hálf­oftin í flug­vélum. En ein­hvers staðar verður maður að reyna að beita sér í þessum málum til þess að passa upp á jörð­ina okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi