Barn sem var meðal gesta á sýningu Þjóðleikhúsins á Kardemommubænum síðastliðinn laugardag greindist með COVID. Leikhúsið greinir frá þessu í tilkynningu. Tólf þurfa því að fara í sóttkví. Barnið sat ásamt foreldrum sínum á fremsta bekk en enginn starfsmaður þarf þó að fara í sóttkví.
„Mjög hratt gekk að kortleggja alla þá sem sátu í námunda við viðkomandi og rekja mögulega smithættu. Ekki er talin ástæða til að breyta framkvæmd viðburða í Þjóðleikhúsinu umfram almennar aðgerðir sem stjórnvöld kunna að grípa til í tengslum við þróun faraldursins. Þjóðleikhúsið starfar áfram eftir skýrum fyrirbyggjandi verklagsreglum um varnir gegn Covid-19,“ segir í tilkynningu Þjóðleikhússins.





















Athugasemdir