Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hæstaréttarforsetinn sem tók út brennivín á kostnaðarverði…og allir hinir

Hæstaréttarforsetinn sem tók út brennivín á kostnaðarverði…og allir hinir

Áfengið hefur orðið mörgum góðum drengjum, og stúlkum, að falli þótt ekki hafi alltaf farið hátt fyrir því. Aftur á móti kviknar áhugi land­ans á því þegar þing­menn og lands­þekktir emb­ætt­is­menn fara óhóf­lega í sam­skiptum sínum við Bakkus.

Lítum á nokkur dæmi þessi efnis…..

Taldi sig beittann órétti

Árið 1988 sagði Magnús Thorodd­sen, for­seti Hæsta­réttar og hand­hafi for­seta­valds, af sér emb­ætti í kjöl­far gríð­ar­legra inn­kaupa á áfengi á kostn­að­ar­verði. Á tæpum tveimur árum hafði Magnús keypt 2.160 flöskur af áfengi, þar af voru 84 flöskur af létt­víni en allt hitt var sterkt áfengi.

Magnús sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að hann teldi að kaup sín á miklu magni af áfengi á kostn­að­ar­verði brytu ekki í bága við almenna rétt­læt­is­kennd eða sið­ferði.

„Þessi réttur til að taka út áfengi á kostn­að­ar­verði hefur fylgt for­seta Hæsta­réttar þegar hann hefur verið hand­hafi for­seta­valds. Ég þekki ekki neinar reglur sem setja hatt á það hvað megi taka mikið. Þetta eru hlunn­indi sem fylgja starf­inu og menn hafa not­fært sér þetta áður “ sagði Magnús sem taldi sig beitt­ann órétti.

Ældi yfir farþega

Árið 2015 rataði Ásmundur Einar Dav­íðs­son, þáver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og núver­andi félags- og barna­mála­ráð­herra, í frétt­irnar þegar hann ældi út um allt í flugi til Washington. Hann var í vinnu­ferð með utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis ásamt fjölda þing­manna. Hann hafn­aði því með öllu að hafa verið ölv­aður þótt fáir hafi lagt trú á það og fjöldi far­þega hafi borið þess vitni að hann hafi drukkið stíft í flug­inu. Ásmundur ku hafa kastað upp yfir nokkur sæti við sal­ern­is­að­stöðu vél­ar­innar. Sjálfur kvaðst Ásmundur hafa verið með maga­kveisu auk þess að hafa tekið svefn­lyf.

„Ég pant­aði tíma um leið og ég kom heim og er eflaust á leið­inni í ein­hverjar maga­rann­sóknir.“ sagði Ásmundur í við­tali við DV á sínum tíma.

Jón Baldvin skrautlegur

Sam­skipti Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar fyrr­ver­andi þing­manns og ráð­herra við áfengi hafa löngum verið skraut­leg. Til að mynda keypti hann hund­rað flöskur af freyði­víni og sex af sterku á sér­kjörum fyrir afmæli fyrir afmæli vinar síns, Ingólfs Mar­geirs­sonar, árið 1988. Í kjöl­farið á því var rifjað upp þegar ofurölvi Jón Baldvin stökk allsnak­inn út í sund­laug þar sem nem­endur Mennta­skól­ans á Ísafirði voru að dimmitera. Hann var þá skóla­stjóri skól­ans.

Eyþór á staurnum

Það var árið 2006 að Eyþór Arnalds, núver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, ók drukk­inn á ljósa­staur á Sæbraut­inni. Eyþór má eiga það að hann reyndi aldrei að þræta fyrir það að honum hafi orðið á.

„Hvort sem maður er í fram­boði eða ekki á eng­inn að setj­ast undir stýri undir áhrifum. En það sem er mik­il­væg­ast er að gera sér grein fyrir því að þetta voru klár­lega mis­tök,“ sagði Eyþór í við­tali við Frétta­blaðið á sínum tíma. Hann fór í með­ferð í kjöl­farið.

Icesave ræðan illskiljanlega

Það var slá­andi áber­andi að Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, þáver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var drukk­inn í pontu þegar hann hélt ein­kenni­lega ræðu um Icesave málið árið 2009. Hann þrætti þó fyrir, sagð­ist aðeins hafa drukkið tvö vín­glös í golf­móti hjá MP banka en ekki verið ölv­aður. Fæstir tóku þó mark á því og höfðu almanna­tengslar á því orð að Sig­mundur Ernir hefði ein­fald­lega átt að játa á sig sök­ina og biðja þjóð­ina afsök­unar.

„Hjólum í helvítis tíkina“

Þeir sem eru eldri tvæ­vetra muna eftir því þegar íslenskt sam­fé­lag fór nán­ast á hlið­ina árið 2018 þegar fjórir þing­menn Mið­flokks­ins og tveir þing­menn Flokks fólks­ins náð­ust á upp­töku á Klaust­urs­barnum. Aug­ljós­lega var tölu­vert áfengi haft um hönd þegar þeir fóru að tjá sig um hina ýmsu sam­starfs­menn, en aðal­lega konur, á hinu háa Alþingi. Um var að ræða Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, Braga Sveins­son, Bergþór Ólason og Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur úr Mið­flokknum og Karl Gauta Hjalta­son­ og Ólaf Ísleifs­son­ úr Flokki fólks­ins.

Þar ræddu þeir útlit kven­kyns þing­manna, hver væri „heit“ og ekki heyrð­ist betur en þeir gerðu grín að fötlun þing­konu. Einnig heyrð­ust ummáli á við „Hjólum í hel­vítis tík­ina“ sem Gunnar Bragi Sveins­son lét falla um Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi sam­herja sinn í Fram­sókn­ar­flokknum. Önnur nið­ur­lægj­andi ummæli voru „Þið eruð með þessa húrr­andi klikk­uðu kuntu“ sem Bergþór Ólason sagði við Ólaf og Karl Gauta þegar hann var að reyna að fá þá til liðs við Mið­flokk­inn. Hann var þar að vísa til Ingu Snælands, for­manns Flokks fólks­ins.

Sig­mund­ur Davíð brást fyrst­ur við og sagði að um hler­an­ir væri að ræða. Anna Kolbrún brást fljótt við með afsök­un­ar­beiðni en treg­lega gekk að fá karl­menn­ina til þess. Þeir báðu þó afsök­unar á ummælum sínum, með mis­jöfnum hætti og eft­ir­sjá þó, en konur á Alþingi fund­uðu og ræddu ummælin.

Það er kald­hæðið til þess að hugsa en þetta sama kvöld og afsök­un­ar­beiðn­irnar duttu inn var hin árlega þing­manna­veisla á Bessa­stöðum. Heim­ildir herma að það hafi ekki verið mikið fjör á fólki það kvöldið og kul í lofti.

Skál í boð­inu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi