Staðfest var í dag í Hæstarétti Íslands dómur yfir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrrum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Júlíus var sakfelldur í héraði í desember 2018 fyrir peningaþvætti.
Á árunum 2010 til 2014 geymdi Júlíus á erlendum reikningi á bilinu 131 til 146 milljónir króna sem voru að hluta til ávinningur refsiverðra brota, þar sem um var að ræða tekjur sem Júlíusi hlotnaðist nokkrum árum fyrr, en hafði ekki talið fram til skatts. Þannig komst Júlíus hjá því að greiða tekjuskatt og útsvar af tekjunum eins og lög hér á landi segja til um, ásamt vöxtum af fénu.
Sjá einnig: „Borgarfulltrúi ákærður fyrir peningaþvætti“
Júlíusi var einnig gert að sök að hafa árið 2014 ráðstafað fénu yfir á annan erlendan reikning sem tilheyrði Silwood Foundation vörslusjóði. Rétthafar sjóðsins voru hann sjálfur, eiginkona hans og börn.





















Athugasemdir