Jón H. Guðmundsson, lífeyrisþegi og krabbameinsskjúklingur, hefur glímt við krabbamein síðustu tólf ár og upplifað ólýsanlegar kvalir. Hann hvetur alla karlmenn til að vera vakandi yfir eigin heilsu og einkennum krabbameins.
Jón segir frá veikindum sínum í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hann að þekkingarleysið á sínum tíma hafi verið það mikið að erfiðlega hafa gengið að greina sjúkdóminn.
„Maður þurfti oftar að pissa og það var eins og blaðran tæmdist ekki. Það eru liðin rúmlega 12 ár síðan undirritaður greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli og er enn að glíma við eftirköst þess. Þetta er búið að vera langur og strangur gangur. Allar aukaverkanirnar sem þessu fylgja sem ekki eru á heilbrigðan mann leggjandi,“ segir Jón.
Jón greindist upphaflega með krabbamein í blöðruhálskirtli en síðar kom í ljós að meinið hafði komist út fyrir hann, meðal annars í beinin. Hann þakkar öllu heilbrigðisstarfsfólki fyrir umönnunina. „Enn er maður uppistandandi. Ágætu karlmenn, það er ekki bara í mars sem við þurfum að halda vöku okkar heldur alla hina mánuði ársins líka. Að koma tímanlega til skoðunar svo hægt sé að greina meinið í tíma. Því vil ég hvetja alla karlmenn sem eru komnir á miðjan aldur til að fara og láta skoða sig. Munið að eftir því sem bíllinn ykkar eldist þurfið þið að fara með hann oftar í skoðun,“ segir Jón.





















Athugasemdir