Þegar Halldóra Mogensen, þingkona Pírata, var sautján ára gömul var henni nauðgað. Á þeim tíma datt henni ekki í hug að kæra og ákvað að harka það bara af sér. Vegna atburðarins bar hún litla sem enga virðingu fyrir sjálfri sér í mjög langan tíma. Á endanum ákvað hún að fyrirgefa nauðgaranum.
Í æsku upplifði Halldóra rótleysi er hún ólst upp hjá einstæðri móður og þá var hún lögð í gróft einelti. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali við hana í Einkalífinu á Vísi. Þar lýsir Halldóra hinni erfiðu upplifun að vera nauðgað sem táningur.
„Ég átta mig alveg á því að þetta hafði gríðarlega mikið áhrif á mitt líf. Maður tekur þetta rosalega inn á sig og kennir sjálfum sér um. Ég bar enga virðingu fyrir sjálfri mér í mjög langan tíma. Það hafði áhrif á öll tengsl við karlmenn, líka við konur og alla,“ segir Halldóra og bætir við:
„Á þessum tíma var ekkert talað um þetta. Mér datt ekki einu sinni í hug að kæra, því mér fannst þetta vera mér að kenna. Ég skammaðist mín svo mikið fyrir þetta. Svo bara harkar maður þetta af sér.“





















Athugasemdir