Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björgunarsveitin Þorbjörn varar fólk við heimsóknum á gosstöðvar: Ekki ganga á hrauninu!

Björgunarsveitin Þorbjörn varar fólk við heimsóknum á gosstöðvar: Ekki ganga á hrauninu!
Björg­un­ar­sveit­ar­menn að störfum.

Ekki ganga ofan á hraun­inu! Það er stór­hættu­legt. Varað við því að mökk­inn frá gos­inu leggi yfir göngu­leið­ina og hætta sé á gasmengun.

Svo segir í færslu frá björg­un­ar­sveit­inn Þorbirni sem hefur staðið vakt­ina dag sem nótt frá því eld­gósið hófst. Sveitin hefur ásamt öðrum sveitum verið að störfum stans­laust. Fólk skipt­ist á að fara að sofa og vakt­irnar eru langar.

Þar segir enn­fremur: „Verkefni okkar í kringum svona eld­gos eru aðal­lega tví­þætt. Í fyrsta lagi nýtum við þekk­ingu okkar og tækja­búnað til þess að aðstoða vís­inda­menn frá hinum ýmsu stofn­unum við rann­sóknir. Þessar rann­sóknir hjálpa þessu sama fólki að átta sig betur á því hvað er í gangi og hvar hætt­urnar leyn­ast. Í öðru lagi erum við að aðstoða Lög­regl­una á Suð­ur­nesjum við ýmis verk­efni. Verk­efnin eru t.d. þau að upp­lýsa fólk við goss­tað­inn um gasmegnun, hjálpa til við lok­anir á leiðum og svo fram­vegis,“ kemur fram í færsl­unni.

Eldgos í fangið

„Það er ein­fald­lega þannig að við fengum þetta eld­gos beint í fangið og á stað sem er mjög óað­gengi­legur. Þangað liggja hvorki göngu­leiðir né veg­slóðar sem gerir þetta verk­efni mun flókn­ara fyrir okkur. Ofan á þetta hefur verið mjög hvasst og leið­in­legt veður.

Veður eru válynd á svæð­inu.

Á meðan við höfum verið að ná utan um ástandið hefur fólk í þús­unda­tali lagt leið sína á svæðið. Okkur þykir það mjög skilj­an­legt og við vildum að við gætum tekið betur á móti öllum. Í gær­kvöldi fór svo allt í skrúf­una og fólki gekk illa að kom­ast frá eld­gos­inu sem end­aði með fjölda örmagna fólks sem þurfti á aðstoð okkar að halda. Við vildum óska þess að staðan væri betri og viljum koma því á fram­færi hér með að við björg­un­ar­sveit­ar­fólk erum ein­fald­lega sjálf­boða­liðar sem hlaupa undir bagga með ýmsum aðilum þegar á reynir. Við tökum ekki ákvarð­anir um lok­anir né skil­greind hættu­svæði, stofn­anir og lög­regla gera það.“

Þor­bjarn­ars­menn- og konur segja að þau hafi náð betur utan um verk­efnið þótt mikið óveður hafi gengið yfir og hafi þeim gengið vel í sínum verk­efnum.

Farið varlega!

Síðdegis í dag fór 10 manna hópur frá sveit­inni í stiku­ferð upp á Fagra­dals­fjall í brjál­uðu veðri og nú í kvöld lauk því verk­efni. Nú er hægt að ganga stik­aða slóð frá Suð­ur­stranda­vegi að gos­s­töðv­unun á mjög þæg­in­legan máta og tekur um eina og hálfa klukku­stund fyrir vel búið fólk að ganga þá leið en hún er um 3.5 km eða 7 km fram og til baka.

„Að gefnu til­efni viljum við biðja fólk um að fara var­lega, fylgj­ast með veð­ur­spá og vera vel útbúin. Nú þegar það lægir vind má búast við mik­illi gasmengun í kringum gosið. Það er vegna þess að gíg­ur­inn er í mik­illi lægð og þegar vind­ur­inn blæs ekki gas­inu frá leggst það ofan í lægð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi