Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldór úrskurðaður látinn eftir hvarf – Hringdi 12 árum síðar í systur: „Óvissan var hræðileg“

Halldór úrskurðaður látinn eftir hvarf – Hringdi 12 árum síðar í systur: „Óvissan var hræðileg“

Það var árið 1988 sem Halldór Heimir Ísleifs­son, lækn­is­sonur og 25 ára náms­maður frá Hvols­velli brá sér í frí til Kali­forníu.

Og hvarf spor­laust.

Hann hafði stundað nám í hag­fræði við North Texas Uni­versity en tekið sér frí frá námi og komið til Íslands. Hann dvaldi hér á landi í eitt ár en ákvað síðan að halda aftur vestur og halda áfram námi.

Þegar út var komið sagði Halldór fjöl­skyldu sinni að hann ætti gamlan en traustan bíl og að hann ætl­aði sér í ferð um Banda­ríkin áður en skóla­árið hæf­ist. Fjöl­skylda hans hafði nokkrar áhyggjur af því að Halldór væri á ferð­inni einn í stóru og ókunn­ugu landi en hann gaf lítið fyrir það og full­viss­aði fjöl­skyldu sína að hann þekkti vel til og eng­inn ástæða væri til að hafa áhyggjur.

Síðustu samskiptin

Það síð­asta sem vitað var um ferðir Halldórs var að stuttu eftir kom­una til Kali­forníu hringdi hann í skóla­fé­laga sína í Texas. Bað hann þá um að senda sér pen­inga fyrir far­seðli til baka þar sem bíl hans hefði verið stolið og meðal þess sem í bílnum var voru skil­ríki hans. Skóla­fé­lag­arnir brugð­ust skjótt við og sendu honum pen­inga.

En eftir það heyrð­ist ekk­ert meira frá Halldóri. Eftir það fóru aðstand­endur að hafa áhyggjur og fljót­lega var lög­reglu til­kynnt um hvarf hans. Bifreið Halldórs fannst síðar í smábæ skammt frá landa­mærum Mexíkó og taldi lög­reglan í San Diego að Halldór hefði hugs­an­lega haldi til Mexíkó.

Upp­lýs­ingum um Halldór var dreift víða um Banda­ríkin og Kanada en leit bar eng­ann árangur.

Úrskurðaður látinn

Þegar á leið voru flestir komnir á þá skoðun að Halldór væri lát­inn. Kristín Ísleifs­dóttir, systir Halldórs, sagði í við­tali á sínum tíma að fjöl­skyldan hefði upp­lifað mika sorg og þetta hafi verið ákaf­lega erf­iður tími. Kristín sagði fjöl­skyld­una hafa ríg­haldið í von­ina: „Við von­uðum en það má segja að vonin hafi ein verið eftir. Og bænin. Óvissan var hræði­leg.“

Og árin liðu og var Halldór á end­anum úrskurðarður lát­inn.

Símtalið sem öllu breytti

Það er síðan árið 2000 að sím­inn hringir og mágur hans svarar. Ekki er hægt að ímynda sér við­brögðin þegar Halldór Heimir reynd­ist vera á lín­unni. Fjöl­skyldan var strax öll kölluð til og hringdi Halldór aftur þremur tímum síðar og urðu miklir fagn­að­ar­fundir.

Kristín sagði að Halldór Heimir hefði búið í Texas í þessi 12 ár og unnið þar fyrir sér.

Kristín flaug í kjöl­farið til Banda­ríkj­anna til að hitta loks­ins bróðir sinn. Hún þurfti að stað­festa að um Halldór væri örugg­lega að ræða, auk þess að útvega papp­íra þar sem Halldór hafði verið tek­inn út úr þjóð­skrá.

Kristín sagði að Halldór Heimir hefði á síð­ustu árum fylgst vel með því sem gerst hefði á Íslandi í gegnum Netið. „Þegar við höfum verið að tala við hann á síð­ustu dögum höfum við oftar en einu sinni rekið okkur á að hann er betur að sér um mörg mál á Íslandi en við.“

Í októ­ber árið 2000 kom Halldór loks­ins heim. Hann hóf störf sem bygg­ing­ar­verka­maður og var afar vel lið­inn af sam­starfs­mönnun en ágengni blaða­manna var yfir­gengi­leg. Halldór vildi lítið tjá sig, sagði aðlög­un­ina við heim­kom­una ganga vel en vildi ekki ræða týndu árin í Banda­ríkj­unum. Eðlilega spunn­ust upp fjöl­margar sögur en hvorki Halldór Heimir né neinn úr fjöl­skyld­unni hefur nokkurn tíma viljað ræða ástæð­una að baki baki hvarfi Halldórs. Kristín gaf á end­anum út þá yfir­lýs­ingu að þeirri spurn­ingu yrði aldrei svarað.

„Aðal­at­riðið er að hann er á lífi og er heil­brigður. Ætt­jörðin og fjöl­skyldan hafa á end­anum togað hann heim eins og gjarnan ger­ist með þá sem hafa lengi dvalist erlendis.“

Halldór Heimir býr enn þann dag í dag á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi