Ummæli Helga Seljan, eins stjórnanda fréttaskýringaþáttarins Kveiks, um Samherja voru talin fela í sér alvarleg brot, þetta kemur fram í úrskurði siðanefndar RÚV.
Samherji kærði 11 starfsmenn RÚV til siðanefndar, en Helgi er sá eini sem metinn er hafa brotið af sér.
Snýr kæran að 4. málsgrein 3. greinar siðareglna Ríkisútvarpsins þar sem segir að starfsfólk sem fjallar um fréttir, fréttatengt efni og sinnir dagskrárgerð skuli ekki taka afstöðu í umræðu um pólitísk mál og umdeild, þar á meðal á samfélagsmiðlum.
Gerðar eru athugasemdir meðal annars við eftirfarandi ummæli Helga Seljan:
„Vonandi er þessi árétting of einhliða fyrir hinn ballanseraða forstjóra Samherja.“
„Sæll Björgólfur Jóhannsson. Nú hef ég fylgst með þér fyrstu daga þína í starfi og vandræðum þínum við að höndla einfaldar staðreyndir um eignarhald fyrirtækisins sem þú stýrir; samanber þetta með Heinaste um daginn.“
„… En af því að ykkur virðist ekki auðlesið internetið er hér ein grein sem þú gætir byrjað á að lesa gæskur … Þú þarft ekkert að biðja mig afsökunar samt.“
„Rosalega hlýtur þeim að líða vel með sig núna „andlitunum“ sem tóku þátt í að rétta við ímynd þessa kompanís eftir að upp um það komst.“
Þetta kemur fram í úrskurðinum:
„Telja verður að með þessum ummælum sínum, sérstaklega þegar þau eru saman tekin, en þó ekki aðeins, hafi Helgi Seljan gerst hlutdrægur og gengið lengra en það svigrúm sem hann hafi annars til þess að deila fréttum og fylgja þeim eftir með gagnrýnum spurningum eða ummælum, sambærilegum þeim sem hann myndi viðhafa sem fréttamaður, jafnvel þó slíkt væri gert í eigin nafni. Því er það mat siðanefndarinnar að í ofangreindum ummælum felist skýr og persónuleg afstaða í málefni kæranda, sem 4. mgr. 3. gr. siðareglnanna er ætlað að taka til, og því um að ræða brot á greininni.
Hvað varðar alvarleika brots Helga Seljan, verður að taka tillit til þess að ákvæðum siðareglnanna hefur ekki verið beitt fyrr, sem og að ekki liggja fyrir skýrar leiðbeiningar frá RÚV um hvernig fréttamenn eigi að haga tjáningu sinni á samfélagsmiðlum. Á móti kemur að hér er um að ræða ítrekuð tilvik yfir langan tíma. Í því ljósi telur siðanefndin að brot Helga sé alvarlegt, á mælikvarða 7. gr. starfsreglna siðanefndarinnar (ámælisvert, alvarlegt eða mjög alvarlegt).“
Málum er varða ummæli og deilingar Aðalsteins Kjartanssonar, Freys Gígju Gunnarssonar, Láru Ómarsdóttur, Rakelar Þorbergsdóttur, Sigmars Guðmundssonar, Stígs Helgasonar, Sunnu Valgerðardóttur, Tryggva Aðalbjörnssonar og Þóru Arnórsdóttur vísaði siðanefndin frá.





















Athugasemdir