Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að líklega hafi ótímabært andlát vinar hans í veiðiferð orðið til þess að neitinn kviknaði og hann varð baráttumaður fyrir betra samfélagi. Ragnar segir frá þessu í viðtali við Segðu mér á Rás 2. Fram að veiðiferðinni hafði hann lítinn áhuga á pólitík.
Það var örlagaárið 2007 sem hann fór í veiðiferðina árlegu við Eystri-Rangá. „Hann var ekki bara vinur, við erum fjölskylda. Hann er giftur frænku minni og þarna var ég með pabba mínum og við fjórða mann. Við lentum í aðstæðum sem við hefðum aldrei getað ímyndað okkur að lenda í, að missa þarna náinn fjölskyldumeðlim í höndunum á okkur,“ segir Ragnar en hinn látni var einungis 35 ára.
Þeir reyndu endurlífgun án árangurs og þurftu því að horfast í augun við hryllinginn. „Það er svo mikill missir þegar þú ert með einhvern svona nátengdan þér.“ Fram að þessu stóð Ragnar í þeirri trú að lífeyrissjóðirnir væru bakland. Upp frá því fer ég að hella mér í að skoða lífeyrissjóðakerfið. Mögulega eftir á að hyggja hefur þetta verið mín leið til að takast á við áfallið. Það er kannski helsta skýringin að þetta hafi verið meira til að takast á við þetta áfall en eitthvað annað,“ segir Ragnar.
Hann fór á senda tölvupósta og fékk svör. „Ég var mjög hissa því þá sá ég að ég fann kraftinnn við að skrifa. Ég skrifaði ekki með greinaskilum, var lélegur í stafsetningu og lélegur námsmaður yfir höfuð því ég hafði ekki áhuga á því. En þarna fæ ég þetta til baka og þá kviknar þessi neisti.“































Athugasemdir