Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bólusetningin gengur illa en „fréttafólkið eins og það væri í vinnu hjá Saudí Arabíska sjónvarpinu“

Bólusetningin gengur illa en „fréttafólkið eins og það væri í vinnu hjá Saudí Arabíska sjónvarpinu“

Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti, seg­ist ekki skilja fréttir af bólu­setn­ingu á Íslandi. Hann segir að blaða­menn geti ekki borið út lygar stjórn­valda enda er við­kom­andi þá orð­inn eitt­hvað annað, sam­verka­maður. Hann byrjar pistil­inn á því að benda á að bólu­setn­ing gengur illa, alveg óháð því hvað Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir:

„Ég verð að við­ur­kenna að ég skil ekki fréttir af bólu­setn­ingum á Íslandi. Um dag­inn voru fréttir af umræðum á þingi þar sem ein­hverjir þing­menn voru að spyrja hvernig gengi, létu á sér heyra að það gengi ekki nógu vel. Þar full­yrti Svandís heil­brigðis á móti að það gengi bara víst vel. Stefnt hefði verið að því um ára­mótin að búið yrði að bólu­setja um 45 þús­und manns fyrir lok mars en nú virt­ist sem það myndi ekki takast að fullu, ný áætlun segði 43 þús­und manns fyrir lok mars. Ég kíkti þá inn á covid.is og sá að þá var búið að bólu­setja um 13.500 manns og hugs­aði; hef ég misst af frétt um stóru send­ingu eða eitt­hvað? Hvernig ætla þau að klára að bólu­setja næstum 30 þús­und til við­bótar á hálfum mán­uði? 13.500 á tveimur og hálfum mán­uði en svo tæp 30 þús­und á hálfum mán­uði? Humm.“

Hann kann­aði svo stöð­una í dag. „Þetta var fyrir sex dögum. Í morgun kíkti ég aftur inn á covid.is. Þar sést að búið er að bólu­setja rétt um 15 þús­und. Sem sagt 1.500 manns á sex dögum, um 250 á dag. Ef það á fara með þessa tölu upp í 43 þús­und þyrftu 3.500 að fá fulla bólu­setn­ingu þá daga sem eftir lifir mán­að­ar­ins, þar er 14faldur hraði miðið við síð­ustu sex daga. Og það eru bara tæp­lega 23 þús­und sem eru komin með fyrstu sprautu, svo þótt þeir fengju allir seinni spraut­una fyrir mán­að­ar­lok þyrfti að gefa um 5 þús­und manns bæði fyrstu og seinni á þessum átta dögum, sem mér skilst að sé tækni­lega ómögu­legt. Ég held að það hafi liðið þrár vikur á milli sprautn­anna hjá mömmu,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir fólk lík­lega orðið vant þessu, ráð­herrar lofi hinu og þessu. „Við höfum lifað við það í gegnum kór­ónafar­ald­ur­inn að ráð­herr­arnir hafa sagt alls­konar sem síðar reynd­ist ekki vera inni­stæða fyrir. Þeir stór­lega ýktu efna­hags­að­gerð­irnar sem þeir kynntu og margt af því sem þar var kynnt fór seint í gang og af mun minna afli en til­kynnt hafði verið, sumt reynd­ist tóm blaðra.“

Eina alvöru björg­un­ar­að­gerðin hafi svo ekki verið fram­lag rík­is­stjórn­ar­innar. „Í raun eru það bara atvinnu­leys­is­bæt­urnar sem hafa virkað í takt við það sem kynnt var. En það er kreppu­vörn gegn atvinnu­leysi sem verka­fólk vann sér inn með verk­föllum 1956 og því ekki verk þess­arar rík­is­stjórnar. Hluta­bætur og leng­ing tekju­tengda tím­ans eru þekkt útfærsla á atvinnu­leys­is­bótum í efna­hags­sam­drætti, voru t.d. not­aðar eftir Hrunið 2008. Mest annað af flug­elda­sýn­ingum ráð­herr­anna hafa reynst vera stór­kost­legar ýkjur um eigið ágæti og snilli,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir fjöl­miðla taka þátt í þessu. „Og við höfum lifað með þessu, sætt okkur við þetta eins og hluta af far­aldr­inum, eins og and­lits­grím­urnar, sam­komu­tak­mark­anir og annan ófögnuð. Fjöl­miðlar hafa tekið þá stefnu að sann­leik­ur­inn verði að víkja fyrir sam­stöð­unni, hafa haldið áfram að flytja fréttir af kynn­ing­ar­fundum ráð­herr­anna eins og þar sé sagt satt og rétt frá, að frá yfir­völdum komi sann­leik­ur­inn. Við sitjum svo heima eins og íbúar Sov­ét­ríkj­anna, föst í ver­öld sem gengur ekki upp; heyrum eitt en sjáum svo eitt­hvað allt annað.“

Gunnar Smári segir að fund­ur­inn í gær hefði getað komið frá ein­ræð­is­ríki. „Í gær var einn svona fundur. Þar sögðu ráð­herr­arnir að ljóst væri að aðgerðir þeirra hefðu tek­ist frá­bær­lega eins og tölur sýndu. Samt sýndu töl­urnar versn­andi horfur, minni hag­vöxt og meira atvinnu­leysi. Og frétta­fólkið flutti okkur frá­sögn ráð­herr­anna eins og það væri í vinnu hjá Saudí Arabíska sjón­varp­inu; að kon­ungs­fjöl­skyldan hefði talað og sagt að allt væri á réttri leið fyrir hennar til­verknað. Og þannig hlyti það því að vera. Annars hefði Allah ekki fært okkur þessa kon­ungs­fjöl­skyldu.“

Þetta gangi ekki lengur. „Við verðum að kom­ast út úr þessu ástandi. Þjóð getur ekki lifað við lygar alla daga. Það er ekki hægt að flytja rit­stjórn­ar­valdið og frétta­skýr­ingar yfir á ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar og upp­lýs­inga­full­trúa ráð­herr­anna (sem reyndar eru fleiri en frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins). Þegar stjórn­völd ljúga um allt, meira að segja tölu bólu­settra, þá ríður á að frétta­fólk segi satt.“

Hann segir lýð­ræð­is­bylt­ing­una virð­ast ganga til baka. „Lýð­ræð­is­bylt­ing síð­ustu aldar sner­ist ekki bara um almennan kosn­inga­rétt heldur fór hún fram alls staðar í sam­fé­lag­inu. Konur kröfð­ust áheyrnar og að til­lit yrði tekið til hags­muna sinna, fatl­aðir og sam­kyn­hneigðir líka, háskóla­nemar vildu ráða námi sínu, verka­fólk móta kjör sín, aldr­aðir hvernig búið var að þeim o.s.frv. Í stað einnar miðju rík­is­valds, hvort sem það var undir kóngi eða borg­ara­stétt, kom ver­öld með margar miðjur ólíkra hópa með ólíka hags­muni,“ segir Gunnar og heldur áfaram:

„Þessi bylt­ing umbreytti fjöl­miðlum. Þeir fluttu fókus sinn frá yfir­vald­inu og færðu hann niður á jörð­ina, hættu að vera rík­is­valds- eða emb­ætt­is­manna­kirkja og urðu leik­manna­kirkja, þar sem spennan í sam­fé­lag­inu var kannski mest á milli almenn­ings og rík­is­valds. Þetta eru þeir fjöl­miðlar sem við flest þekkjum, eins og þeir voru á Íslandi (meira og minna) frá miðjum átt­unda ára­tugnum og fram að Hruni 2008.“´

Hann segir fjöl­miðla í seinni tíð tala við stofn­anir en ekki fólk. „Eftir Hrun er eins og haf­ist hafi aft­ur­hvarf til fyrra tíma, fókus fréttaum­fjöll­unar fer frá almenn­ingi aftur til yfir­valda. Í umfjöllun um slys og áföll fór fók­us­inn frá þolendum og vitnum yfir á svo­kall­aða við­bragðs­að­ila. Kór­ónafar­ald­ur­inn varð ekki far­aldur smit­sjúk­dóms með sjúk­lingum og dánum, heldur sótt­varn­ar­að­gerð stýrð úr höf­uð­stöðvum. Og efna­hags­lífið hætti að vera virkni okkar í sam­fé­lag­inu heldur eins­konar sýnd­ar­ver­öld ráð­herr­anna. Við erum lent í ein­hverri dystópíu, fram­tíð­inni sem eng­inn vildi og var svo fjar­læg að aðeins fáir ótt­uð­ust. Það er kannski þess vegna sem hún er að ræt­ast.“

Að lokum segir hann blaða­mönnum að sætta sig ekki við þetta skammar­lega hlut­verk. „En hvað um það. Kæra fjöl­miðla­fólk, þetta gengur ekki lengur. Ykkar vinna er ekki að vera far­vegur lyg­innar fyrir stjórn­völd. Þegar þau segja ósatt verðið þið að segja satt. Sá sem ber ósann­indi út er sam­verka­maður lyg­innar. Blaða­maður sem sættir sig við það hlut­verk er ekki blaða­maður heldur hluti af áróð­urs­batt­eríi yfir­valda. Það er ekki til skammar­legra hlut­verk. Hættið þessu, áður en þið fyr­ir­gerið sál ykkar og æru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi