Verið var að losa hliðarhandrið á svölum þegar þær gáfu sig, með þeim afleiðingum að þær hrundu niður og tóku svalir á neðri hæð með sér. Iðnaðarmenn voru að undirbúa niðurbrot á svölunum á fjölbýlishúsi á Sogavegi.

Mynd: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Tveir menn voru á svölunum þegar atvikið átti sér stað og féllu þeir niður um fimm metra.
Mennirnir voru uppistandandi þegar slökkviliðið mætti á slysstað og báru sig nokkuð vel, eftir því sem fram kemur á Facebook-síðu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Mennirnir voru lemstraðir og rispaðir, en ánægðir að hafa sloppið svo vel.

Ljósmynd: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins





















Athugasemdir